Alþýðublaðið - 15.05.1997, Side 1

Alþýðublaðið - 15.05.1997, Side 1
UMNIUMI - HILMAR Hvítasunnuhátíð Reykjavíkurlistans æfð! Það lá vel á borgarstjóranum og Jóhannesi Kristjánssyni, eftirhermu, þegar þau hittust í góða veðrinu í gær. Þau hafa nefnilega ákveðiðað eyða saman kvöldi annars í hvítasunnu, þess 19. maí, þegar Reykjavíkurlistinn heldur glæsilega hvítasunnuhátíð á Hótel Borg. “Jú,jú,“ sagði Ingibjörg Sólrún, „ég ætla að stýra borðhaldinu, en Jóhannes að halda uppi fjörinu. Hann hefur þegar óskað eftir að fá að stýra borgarstjómarfundi, af því hann getur hermt svo vel eftir mér, en því hefur verið hafnað.“ Það lá ekki síður vel á Jóhannesi, sem sagði aðspurður, að hann væri að vinna að því að fá borgarstjór- ann til að sýna með sér tangó á hátíðinni, en Reykjavíkurlistinn hefði hafnað því. Þessvegna yrðu fengnir pró- fessjónel tangódansarar til að dansa tangóinn, en í staðinn kæmi frábær hljómsveit, Rússíbanamir, sem spiluðu undir tangónum suðurameríska sígaunasveiflu. “Þetta verður frábært kvöld, og einskonar upptaktur að komandi kosningabaráttu,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Að sögn hennar verður Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, ræðumaður kvöldsins, en síðan koma fjölmörg skemmtiatriði af öllum gerðum. ■ Bankar á Alþingi Vilja ekki breyta neinu Stjómarmeirihlutinn á Alþingi vildi ekki samþykkja breytingartil- lögu þriggja þingmanna jafnaðar- manna, þar sem tekið var á launa- kjörum og fríðindum æðstu starfs- manna Landsbankans og Búnaðar- bankans. Það voru þau Jóhanna Sig- urðardóttir, Guðmundur Ámi Stef- ánsson og Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir sem lögðu tillöguna fram þegar verið var að fjalla um breyt- ingu ríkisviðskiptabankanna yfir í hlutafélög. I breytingartillögunni segir: Við gildistöku laga þessara skal starfs- kjör bankastjóra, staðgengla banka- stjóra, aðstoðarbankastjóra og for- stöðumanna til endurskoðunar. Þrátt fyror 9. grein skulu laun þeirra og önnur starfskjör miðuð við laun og starfskjör stjómenda ríkisstofnana sem kjaranefnd ákveður. Seta þeirra fyrir hönd hlutafélaganna í stjómum annarra fyrirtækja eða stofnana skal talin hluti af almennri starfsskyldu. ferða- og dvalarkostnaður, bifreiða- hlunnindi o.fl. skal vera hinn sami og annarra bankastarfsmanna." ■ Allt upp í loft í pólitíkinni á Fáskrúðsfirði Meirihluti sprengdur í dag Framsóknarflokkurinn skilinn eftir einn í minnihluta Mikill átakafundur verður í sveit- arstjóm Búðarhrepps á Fáskrúðsfirði í dag þegar fimm manna meirihluti verður sprengdur, en alls eiga sjö fulltrúar sæti í stjóminni. Mikill trúnaður er um þetta mál á Fáskrúðsfirði, en samkvæmt heim- ildum Alþýðublaðsins sprengdu Al- þýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur meirihlutann á fundi í gærkvöld og í dag mynda þessi flokkar nýjan meiri- hluta með Óháðum, sem eiga tvo fulltrúa, en Alþýðubandalag og Sjálf- stæðisflokkur eiga sinn fulltrúann hvor flokkur. Framsóknarflokkurinn verður því einn í minnihluta og tekur við því hlutverki af Óháðum. Samkvæmt heimildum blaðsins verður lagður fram nýr meirihluta- samningur á sveitarstjómarfundi í dag. Þar er gert ráð fyrir að Sjálf- stæðisflokkur fái oddvita og óháðir formann bæjarráðs. Auk þess að mynda meirihluta hafa flokkamir þrír, sem að honum standa, gert sam- komulag um að bjóða saman fram í næstu sveitarstjómarkosningum, það er næsta sumar. Mikil óánægja er með þróun mála í Búðarhreppi, en atvinnutækifærum hefur stórfækkað og hefur það leitt til þess að íbúum hefur fækkað að sama skapi. Framsóknarmenn hafa, síðustu misseri, verið nær einráðir í atvinnu- líftnu og hafa, með örlítilli undan- tekningu, átt aðild að meirihluta sveitastjómar í áratugi. ■ Guðmundur J. Guðmundsson, fyrrverandi formaður Dagsbrúnar og Verka- mannasambandsins um verkfallið á Vestfjörðum Eigum við að láta drepa félaga okkar? - útgeröar- og peningavaldið vilja knéstja Baldur og skilja félagið eftir sundurkramið “Ég var ungur þegar ég lærði þau grunnsannindi að kjörorð verkalýðs- félaga væri: „Einn fyrir alla, allir fyr- ir einn“. Þessi gmnnsannindi virðast eitthvað hafa gleymst, svo þýðingar- mikil sem þau em. - Það er hryggi- legt,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, fyrrverandi