Alþýðublaðið - 05.03.1997, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997
5
ALP YÖUBLAÖIt)
■niHHTnrn
Ingibjörg í kröppum dansi
Vinnubrögð heilbrigðisráðherra um niðurskurð á sjúkrahúsum landsbyggðarinnar mæta harðri gagnrýni. Staða ráðherrans í hættu. Ráð-
herrar jafnt sem stjórnarþingmenn mótmæla.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis-
ráðherra, er lent í kröppum dansi vegna
tillagna um að skera niður fjárframlög
til tólf sjúkrahúsa í dreifbýlinu. Upp-
haflega var niðurskurðurinn ákveðinn
160 milljónir. Hörð andstaða á Alþingi
og á landsbyggðinni leiddi til þess að
hann var mildaður, og á í ár að verða
aðeins 60 milljónir. Það nægir þó ekki
til að lægja öldumar. Hörð gagnrýni
mætir Ingibjörgu í liði stjómarsinna á
Alþingi, landsbyggðin logar af reiði
vegna vinnubragðanna og einn ráð-
herra hefur í raun lýst vantrausti á
vinnubrögð hennar með því að senda
ásamt þremur öðmm þingmönnum op-
inbera áskomn til Ingibjargar um að
bæta vinnubrögð sín.
A snörpum fundi síðastliðinn föstu-
dag sem forsvarsmenn sjúkrahúsanna
tólf efndu til á Grand Hotel í Reykjavík
með fjölmörgum þingmönnum kvað
séra Hjálmar Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, engar forsendur fyrir því að ná
fyrirhuguðum spamaði á þessu ári. Eft-
ir að ráðherrann og starfsmenn hennar
höfðu setið undir harðri gagnrýni sagði
Kristján Erlendsson, læknir og sá
starfsmaður Ingibjargar sem sér um
niðurskurðinn, að hann gréti það ekki,
þó niðurskurðurinn næðist ekki.
Viðstaddir töldu að með þessum um-
mælum væri farsinn í kringum vinnu-
brögð ráðuneytisins fullkomnaður.
“Var þetta þá alltsaman í plati?” spurði
Sighvatur Björgvinsson í ræðu á fund-
inum.
Ingibjörg beygð
Hugmyndin um niðurskurðinn til
sjúkrahúsa dreifbýlisins fæddist hjá
embættismönnum fjármálaráðuneytis-
ins, sem lögðu til hálfs milljarðs skurðs
á framlögum til sjúkrahúsa. Þar af átti
að ná 160 milljónum af dreifbýlisspít-
ölum. Ingibjörg Pálmadóttir reyndi í
upphafi að streitast gegn hugmynd
embættismanna Friðriks Sophussonar,
en var kveðin í kútinn.
Það er fróðlegt, að í greinargerð með
frumvarpi til fjárlaga kemur fram, að
innan ríkisstjómarinnar eru hugmyndir
um miklu meiri niðurskurð en Ingi-
björg Pálmadóttir hefur látið uppi. Þar
er staðhæft, að talan 160 milljónir sé
fengin á grundvelli úttekta á nokkrum
sjúkrahúsum á landsbyggðinni . Auk
þess hafi verið gerð áætlun um hag-
kvæmustu nýtingu sjúkrahúsa miðað
við þarfir á hverjum stað.
Niðurstaðan í greinargerðinni er eft-
irfarandi: “Athugunin leiddi í ljós að
ná má fram verulegum árlegum spam-
aði með breyttu fyrirkomulagi og er
fyrirhugað að hrinda breytingunum í
framkvæmd í áföngum á næstu 2-3
ámm. Áformað er að fyrstu aðgerðim-
ar feli í sér 160 m. kr. spamað á árinu
1997.” Það er því alveg ljóst, að hinn
upphaflegi 160 milljón króna spamað-
ur var á áætlun Ingibjargar Pálmadótt-
ur aðeins “fyrstu aðgerðir.”
Úttektin sem ekki
var til
I umræðum á Alþingi var hart geng-
ið eftir þeim úttektum og áætlunum
sem greinargerð fjárlagafrumvarpsins
sagði að hefði verið gmndvöllur niður-
skurðarins. Ráðherrann var þráspurð
um hvar þessar úttektir væri að finna.
