Alþýðublaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 1
UMNIUMI - HILMAR
Hvítasunnuhátíð Reykjavíkurlistans æfð!
Það lá vel á borgarstjóranum og Jóhannesi Kristjánssyni, eftirhermu, þegar þau hittust í góða veðrinu í gær.
Þau hafa nefnilega ákveðiðað eyða saman kvöldi annars í hvítasunnu, þess 19. maí, þegar Reykjavíkurlistinn
heldur glæsilega hvítasunnuhátíð á Hótel Borg.
“Jú,jú,“ sagði Ingibjörg Sólrún, „ég ætla að stýra borðhaldinu, en Jóhannes að halda uppi fjörinu. Hann hefur
þegar óskað eftir að fá að stýra borgarstjómarfundi, af því hann getur hermt svo vel eftir mér, en því hefur verið
hafnað.“ Það lá ekki síður vel á Jóhannesi, sem sagði aðspurður, að hann væri að vinna að því að fá borgarstjór-
ann til að sýna með sér tangó á hátíðinni, en Reykjavíkurlistinn hefði hafnað því. Þessvegna yrðu fengnir pró-
fessjónel tangódansarar til að dansa tangóinn, en í staðinn kæmi frábær hljómsveit, Rússíbanamir, sem spiluðu
undir tangónum suðurameríska sígaunasveiflu.
“Þetta verður frábært kvöld, og einskonar upptaktur að komandi kosningabaráttu,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Að
sögn hennar verður Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, ræðumaður kvöldsins, en síðan koma fjölmörg
skemmtiatriði af öllum gerðum.
■ Bankar á Alþingi
Vilja ekki
breyta
neinu
Stjómarmeirihlutinn á Alþingi
vildi ekki samþykkja breytingartil-
lögu þriggja þingmanna jafnaðar-
manna, þar sem tekið var á launa-
kjörum og fríðindum æðstu starfs-
manna Landsbankans og Búnaðar-
bankans. Það voru þau Jóhanna Sig-
urðardóttir, Guðmundur Ámi Stef-
ánsson og Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir sem lögðu tillöguna fram
þegar verið var að fjalla um breyt-
ingu ríkisviðskiptabankanna yfir í
hlutafélög.
I breytingartillögunni segir: Við
gildistöku laga þessara skal starfs-
kjör bankastjóra, staðgengla banka-
stjóra, aðstoðarbankastjóra og for-
stöðumanna til endurskoðunar. Þrátt
fyror 9. grein skulu laun þeirra og
önnur starfskjör miðuð við laun og
starfskjör stjómenda ríkisstofnana
sem kjaranefnd ákveður. Seta þeirra
fyrir hönd hlutafélaganna í stjómum
annarra fyrirtækja eða stofnana skal
talin hluti af almennri starfsskyldu.
ferða- og dvalarkostnaður, bifreiða-
hlunnindi o.fl. skal vera hinn sami og
annarra bankastarfsmanna."
■ Allt upp í loft í pólitíkinni á Fáskrúðsfirði
Meirihluti sprengdur í dag
Framsóknarflokkurinn skilinn eftir einn í minnihluta
Mikill átakafundur verður í sveit-
arstjóm Búðarhrepps á Fáskrúðsfirði
í dag þegar fimm manna meirihluti
verður sprengdur, en alls eiga sjö
fulltrúar sæti í stjóminni.
Mikill trúnaður er um þetta mál á
Fáskrúðsfirði, en samkvæmt heim-
ildum Alþýðublaðsins sprengdu Al-
þýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur
meirihlutann á fundi í gærkvöld og í
dag mynda þessi flokkar nýjan meiri-
hluta með Óháðum, sem eiga tvo
fulltrúa, en Alþýðubandalag og Sjálf-
stæðisflokkur eiga sinn fulltrúann
hvor flokkur. Framsóknarflokkurinn
verður því einn í minnihluta og tekur
við því hlutverki af Óháðum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
verður lagður fram nýr meirihluta-
samningur á sveitarstjómarfundi í
dag. Þar er gert ráð fyrir að Sjálf-
stæðisflokkur fái oddvita og óháðir
formann bæjarráðs. Auk þess að
mynda meirihluta hafa flokkamir
þrír, sem að honum standa, gert sam-
komulag um að bjóða saman fram í
næstu sveitarstjómarkosningum, það
er næsta sumar.
Mikil óánægja er með þróun mála
í Búðarhreppi, en atvinnutækifærum
hefur stórfækkað og hefur það leitt til
þess að íbúum hefur fækkað að sama
skapi.
Framsóknarmenn hafa, síðustu
misseri, verið nær einráðir í atvinnu-
líftnu og hafa, með örlítilli undan-
tekningu, átt aðild að meirihluta
sveitastjómar í áratugi.
■ Guðmundur J. Guðmundsson, fyrrverandi formaður Dagsbrúnar og Verka-
mannasambandsins um verkfallið á Vestfjörðum
Eigum við að láta drepa félaga okkar?
- útgeröar- og peningavaldið vilja knéstja Baldur og skilja félagið eftir sundurkramið
“Ég var ungur þegar ég lærði þau
grunnsannindi að kjörorð verkalýðs-
félaga væri: „Einn fyrir alla, allir fyr-
ir einn“. Þessi gmnnsannindi virðast
eitthvað hafa gleymst, svo þýðingar-
mikil sem þau em. - Það er hryggi-
legt,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, fyrrverandi formaður
Dagsbrúnar og Verkamannasam-
bands íslands, þegar Alþýðublaðið
leitaði álits hans á stöðu verkfalls fé-
laga í Alþýðusambandi Vestfjarða, en
vel er liðið á fjórðu viku verkfalls þar
vestra. Mörg fyrirtæki á Vestfjörum
hafa gert samninga við sína starfs-
menn, en það er helst innan Verka-
lýðsfélagsins Baldurs á ísafirði sem
ekkert hefur gerst. Pétur Sigurðsson,
formaður Baldurs og Alþýðusam-
bands Vestfjarða, hefur sagt að stað-
an sé erfið, en að heimamenn séu
ekki að gefast upp.
