Alþýðublaðið - 09.04.1997, Blaðsíða 7
i
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL1997 _____ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
c r I q n t
Eftirlifendur Helfararinnar og af-
komendur þeirra bera vitni fyrir
bandarískri rannsóknarnefnd nú í
Desember. Konurnar fyrir miðju
eru Alice Fisher og Gizella Weiss-
haus.
mundi bamanna á svissneska banka-
reikninga til að koma þeim í öruggar
hendur meðan á stríðinu stæði.
Fisher sagðist einnig hafa heyrt að
móðir sín hefði verið meðal þeirra
lánsömu í Auscwitz sem voru valin til
að vinna í búðunum en hún var ófáan-
leg til að yfirgefa nt'u ára gamlan son
sinn. „Hún vildi ekki að hann dæi einn
svo hún fylgdi honum í gasklefann."
Alice Fisher er eini eftirlifandinn af
fjölskyldu sinni en hún segist ekki hafa
þegið neinar skaðabætur sem að boðn-
ar voru fómarlömbum helfararinnar.
„Ég þigg ekki neinar þýskar bætur,“
segir hún. „Eg vil ekki þeirra peninga
en þetta em mínir peningar og sviss-
neskir bankar hafa engan rétt á því
halda þeim frá mér.“
“Við fengum alla okkar peninga af
bankareikningum í París og London,“
segir Estelle Sapir, dóttir pólsks banka-
stjóra sem slapp lifandi með hjálp
frönsku andspymuhreyfingarinnar úr
fangabúðum nasista í nágrenni
Marseille. Hún fór tvær ferðir til Sviss
til að reyna að fá aðgang að banka-
reikningum föður síns þar. Hún fékk
þau svör að hún fengi ekki aðgang
nema að framvísa dánarvottorði. Hún
hélt aftur til Parísar tómhent en gerði
aðra tilraun árið 1957 og hafði þá með-
ferðis skjöl um reikninga föð-
ur síns. Þau vom ekki tekin gild, aðeins
dánarvottorð yrði tekið gilt. „Hvar á ég
að fá dánarvottorð," segist Sapir hafa
æpt. „Hjá Hitler eða Himmler."
Hún .segir að bankastjóramir hafi
ekki látið í ljós samúð eða mælt fram
nein huggunarorð við þessar kringum-
stæður. í dag leigir hún herbergi á gisti-
heimili og deilir baðherbergi með öðr-
um einstaklingum í Belle Harbour í
Queens í Englandi.
Snúið við til Þýskalands
Flestir sagnfræðingar em sammála
um að það hefði ekki þjónað neinum
tilgangi fyrir Hitler að ráðast inn í
Sviss, hann og samverkamenn hans
hafi haft allt það gagn sem þeir þurftu
að hafa af þjóðfélaginu, aðgang að
bankareikningum og lestarteinum.
I maí árið 1995 bauðst Villinger for-
seti Sviss til að biðjast opinberlega af-
sökunar á framgöngu þjóðar sinnar í
stríðinu því það vom nefnilega Sviss-
lendingar en ekki Þjóðverjar sem fengu
þá hugmynd að öll vegabréf Gyðinga
yrðu framvegis merkt með stóm rauðu
Joði, svo auðveldara væri fyrir Sviss-
nesku lögregluna að bera kennsl á þá.
Um það bil 33.000 Gyðingum á
flótta var neitað um inngöngu í Sviss
sem leiddi til dauða flestra. Svissneska
lögreglan kom einnig upp um fjöl-
marga sem báðust hælis í landinu og
lestarverðir höfðu fyrir reglu að láta
Gyðinga og aðra stríðsfanga á flótta
aftur í hendur á Gestapo.
Það em þó aðgerðir Sviss-
lendinga eftir stríðið
sem hafa vakið upp
StCVfcS mesta reiði. Nýlega
sýndu áður leynileg minnisblöð njósn-
askjala að á ámnum 1947 og 48, buðu
Svissneskir embættismenn, auðugum
nasistum upp á lúxus flóttapakka fyrir
stjamfræðilegar upphæðir, og var inni-
falið í því vegabréf, miði með SwissA-
ir, KLM eða AirFrance og dvalarleyft í
nasistanýlendu að eigin vali, venjulega
Argentínu eða Brasilíu. Sumir banka-
stjórar gengu svo langt að flytja mikla
fjármuni fyrir nasistana í farmi með
diplómatísku innsigli.
Allt þetta sýnir svo ekki verður um
villst að hluta af ránsfeng nasista var
smyglað til Argentínu bæði fyrir og
eftir stríðið þar sem skötuhjúin Juan og
En vondu fréttimar halda áfram að
versna fyrir Sviss.
Nokkur listaverkauppboð sem vom
haldin í Luceme á fimmta áratugnum
em sögð hafa verið haldin til að losa
Nasista við listaverk sem tekin höfðu
verið eignamámi. I stríðinu rakti leyni-
þjónusta Bandaríkjanna slóð fjölda
listaverka til Sviss, sem tilheyrðu svo-
kallaðri úrkynjaðri list, þeirra á meðal
verk eftir Renoir og Matisse, en flutn-
ingamir vom á vegum Hermanns
Goerings. Árið 1945 sagði þáverandi
stjómandi Metropolitans safnsins í
New York að Nasistaverkin í Sviss
væm að verðmæti um tveggja til
n4w‘wT»»*«**iUf
, <*♦•*>•*
•—siwaBaJTr-Sff
’rj,,
. «4 ... . .1
**7E:**i
u *«<***•
fV**« i
sses(ð
••'Air...
"5.'»
J
Hermann Goering við Nurnberg réttarhöldin.