Þær komu aldrei í leitirnar. Forsvars-
menn sjúkrahúsanna í dreifbýlinu
gengu sömuleiðis hart eftir að fá að sjá
þær, en án árangurs. “Eg hef ítrekað
beðið um þessa úttekt,” sagði Friðfinn-
ur Hermannsson, framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Þingeyinga. “Eg fékk hana
aldrei.”
Að lokum höfðu framkvæmdastjórar
sjúkrahúsanna samband við þingmenn
í heilbrigðis- og trygginganefnd Al-
þingis, sem kröfðust þess að fá gögnin.
Þau reyndust þá vera þijár gamlar
skýrslur og nokkur laus blöð. Niður-
staðan var því sú, að greinargerð fjár-
lagaframvarpsins var ósönn: Það vom
engar úttektir til.
í orðasennu þann 1. febrúar í frétta-
auka RÚV milli Kristjáns Erlendsson-
ar, embættismanns heilbrigðisráðherra,
og Friðfinns Hermannssonar staðfesti
Kristján þetta efnislega, þegar hann
sagði ráðuneytið vera að taka saman
skýringu á þessum gögnum, sem yrði
send sjúkrahúsunum innan skamms.
Varnaðarorð landlæknis
Hörð mótmæli á Alþingi, meðal ann-
ars úr liði stjómarþingmanna, leiddu til
þess að ákveðið var að milda niður-
skurðinn. Ákveðið var að ná honum á
3 ámm í stað eins, og á fyrsta árinu
yrði aðeins skorið niður um 60 milljón
krónur.I fyrstu var það gert með að
lækka svokallaðan hagræðingarlið um
60 milljónir, og síðar á árinu á að sel-
flytja hann út á sjúkrahúsin, þegar búið
er að ganga frá því hvemig spamaðin-
um fyrir sérhvert sjúkrahúsanna verður
hrint í framkvæmd. Niðurskurðurinn er
Jón Kristjánsson, formaður fjár-
laganefndar: Lofaði samráði við
sveitarstjórnir og stjórnir sjúkra-
húsanna, sem ráðherrann efndi
ekki.
því ekki ennþá kominn fram í rekstri
húsanna. Sérstök verkefnisstjóm á að
útfæra niðurskurðinn, og í henni eiga
meðal annars sæti þingmennirnir Jón
Kristjánsson, Framsóknarflokki og
Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðis-
flokki.
Ingibjörg Pálmadóttir staðhæfir að
það sé mesti misskilningur að niður-
skurðurinn muni leiða til verri þjón-
ustu. Kristján Erlendsson, starfsmaður
Ingibjörg Pálmadóttir: Ráðherrann er harðlega gagnrýnd fyrir óvönduð
vinnubrögð gagnvart sjúkrahúsum á landsbyggðinni.
niðurstöðuna í formi tilskipana út til
forsvarsmanna viðkomandi spftala,
sem mega einvörðungu gera tillögu að
öðm vísi niðurskurði - ekki um minni
spamað.
Birgir Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri sjúkrahússins á Sauðárkróki seg-
ir að þetta sé sambærilegt við það að
búið sé að ákveða aftöku, og hinn
dæmdi megi náðarsamlegast ráða hvort
hann sé hengdur eða skotinn.
Stjómarliðar gagnrýna Ingibjörgu
Innan stjómaliðsins segja menn full-
um fetum, að með þessum vinnubrögð-
um hafi ríkisstjómin brotið loforðin,
sem Jón Kristjánsson flutti fyrir henn-
ar hönd við fjárlagaumræðuna. Séra
Hjálmar Jónsson hefur sagt, að vinnu-
brögð verkefhisstjómarinnar séu ekki í
samræmi við samþykktir Alþingis, og
engu samræmi við yfirlýsingar for-
manns fjárlaganefndar. Sjómin starfar
að sjálfsögðu á ábyrgð Ingibjargar
Pálmadóttur, þannig að ummæli hans
stappa nærri því að vera opið vantraust
á ráðherrann.
