Alþýðublaðið - 20.06.1997, Síða 3
ALÞÝPUBLAPW
3
FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1997
b o r q a r I í f
frá Hlemmi
því að hóa saman nokkrum strákum
sem slóu á trommur og sköpuðu
svolitla stemmningu í dauðaþögninni
sem var yfir göngu þjóðhátíðamefnd-
ar. Fréttamaður af annarri sjónvarps-
stöðinni sem hefur góð sambönd
sagði fólki í kringum sig, að hann
hefði óstaðfestar heimildir fyrir því,
að líklega væri lúðrasveit í broddi
skrúðgöngunnar. Fyrir því heyrðust
þó engar sannanir í mínum göngu-
parti.
Verkó er fræg fyrir lélegt skipulag.
En jafnvel hún, sem röltir þó yfirleitt
ekki þennan spotta á fyrsta maí nema
í félagi við örfá hundruð eða par þús-
und, passar þó að sáldra tveimur til
þremur hljómsveitum um gönguna.
Góðviljaður stuðningsmaður
Reykjavíkurlistans rifjaði upp, að
viðskilnaður Davíðs og kó hefði auð-
vitað verið með þeim hætti, að það
væri ekki hægt að ætlast til að borgin
væri að kosta uppá margar hljóm-
sveitir í tíu eða tuttugu þúsund manna
göngu, jafnvel þó það væri þjóðhátíð.
Þegar gangan kom niður á Lækjar-
torg, og ætlaði að marsera inná Aust-
urstrætið nýja reyndist það harðlæst
með rammgerðri jámstöng. Kanski
var þessi hugvitsamlega útfærsla á
lokum göngunnar hugsuð sem óvænt
uppákoma, og því er ekki að neita að
hún kom göngumönnum talsvert í
opna skjöldu. Lögreglan bjargaði
málinu á síðustu stundu, sennilega
með því að dírka upp lásinn.
Þegar hér var komið sögu ákváðum
við Birta að fínna einhvem stað, sem
hin bamavinsamlega Reykjavíkur-
borg hefði hugsað sem athvarf fyrir
leikgleði smábamanna í borginni.
Efalítið var það mannþröngin sem
gerði það að verkum, að við fundum
aldrei þennan stað. Við fundum ekki
heldur klósett enda ekki hægt að ætl-
Skrúðgöngur em sérstakur
og sjálfsagður þáttur í þjóð-
hátíðargleði alha landa.
Grúinn, sem kemur saman til
þess eins að gleðjast, magnar
af sjálfu sér upp ósýnilegan
kraft. Söngur, bumbusláttur
og orkestur, ýmist sjálf-
sprottin eða skipulögð, halda
svo uppi takti hinnar einlægu
gleði. Á sautjánda júní fara
Reykvíkingar á stefnumót
við sjálfa sig í þjóðhátíðar-
göngunni.
Vitaskuld eru skrúðgöngur
haldnar um allar trissur af
margvíslegra tilefni en af-
mælisdögum þjóðanna. Til-
brigðin við göngustefið era
því óteljandi.
I Ríó de Janeiro í Brasilíu
era skrúðgöngumar ofnar um
holdugar og hálfnaktar kon-
ur, sem eru með aukakílóin á
herfræðilega mikilvægum
stöðum. Kínverjar era minna uppá
kvenhöndina, en byggja afturámóti
sfnar göngur kringum feiknarlega
dreka úr pappír sem spúa eldi úr
sveigðum hvoftum. í San Fransiskó
eru klæðskiptingar í aðalhlutverki
hommagöngunnar meðan Irar allra
þjóða halda upp á dag Heilags Pat-
reks með því að marsera í framsókn-
argrænku undir hergöngulögum Sinn
Fein. Hefur svo hver til síns ágætis
nokkuð, einsog þar segir.
í fyrradag setti hinsvegar Þjóðhá-
tíðamefnd Reykjavíkurborgar að öll-
um líkindum heimsmet í skrúðgöngu.
Hún tók nefnilega þann kost, að láta
einhverja tugi þúsunda silast í liðlega
klukkustund ofanfrá Hlemmi og nið-
ur á Lækjartorg við undirleik ærandi
þagnar úr sjálfum sér. Það verður
seint leikið eftir af öðram. Torf-
hleðslumaður úr Ásatrúarsöfnuðinum
bjargaði því sem bjargað varð með
ast til að þrjátíu þúsund
manns gangi álfreka nema
upp á gamla móðinn. En
bakvið skúrinn á Tjamar-
göturóló pissaði Birta í sand-
inn, og fannst það meira
gaman en frúnum sem gáfu
okkur homauga meðan á því
stóð.
Framundan rólónum, miðja
vegu milli styttnanna
tveggja, tóku smábörnin
gleði sína. Þar lágu búkkar
sem virtust undan leiksviði,
sem búið var að taka burt.
