Alþýðublaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
skoðanir
Valdboð að ofan
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur er nú
að loka biðlistum fyrir umsækjend-
um eldri eignaribúða og kaupleiguí-
búða. Astæðan er stöðug og sívax-
andi ásókn í þessar íbúðir, svo nú er
um tveggja ára bið sem þarf að sigr-
ast á áður en áfram er haldið. Þetta
þýðir að húsnæðisnefndin hefur lítið
að bjóða annað en nýjar eða nýlegar
íbúðir sem kosta 6-9 milljónir króna.
A sama tíma er borgarstjómaríhaldið
að stofna hlutafélag sem á að kaupa
leiguíbúðir af borginni.
A síðustu ámm hafa margir farið
úr leiguíbúðunum og flutt í gamlar
og ódýrar eignaríbúðir eða kaup-
leiguíbúðir. Nú hefur verið lokað fyr-
ir það. Þá er fátt eftir annað en leigu-
Pallborð
Jón frá
Pálmholti
skrifar
J
markaðurinn sem stöðugt þyngist,
húsbréfakerfið eða Búseti sem ekki
hefur fengið að byggja nema nokkur
hundmð íbúðir. Önnur félagasamtök
hafa heldur ekki fengið lán til að
uppfylla þarfir síns fólks.
Lengi hefur ásókn í leigufbúðir
verið áberandi mest síðla sumars og
fram á haust og tengdist það mest
skólunum. Nú má heita að tömin
standi allt árið. Postular fasteigna-
stefnunnar hafa oft tuggið sömu
tugguna; fólkið vill þetta! Það er
rangt eins og dæmin sýna, þetta er
valdboðið að ofan.
Byggingameistari sem ákvað að
leigja út íbúðir í fjölbýlishúsi sem
hann gat ekki selt, var stöðvaður af
Húsnæðisstofnun. Skrúfað var fyrir
lánveitingar og honum gert að segja
leigjendunum upp. Honum var hins
vegar velkomið að láta íbúðimar
standa auðar og fara sjálfur á haus-
inn!
Það em sérkennileg trúarbrögð að
krefjast þess af fólki að það geymi
hugsanlegan spamað sinn í stein-
steypu, þótt allir útreikningar sýni að
slíkt er heimskulegt bæði fyrir þann
sem sparar og fyrir þjóðfélagið. Slík-
ur spamaður skilar ekki arði í þjóðar-
búið en festir arðlaust fé á heimsku-
legan hátt. Heimilin í landinu greiða
nú um 40 milljarða á ári í fjármagns-
kostnað vegna þessarar vitleysu. Enn
fylgja þessu reddingar og uppáskrift-
ir líkt og í verðbólgunni fyrmm, en á
síðast liðnu ári borguðu 18 þúsund
manns skuldir annarra sem ábyrgðar-
menn.
En sumir græða. Lífeyrissjóðimir
hafa lengi fjármagnað húsnæðiskerf-
ið að vemlegu leyti. Sjóðfélögum er
lofað 3,5 prósent ávöxtun en þeim
sömu veitt húsnæðislán með 5-8 pró-
sent vöxtum. Vextir í félagslega hús-
næðiskerfinu em nú 2,4 prósent eða
4,9 prósent. Ríkið greiðir mismun-
inn. Stöðugt berast fréttir af góðri af-
komu lífeyrissjóðanna, sem eðlilegt
er miðað við framanskráð því venju-
legir vextir á verðtryggðum lánum
em 2-3 prósent. Það besta sem lífeyr-
issjóðimir geta gert í núverandi
ástandi er að lána hluta af ráðstöfun-
arfé sínu beint til bygginga leiguí-
búða með slíkum vöxtum. Sé leigan
svo niðurgreidd með skattlausum
húsaleigubótum og lög sett um
ákvörðun leigunnar, væri hægt að
koma til móts við þarfir fólksins sem
nú hleypur á milli leigumiðlara og
borgar hér og þar fyrir upplýsingar
um símanúmer þar sem kannski er
íbúð til leigu eða var til leigu. Flest er
þetta fólk núverandi eða verðandi
sjóðfélagar lífeyrissjóðanna. Um-
ræðan um lífskjörin, og einnig kjara-
baráttan, miðast yfirleitt við sér-
menntað fólk. Þeir sem ráða virðast
svo illa að sér um fólkið í landinu að
þeir vita ekki að um 40 prósent ís-
lenska vinnuaflsins hefur aðeins
gmnnskólamenntun.
