Alþýðublaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997 f r « t t i r ■ Haildór Björn Runólfsson skrifar um höggmyndalist Louise Bourgeois Líkaminn sem höggmynd Það er óhætt að fullyrða að það hafí tekið fransk-bandarísku listakon- una Louise Bourgeois alla ævi að springa út og blómstra. Allt frá því hún tók að sýna verk sín í hinum ýmsu listhúsum New York-borgar - hún hélt sína fyrstu einkasýningu í lok heimsstyrjaldarinnar síðari - hafa starfsfélagar, sérfræðingar og áhuga- menn vitað af henni einhvers staðar í bakgrunni listasögu liðinna áratuga. Ef til vill er það vegna þess að hún er kona að hún varð að bíða til elliár- anna með að “slá í gegn”. Þá voru flestir samferðarmenn hennar af karl- kyni löngu búnir að skipa sér í hóp hinna þekktu og dáðu. En það var ekki einasta kynferðið sem hamlaði framgangi Louise Bour- geois: Stíll hennar, aðferðir, áherslur og inntak gengu þvert á viðurkennd og venjubundin gildi. A meðan form- ræn gildi voru allsráðandi í evrópskri og amerískri list og áhorfendur gættu öðru fremur að lögun listaverka, rök- rænu sköpunarferli þeirra, áferð og litrófi virtist Bourgeois sniðganga alla skipulega samkvæmni. Samsetn- ingar hennar úr viði frá fimmta og sjötta áratugnum virtust lítið eiga sameiginlegt með gipsverkum hennar á sjöunda áratugnum. Hins vegar virðast þau eiga litla formræna sam- leið með marmaraverkum hennar eft- ir að hún komst í kynni við marmara- námumar í Pietrasanta á Italíu, 1967, og fór jafnframt að steypa ýmis verk sín í brons í málmbræðslu staðarins. Það er einungis á síðustu tíu til fimmtán árum sem mönnum er að verða ljóst hvert Louise Bourgeois var að fara á ámnum áður. Það sem samferðarmenn hennar í stríðslok misskildu sem heldur hrákalt og nær- göngult kvenmannsvæl, of losaralegt til að kallast meistaralegt, reyndist vera undanfari nútíma líkamslistar. Hin fleygu orð hennar: í mínum aug- um er höggmynd líkaminn... Líkami minn em höggmyndir mínar,” gefa til kynna þekkingu hennar á uppmna nútíma höggmyndalistar eins og hún birtist í verkum Rodins. Líkaminn verður þar mælistikan sem ákvarðar umfang og áhrifamátt listaverksins. Enda gat engum dulist að höggmynd- Aðalfundur Islandsbanka hf. Aðalfundur íslctndsbanku hf. 1997 verður luildinn í Súlnasul Iíótel Sögu mánudaginn 17. mars 1997 og hefst kl. 14:00. Dagskrá 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta bankans. 2. Önnur mál, löglega upp borin. Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út þriðjudaginn 11. mars n.k. kl. 17:00. Framboðum skal skila til bankastjórnar, Kirkjusandi. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð, 13. og 14. mars frá kl. 9:15 - 16:00 og á fundardegi frá kl. 9:15 - 12:00. Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins fyrir árið 1996 verður hluthöfum til sýnis á sama stað frá og með mánudeginum 10. mars 1997. Illuthafar eru vinsamlegast beðnir um að vitja aðgöngunriða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi. 4. ntars 1997 Bankaráð íslandsbanka hf. ISLANDSBANKI ir hennar bjuggu yfir einhverjum undurmögnum kynngikrafti. Það var einfaldlega ekki venjan að listamenn gengju jafnnærri sjálfum sér og sálrænum vandkvæðum sínum og Louise Bourgeois gerði. Hún bjó yfir sorg sem mátti rekja til æskuár- anna þegar faðir hennar gerði hana samábyrga í framhjáhaldi sínu með enskukennara bama sinna og hálf- gerðri ráðskonu á æskuheimili hins verðandi myndhöggvara. Faðirinn var óábyrgi helmingur foreldranna. Móðirin, hinn ábyrgi aðili, var hins vegar farin af heilsu eftir spænsku veikina og mátti sín því lítils í hús- haldinu á þeim viðkvæmu árum sem Louise Bourgeois. Verk eftir Louise Bourgeois. Stíll hennar, aðferðir, áherslur og inntak þóttu ganga þvert á viðurkennd og venju- bundin gildi. Louise var að vaxa úr grasi. Það er heiftin út í föðurinn og Sadie, ensku kennslukonuna, sem hvarvetna brýst fram í dramatískum verkum Bourgeois. Það gilþir hana einu þótt hún giftist og flyttist með < ii'öaifi'N ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI 553 1236 eiginmanni sínum, bandaríska list- fræðingnum Robert Goldwater, til New York og eignaðist þar þrjá syni; sárindin frá æskuárunum hafa aldrei yfirgefið hana. Það eru þau sem liggja til grundvallar höggmyndum hennar, óvenjulegum innsetningum og fádæma frumlegum tjáningarmáta sem meðal annars lýsir sér í þörf fyr- ir að mölbrjóta alla skapaða hluti, strauja dagblöðin og háma í sig sultur og marmelaði. Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynn- ast nánar þessari mikilhæfu listakonu skal á það bent að í kvöld kl. 20:30 mun undirritaður, Halldór Bjöm Run- ólfsson listfræðingur, halda um hana erindi ásamt litskyggnusýningu - á frönsku og íslensku - í húsakynnum Alliance franáaise, Austurstræti 3 - gengið inn frá Ingólfstorgi. Aðgangui er ókeypis og öllum heimill meðar húsrúm leyfir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.