“Verkalýðsfélagið Baldur á fsa-
firði á sér mikla sögu,“ segir Guð-
mundur. „Það hefur oft haft nokkra
sérstöðu í kjarasamningum og ekki
alltaf farið sömu leiðir og önnur fé-
lög, en engu að sfður þá hefur barátta
þess verið fyrir bættum kjömm
verkafólks á Vestfjörðum. Nú hefur
félagið staðið í verkfalli í þrjár vikur.
Útgerðar- og peningavald á Vest-
fjörðum og höfuðmiðstöðvar pen-
ingavalds í Reykjavík reyna nú að
knésetja félagið og vilja helst skilja
það eftir sundurkramið og máttlaust.
Gagnvart þessum áformum hélt ég
að verklýðsfélögin snemst til harð-
vítugra viðbragða. En hvað skeður?
Skip ífá ísafirði sem era að brjóta
verkfall fá landanir í öðmm höfnum,
nema í Reykjavík þar sem Dagsbrún
lætur ekki bjóða sér hvað sem er.
Forráðamenn þessara félaga reyna að
tína upp lagalega útúrsnúninga og
formsatriði. Þetta er ömurlegt.
Ofar þessum ómerkilegu formsat-
riðum er skylda manna að standa
með félögum sínum sem verið er að
reyna að drepa. Ég sendi félögum
mínum á Vestljörðum, ekki síst á Isa-
firði og Hólmavík, kveðjur mínar og
það er trú mín að nú sé þessum laga-
og formsatriðakrókum lokið. Nú af-
greiði verkalýðsfélög ekki skip ífá
ísafirði, heldur veiti félögum sínum
fjárhagslegan stuðning í erfiðri bar-
áttu. Eigum við að láta drepa félaga
okkar og afsaka okkur með formsat-
riðum? Nei, boðorðið er mjög skýrt:
Einn fyrir alla, allir fyrir einn. Við
styðjum félaga okkar þar vestra og
sýnum það í reynd,“ sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson.
■ Framkvæmdalán
úr Byggingasjóði
verkamanna
Furðuleg
ráðstöfun
- segir Öryrkjabandalagiö
sem fær ekkert lán, en
sótti um 40
“Við höfum ekkert heyrt, en ef það
er rétt að við höfum ekkert fengið þá
þykir mér það furðuleg ráðstöfun og
þætti gaman að fá að vita hveijir
fengu lánin,“ sagði Anna Ingvars-
dóttir, framkvæmdastjóri hússjóðs
Öryrkjabandalags íslands, en banda-
lagið sótti um lán vegna fjömtíu
íbúða, en samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins var Öryrkjabandalag-
inu alfarið hafnað. Alls vom veitt lán
vegna 180 íbúða.
Anna segir að Öryrkjabandalagið
eigi rúmlega 500 íbúðir og af þeim
em áttatíu á landsbyggðinni. „Þörfm
virðist vera endalaus," segir hún, því
þrátt fyrir að bandalagið hafi eignast
margar íbúðir á skömmum tíma,
hefst ekki undan eftirspuminni. Á
síðustu ámm hefur Öryrkjabandalag-
ið fengið lán vegna þriggja til tuttugu
íbúða á ári.
■ Messías, fríkirkja
Ætla að stöðva
fóstureyðingar
Félagar í fríkirkjunni Messíasi
ætla sér að koma í veg fyrir frekari
fóstureyðingar hér á landi. Hluti af
baráttu þeirra er þegar hafinn, en
söfnuðurinn hefur sent frá sér dreifi-
bréf þar sem ætlast er til að fólk
sendi til alþingismanna eða ráðherra.
í bréfi trúfélagsins segir að í þau
tuttugu ár sem fóstureyðingar hafa
verið leyfðar hér á landi hafi fjórtán
þúsund fóstrum verið eytt.
Þá em settar fram fjórar spuming-
ar, en þær em þessar: „Hvemig við-
móti mætir kona sem íhugar fóstur-
eyðingu - eru henni boðin önnur úr-
ræði eða stuðningur til að koma í veg
fyrir fóstureyðingu? Hvemig famast
konum sem gengist hafa undir fóst-
ureyðingu? Hvemig líður læknum,
hjúkmnarliði og félagsráðgjöfum
sem staðið hafa að fóstureyðingu?
Hvað gengur hið ófædda bam í gegn-
um við fósureyðingu, skynjar það
angist og upplifir það þjáningu við
dauðann?"
Séra Guðmundur Öm Ragnarsson
er forvígismaður fríkirkjunnar Mess-
ías.
—
Þórarinn
skrifar um
bragfræði
Þórarinn
Eldjám er nýr
pistlahöfund-
ur Alþýðu-
blaðsins og
fer á kostum í
sinni fyrstu
grein sem birtist á blaðsfðu 2
í blaðinu í dag. Pistlar Þórar-
ins, sem fjalla um bragfræði,
munu birtast aðra hvora viku.
Á móti Þórami skrifar Hjör-
leifur Sveinbjömsson.