Um síðustu áramót var 10 prósent
fjármagnstekjuskattur settur á húsa-
leigutekjur og fyrri afsláttur afnum-
inn. Þótt skatturinn teljist kannski
ekki hár, 24 þúsund krónur á ári af 50
þúsund króna leigu á mánuði, munar
suma húseigendur um hann og af-
leiðing þess era tilraunir til hækkun-
ar leigu og aukinnar neðanjarðar-
starfsemi sem þó var næg fyrir. Eig-
endur gera þá leigjendum tilboð um
leigu án skriflegs samnings, en þá
glatar leigjandinn húsaleigubótunum
og eigandinn borgar ekki skatt. Ég
hef sagt leigjendum við þessar að-
stæður að láta reikna út fyrir sig
bótaupphæðina og draga hana frá
leigunni. Ef eigandi kærir verður
hann að játa á sig skattsvik og auk
þess brot gegn 4. gr. Húsaleigulaga.
Skynsamlegast væri að fella niður
fjármagnstekjuskatt af leigu íbúðar-
húsnæðis, enda sýnist mér að ríkis-
sjóður muni lítið fitna af þeim skatti.
Höfundur er formaður
Leigjendasamtakanna.
Umræöan um lífskjörin, og einnig kjarabaráttan,
miðast yfirleitt viö sérmenntað fólk. Þeir sem
ráða virðast svo illa að sér um fólkið í landinu
að þeir vita ekki að um 40 prósent íslenska
vinnuaflsins hefur aðeins grunnskólamenntun.
Olöf Rún Skúladóttir hefur
fengið á sig nokkrar hryðjur
vegna nýja tfmaritsins Allt, til
dæmis hefur Nýju lífi og blaði
Ólafar verið stillt upp hlið við hlið
en sem kunnugt er státa bæði
blöðin af forsíðuviðtölum við kon-
ur sem úthúða fyrrum eiginmönn-
um eða sambýlingum og velta
þeim upp úr tjöru og fiðri. Þessi
kvenlega og langt í frá saklausa
skemmtun er þó ekki allt og sumt
sem er að finna í blaði Ólafar,
heldur er að finna viðtal við konu
sem fórnaði ástinni fyrir fiðluna
en hefur nú fundið hana á ný og
ólétta óperusöngkonu. Einnig við-
tal við miðaldra fegurðardottningu
og umfjöllun um fegurðarsam-
keppni íslands en nýjustu fréttir
herma að Ólöf Rún sitji í dóm-
nefnd hennar.
Eftir að sjónvarpsþátturinn Að-
för að lögum, var sýndur í
sjónvarpi og ýmislegt bendir til
að það verði að taka upp Geir-
finns og Guðmundarmál að nýju
í Ijósi lögbrota sem voru framin
við rannsóknina, hefur nýr sam-
kvæmisleikur farið eins og eldur
í sinu um höfuðborgina. Hann er
þannig: „Ef þau gerðu það ekki,
hverjir þá.“
Þar með er farið að rétta á ný í
síkvikum en því miður ekki
óbrigðulum heilabúum þjóðarinn-
ar. Fólk hefur engu gleymt nema
ef vera skyldi þvi afhverju
galdrafárið fór af stað í upphafi.
Hópur manna, með Gunnar
Smára Egilsson fremstan
er að hefja útgáfu á nýju blaði,
Fjölni. Fjölnir verður nokkuð sér-
stakt blað, prentað í stóru broti
og mun eflaust vekja athygli
þegar það kemur út. Alls munu
um sjötíu manns eiga efni í blað-
inu, sem kemur út 17. júní. Með-
al þeirra sem vinna að útgáfuna
með Gunnar Smára eru íslenska
kvikmyndasamsteypan, Þor-
valdur Þorsteinsson, Hallgrím-
ur Helgason og Huidar Breið-
fjörð. Gunnar Smári hafði sam-
band við Hagstofuna til að at-
huga hvort ekki væri í lagi að
nota nafnið Fjölnir. Þá kom í Ijós
að til er útgáfufélag sem heitir
Fjölnir, en það er gjaldþrota og
eins er til iðnaðarfyrirtæki sem
heitir Fjölnismenn, það er líka
gjaldþrota.
eira af Gunnari Smára.