Eva Perón sáu til
þess að hann kæm-
ist aftur í hendur
ólögmætra eig-
enda.
«m
•* **«tf«*« •^**r^*
%&!»***
SECHtT
fo hi ttiíj**
.L ,n lí
te! ,í
j<
xatift&’WiV
1
Svisslendingar eru ekki þeir einu sem skjálfa á beinunum i þessu heilaga stríði, því rannsóknaraðilar eru farnir
að opna Gestapo skjöl sem sýna svo ekki verður um villst, slóð glæpamannanna, frá svissneskum bönkum til
Suður Ameríku. Nýlega sýndu áður ieynileg bandarísk minnisblöð njósnaskjala að á árunum 1947 og 48, buðu
Svissneskir embættismenn, auðugum nasistum upp á lúxus flóttapakka fyrir stjarnfræðilegar upphæðir, og var
Innifalið í því vegabréf, miði með SwissAir, KLIVI eða AirFrance og dvalarleyfi í nasistanýlendu að eigin vali,
venjulega Argentínu eða Brasilíu. Sumir bankastjórar gengu svo langt að flytja mikla fjármuni fyrir nasistana í
farmi með diplómatísku innsigli.
t\'eggja hálfrar billjónar bandaríkja-
dala.
Svissnesk yfirvöld gerðu hræðilegt
glappaskot þegar þau ákváðu að 1,6
milljón bandaríkjadala, sem sögð var
vera innistæða látinna Pólverja,
þar af flestra Gyðinga,
til kommúnistastjóm-
arinnar í Póllandi. Síð-
an þá hefur komið á
daginn að hluti þeirra
íjármuna var endur-
greiddur af kommúnistum
til Sviss sökurn eignatjóns
svissneskra ríkisborgara
við þjóðnýtingu eigna þeirra
í Póllandi. Það sama endur-
tók sig gagnvart ungverskum
yftrvöldum og virtist þá, þeg-
ar óvitjaðir reikningar með
gyðinganöfnum vom opnaðir í
skjóli samkomulagsins, að lög
um leynd yfir bankareikningum
mættu sín lítils.
Grundvöllurinn er
Nasistagull
“Grundvöllur auðsældar okkar er
nasistagull,“ segir Jean Ziegler þing-
maður Sósíalista í Svissneska þinginu
sem var refsiengill Svissneska banka-
kerfisins löngu áður en nýjustu
skandalamir blossuðu upp. Nú hefur
hann gert hið ófyrirgefanlega, hann
hefur borið fram tillögu að lagabreyt-
ingu í Svissneska þinginu sem er rædd
um þessar mundir, og miðar að því að
nema úr gildi bankaleyndina. „Fyrir
stríðið var Sviss fátækt land en nú
emm við annað ríkasta ríki í heimin-
um,“ segir Ziegler.
Daniel Guggenheim er svissneskur
Gyðingur, fæddur af fjölskyldu sem
kaus að vera um kyrrt í Genf í stríðinu.
„Astandið var hræðilegt fyrir Gyðinga
í Sviss allt fram til loka síðustu aldar.
Þeir höfðu ekki kosningarétt, né heldur
vom þeir kjörgengir og þeir gátu ekki
valið sér búsetu sjálfir fyrr en árið
1866. Árið 1940 áttu Gyðingar ekki
neinar valdastofnanir, ekkert ísraelsríki
og sannleikurinn var sá að enginn
kærði sig sérstaklega um þá.“
Faðir Daniels, Paul Guggenheim al-
þjóðlegur lögfræðingur, var einn af
þeirn fyrstu til að láta Franklin Ros-
evelt vita af helförinni en upplýsing-
amar fékk hann hjá Carl Buchardt sem
var formaður alþjóðadeildar Rauða
Krossins í stríðslok. „Faðir minn skrif-
aði viðvömn til Rosevelt gegnum
bandaríska konsúlinn en hann kaus að
virða hana að vettugi. Guggenheim tel-
ur sjálfur að afneitun Bandaríkjamanna
á helförinni sé tilkomin vegna andgyð-
inglegra ráðgjafa sem áttu greiðan að-
gang að forsetanum.
Eftir stríðið var Paul Guggenheim
einn þeirra sem reyndi að fá því fram-
gengt að reikningar fómarlambanna
yrðu gerðir aðgengilegir. „Faðir minn
fór í Dómsmálaráðuneytið um miðjan
fimmta áratuginn og bað þá um að
opna reikningana sem þeir og gerðu
árið 1962,“ segir hann. Rannsóknar-
menn fundu þá 9,5 milljónir sviss-
neskra franka. Upphæðin hlaut að lúta
þeirri staðreynd að bankamir fram-
kvæmdu rannsóknina sjálfir.
Það er annað upp á teningnum í
dag.“ Guggenheim dregur þó óbilgimi
Bronfmans í efa.
“Við verðum að vera sanngjöm. Það
vom margir hugrakkir Svisslendingar á
stríðstímanum og 25.000 gyðingar
fengu þar hæli. Faðir minn orðaði það
gjaman þannig að það væri auðveldara
að vera réttsýnn í dag en það var árið
1939. Amerískir Gyðingar hafa slæma
samvisku því þeir gerðu ekkert fyrir
evrópska meðbræður sína í stríðinu,"
segir Guggenheim og játar því að hann
hafi vissar efasemdir um það að kokka
upp sektarkennd meðal Svisslendinga.
„Framtíð Gyðinga veltur ekki á þessu,
hún veltur á því hvort það takist að
tryggja frið í Mið - Austurlöndum.
Þetta er eins og með Waldheimmálið.
Þú notar ekki pólitísk völd til að breyta
samvisku fólks, þú notar þau til að
knýja frani lagabreytingar."