formaður Dagsbrúnar og Verkamannasam- bands íslands, þegar Alþýðublaðið leitaði álits hans á stöðu verkfalls fé- laga í Alþýðusambandi Vestfjarða, en vel er liðið á fjórðu viku verkfalls þar vestra. Mörg fyrirtæki á Vestfjörum hafa gert samninga við sína starfs- menn, en það er helst innan Verka- lýðsfélagsins Baldurs á ísafirði sem ekkert hefur gerst. Pétur Sigurðsson, formaður Baldurs og Alþýðusam- bands Vestfjarða, hefur sagt að stað- an sé erfið, en að heimamenn séu ekki að gefast upp. “Verkalýðsfélagið Baldur á fsa- firði á sér mikla sögu,“ segir Guð- mundur. „Það hefur oft haft nokkra sérstöðu í kjarasamningum og ekki alltaf farið sömu leiðir og önnur fé- lög, en engu að sfður þá hefur barátta þess verið fyrir bættum kjömm verkafólks á Vestfjörðum. Nú hefur félagið staðið í verkfalli í þrjár vikur. Útgerðar- og peningavald á Vest- fjörðum og höfuðmiðstöðvar pen- ingavalds í Reykjavík reyna nú að knésetja félagið og vilja helst skilja það eftir sundurkramið og máttlaust. Gagnvart þessum áformum hélt ég að verklýðsfélögin snemst til harð- vítugra viðbragða. En hvað skeður? Skip ífá ísafirði sem era að brjóta verkfall fá landanir í öðmm höfnum, nema í Reykjavík þar sem Dagsbrún lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Forráðamenn þessara félaga reyna að tína upp lagalega útúrsnúninga og formsatriði. Þetta er ömurlegt. Ofar þessum ómerkilegu formsat- riðum er skylda manna að standa með félögum sínum sem verið er að reyna að drepa. Ég sendi félögum mínum á Vestljörðum, ekki síst á Isa- firði og Hólmavík, kveðjur mínar og það er trú mín að nú sé þessum laga- og formsatriðakrókum lokið. Nú af- greiði verkalýðsfélög ekki skip ífá ísafirði, heldur veiti félögum sínum fjárhagslegan stuðning í erfiðri bar- áttu. Eigum við að láta drepa félaga okkar og afsaka okkur með formsat- riðum? Nei, boðorðið er mjög skýrt: Einn fyrir alla, allir fyrir einn. Við styðjum félaga okkar þar vestra og sýnum það í reynd,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson. ■ Framkvæmdalán úr Byggingasjóði verkamanna Furðuleg ráðstöfun - segir Öryrkjabandalagiö sem fær ekkert lán, en sótti um 40 “Við höfum ekkert heyrt, en ef það er rétt að við höfum ekkert fengið þá þykir mér það furðuleg ráðstöfun og þætti gaman að fá að vita hveijir fengu lánin,“ sagði Anna Ingvars- dóttir, framkvæmdastjóri hússjóðs Öryrkjabandalags íslands, en banda- lagið sótti um lán vegna fjömtíu íbúða, en samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins var Öryrkjabandalag- inu alfarið hafnað. Alls vom veitt lán vegna 180 íbúða. Anna segir að Öryrkjabandalagið eigi rúmlega 500 íbúðir og af þeim em áttatíu á landsbyggðinni. „Þörfm virðist vera endalaus," segir hún, því þrátt fyrir að bandalagið hafi eignast margar íbúðir á skömmum tíma, hefst ekki undan eftirspuminni. Á síðustu ámm hefur Öryrkjabandalag- ið fengið lán vegna þriggja til tuttugu íbúða á ári. ■ Messías, fríkirkja Ætla að stöðva fóstureyðingar Félagar í fríkirkjunni Messíasi ætla sér að koma í veg fyrir frekari fóstureyðingar hér á landi. Hluti af baráttu þeirra er þegar hafinn, en söfnuðurinn hefur sent frá sér dreifi- bréf þar sem ætlast er til að fólk sendi til alþingismanna eða ráðherra. í bréfi trúfélagsins segir að í þau tuttugu ár sem fóstureyðingar hafa verið leyfðar hér á landi hafi fjórtán þúsund fóstrum verið eytt. Þá em settar fram fjórar spuming- ar, en þær em þessar: „Hvemig við- móti mætir kona sem íhugar fóstur- eyðingu - eru henni boðin önnur úr- ræði eða stuðningur til að koma í veg fyrir fóstureyðingu? Hvemig famast konum sem gengist hafa undir fóst- ureyðingu? Hvemig líður læknum, hjúkmnarliði og félagsráðgjöfum sem staðið hafa að fóstureyðingu? Hvað gengur hið ófædda bam í gegn- um við fósureyðingu, skynjar það angist og upplifir það þjáningu við dauðann?" Séra Guðmundur Öm Ragnarsson er forvígismaður fríkirkjunnar Mess- ías. — Þórarinn skrifar um bragfræði Þórarinn Eldjám er nýr pistlahöfund- ur Alþýðu- blaðsins og fer á kostum í sinni fyrstu grein sem birtist á blaðsfðu 2 í blaðinu í dag. Pistlar Þórar- ins, sem fjalla um bragfræði, munu birtast aðra hvora viku. Á móti Þórami skrifar Hjör- leifur Sveinbjömsson.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.