Páll Pétursson, flokksbróðir Ingi-
bjargar og félagsmálaráðherra, sendi
henni opinbera áskomn með þremur
öðmm stjómarþingmönnum, þar sem
hún var beðin um að vanda vinnubrögð
sín. I því felst að sjálfsögðu ásökun um
að vinna hennar að málinu hafi verið
“Fantatök stjórnlauss
ráðuneytis”
Mikil reiði er víða á landsbyggðinni
með vinnubrögð Ingibjargar Pálma-
dóttur að málinu. Innan stjómarliðsins
er málið álitið fallið, og gleggstur vitn-
isburður þess em ummæli séra Hjálm-
ars Jón»sonar á fundinum á Grand Hot-
el á föstudag. En þar kvað hann málið
þurfa lengra tilhlaup, og sagðist ekki
sjá neinar forsendur til að skerðingu
upp á 60 milljónir yrði náð á þessu ári.
Reiðinni á landsbyggðinni er líklega
best lýst með orðum Gísla G. Auðuns-
sonar, læknis á Sjúkrahúsi Þingeyinga,
sem hann lét falla í grein í Morgun-
blaðinu í síðasta mánuði. “Þetta er ekki
spamaður. Þetta em fantatök,” sagði
læknirinn, og bætti því við heilbrigðis-
þjónustan ætti að vera fyrir sjúklinga,
en ekki “tilraunaverkefni stjómlauss
heilbrigðisráðuneytis.”
í innstu röðum stjómarflokkanna er
sú skoðun útbreidd, að það væri alvar-
legur dómgreindarbrestur hjá Ingi-
björgu Pálmadóttur, ef hún fellur ekki
frá tillögum sínum um niðurskurðinn á
landsbyggðinni á þessu ári. Geri hún
það ekki, er almennt álitið að staða
hennar sem ráðherra sé komin í alvar-
lega tvísýnu.
Sjúkrahússins á Patreksfirði, segir að
tillögumar séu rothögg. Hann telur
ómögulegt að hrinda þeim í fram-
kvæmd miðað við þá lágmarksþjón-
ustu sem verði að veita á landsbyggð-
inni.
Á fundinum á Grand Hótel á föstu-
dag vom áhrif niðurskurðarins á þjón-
ustuna rædd. Landlæknir, sem lögum
samkvæmt er ráðgjafi ríkisstjómarinn-
ar um heilbrigðismál, velktist ekki í
neinum vafa: “Þessar hugmyndir munu
draga úr þjónustu og skapa óöryggi.”
Brotin loforð
Við afgreiðslu málsins á þingi lofaði
formaður fjárlaganefndar, Jón Krist-
jánsson, fyrir hönd ríkisstjómarinnar
að haft yrði samráð bæði við sveitar-
sjómir og stjómir sjúkrahúsanna um
niðurskurðinn. Þau loforð hafa ekki
verið uppfyllt. Þrátt fyrir yfirlýsingu
Jóns Kristjánssonar virðist sem Ingi-
björg Pálmadóttir hafi fallið frá þvf að
gefa sveitastjómum tækifæri til að tjá
sig um tillögur verkefnisstjómarinnar.
Samráðið við stjómir sjúkrahúsanna
er sömuleiðis í lágmarki. Vinnubrögð
ráðueytisins gagnvart þeim þykja
dæmafá. Samráðsferillinn er eftirfar-
andi: Embættismenn ráðuneytisins
ákveða upp á sitt eindæmi hvað sér-
hvert sjúkrahús á að spara. Þeir senda
óvönduð. Það er satt að segja afar
óvanalegt, að einn ráðherra gagnrýni
annan með svo afdráttarlausum hætti
Séra Hjálmar Jónsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins: Vinnubrögð
verkefnisstjórnar eru í andstöðu
við yfirlýsingar formanns fjárlaga-
hennar, bætti um betur. í fyrmefndum
útvarpsþætti kvað hann eiga að bæta
skipulag og starfsemi sjúkrahúsanna í
tengslum við spamaðinn, svo “að þjón-
ustan skerðist ekki, jafnvel að hún
batni með endurskipulagningu og hag-
ræðingu.”
Fáir taka þessi ummæli alvarlega.
Friðfinnur Hermannsson segir að það
sé óhjákvæmilegt að þjónustan skerð-
ist. Ólafur Öm Ólafsson, í stjóm
Ólafur Ólafsson landlæknir: Niður-
skurðurinn mun leiða til verri þjón-
ustu og skapa óöryggi.