Hann hefur verið með viku-
lega messugagnrýni á rás 1. Nú
hefur útvarpsráði borist athuga-
semd vegna þess. Athugasemd-
in kemur frá ættingja konu sem
höfðaði meiðyrðamál á hendur
Gunnari Smára fyrir margt löngu.
Konunni þykir varhugavert af
Ríkisútvarpinu að treysta Gunn-
ari Smára fyrir töluðu orði, þar
sem hann hafi verið dæmdur fyr-
ir skrif sín.
Bókaforlaginu Bjarti hefur
borist liðsauki, en það er
maður ekki óvanur í faginu, en
sá heitir Björn Jónasson. Björn
var aðalsprautan í Svörtu og
hvítu, þegar það forlag var og
hét.
ær fréttir berast frá Svíþjóð
að Lárus Ýmir Óskarsson
sé að hefja gerð á kvikmynd þar
í landi. Hilmar Örn Hilmarsson
mun semja og annast tónlist við
myndina.
Grænmetisbæir villta vestursins
Á að veita Everestförunum Fálkaorðuna?
Friðrik Danielsson,
efnaverkfræðingur
“Tvímælalaust."
Daníel Freyr Jónsson, nemi:
“Já, ég get alveg samþykkt það.'
Geir Ágústsson, kaupmaður:
“Ja, já.“
Aðalsteina Einarsdóttir,
húsmóðir:
“Já, alveg tvímælalaust."
Vilhjálmur Hallgrímsson,
nemi:
“Það finnst mér sjálfsagt."
v i t i m c n n
“Það er hins vegar okkar að
fylgja því eftir að menn séu
ekki að fremja lögbrot í fang-
elsi.“
Þorsteinn A. Jónsson fangelsismálastjóri, í
DT.
“Tilgangurinn með vinnunni er
að hafa ofan í sig og á, ekki
að keyra á dýrum bílum og
fara í sólarlandaferðir ár-
lega.“
Sigurður Sigurðarson í Morgunblaðinu.
“Eins og þessu er nú háttað er
því ekki mjög auðvelt að leika
sér með tölur.“
Ingibjörg Pálmadóttir, í DT.
“Jón bjartsýnn eftir tvo daga.“
Fyrirsögn í Mogganum.
“Ég var sannfærður um að
brotið hefði verið á Tryggva
Gunnarssyni og aðstoðardóm-
ararnir og fleiri voru sammála
í hléi en þegar ég sá þetta á
upptöku Sjónvarpsins rann af
mér gríman."
Kristinn Jakobsson fótboltadómari að við-
urkenna mistök, í Mogganum.
“Það er ekki línuleg frásögn í
verkinu. Það samanstendur af
þremur þáttum sem við getum
bæði sagt að sé rökleg fram-
vinda í og röklaus."
Þröstur Helgason að skrifa um sýningu ís-
lenska dansflokksins, í Mogganum.
“í hjarta mínu er mér alveg
sama, þannig séð.“
Séra Þórir Jökull Þorsteinsson, i DT, þegar
hann var spurður hvort rétt hafi verið að
hafna umsókn um leyfi á byggingu
búddamusteris á Álftanesi.
“Okkur vantar búddamusteri í
Reykholt í Borgarfirði.“
Flosi Ólafsson ( sama blaði að svara sömu
spumingu.
“Ég sé ekki ástæðu til þess
fyrir okkur að standa gegn
framkvæmdum."
Séra Bolli Gústafsson f sama blaði og
sama af tilefni.
“En um hvort búddamusteri í
sama sveitarfélagi og forseta-
setrið brýtir í bága við siða-
reglur þjóða get ég ekki tjáð
mig um því ég þekki ekki mál-
ið.“
Þórarinn Eldjárn á sama stað um sama
mál.
Hefur nokkur séð leiklistargagn-
rýnanda að degi til? Auðvitað ekki.
Þeir birtast eftir að dimma tekur - og
hafa illt í huga.
Breski rithöfundurinn P.G. Wodehouse.