Langir plankar lágu upp á
búkkana og seiddu smáböm-
in einsog segull. Þama söfh-
uðust með foreldrum sínum
fjöldi smábama sem voru
nógu skynsöm til að búa sér
sjálf til skemmtun, enda ekki
boðið upp á neitt betra ef
maður var undir fimm.
Svo fóra litlu bömin að leika
sér að því að stökkva út af búkkun-
um. Þessi saklausa gleði tók hyster-
ískan endi þegar ein móðirin gerði þá
dramatísku uppgötvun að tugir ryðg-
aðra nagla lágu upp úr plönkum, sem
gengu þvers undan búkkunum, og
milli þeirra, og var því ekki hægt að
hreyfa við.
Þá fór ég heim með Birtu.
Nú er það á allra vitorði, að Al-
þýðublaðið styður Reykjavíkurlist-
ann fram í rauðan dauðann. Það
sneiðir því hjá þeim munaði að velta
fyrir sér hvort stjómmálahreyfmg
sem skipuleggur skrúðgöngu um
spottann frá Hlemmi niður á Lækjar-
torg með þessum hætti, sé líkleg til að
vinna kosningar að ári. Hlutaðeigandi
ættu þó að velta fyrir sér, hvort hand-
hafar snilldarinnar í skipulagi þjóðhá-
tíðarinnar ættu ekki að finna sér eitt-
hvað annað til dægrastyttingar en
stjómmál.
Sjálfstæðisflokkurinn hrapar í
fylgi samkvæmt skoðana-
könnun sem verður birt á næstu
dögum, en fylgi flokksins er nú
aðeins rúmlega 35 prósent. Al-
þýðuflokkurinn og Framsókn hafa
rúm 18 prósent, Alþýubandalagið
fær um 17 prósent, Kvennalistinn
þrjú prósent og Þjóðvaki rúmlega
eitt prósent. Sjálfstæðisflokkurinn
tapar miklu, en þegar fylgi hans
var mest naut hann stuðnings
nærri 46 prósenta. Hann hefur því
á einu ári tapað fimmta hverjum
kjósenda...
Alþýðubandalagið heldur
landsfund sinn í haust, og þar
er gert ráð fyrir því að Margrét
Frímannsdóttir verði endurkjörin
formaður mótspymulítið. Þó er
Ijóst að hún hefur mætt nokkru
andstreymi innan þingflokksins og
síðustu daga hafa þannig þing-
mennimir Hjörleifur Guttorms-
son og Kristinn H. Gunnarsson
atyrt hana í fjölmiðlum eftir að upp
komst að Alþýðubandalagið hafði
keypt 45% af Helgarpóstinum án
þess að þingflokknum eða fram-
kvæmdastjóm flokksins væri gert
kunnugt um það. Varaformaður
Alþýðubandalagsins er Jóhann
Geirdal, formaður Verslunar-
mannafélags Suðumesja. Óvíst er
hvort hann sækist eftir endurkjöri,
en innan Alþýðubandalagsins telja
margir að sú sérstaða sem Krist-
inn H. hefur tekið sér í mörgum
málum, og fast að því opin and-
staða hans við Margréti muni
kristallast í því að hann bjóði sig
fram til varaformennsku. Miðað
við jafnvægishefð Alþýðubanda-
lagsins er því ekki ólíklegt að
Kristinn verði næsti formaður
flokksins...
W
Igær kom hingað til lands i opin-
bera heimsókn utanríkisráðherra
Þjóðverja, Klaus Kinkel. Staða
hans í þýskum stjómmálum er
sérstök, því undanfarin ár hefur
kanslari Þýskalands Helmut Kohl
æ meira verið að taka utanríkis-
málin inn í ráðuneyti sitt. Sú þróun
byrjaði raunar í tíð forvera Kin-
kels, Dietrich Genscher. í dag
eru því margir sem lita á Kinkel
sem einskonar varautanríkisráð-
herra, en Kohl sé hinn eiginlega
utanríkisráðherra. Þetta módel
virðist nú vera í sókn utan Þýska-
lands. Davíð Oddsson, sem hef-
ur jafnan haft dálæti á Kohl, virðist
nú hafa tekið upp sömu vinnu-
brögö gagnvart Halldóri Ás-
grímssyni og Kohl við Kinkel. (
vaxandi mæli er Davíð að taka af
Halldóri verkefni, sem ættu að
falla undir utanríkisráðherra. Inn-
an stjómarráðsins er nú skrafað
um það, að einkavinir Davíðs
Oddssonar hafi i flimtingum að
Halldór Ásgrímsson sé alveg fyrir-
taks varautanríkisráðherra...
Yeldi SR-mjöls, þjóðargjafarinn-
ar frægu, er ekki á undan-
haldi. Til þessa hefur fyrirlækið
verið með skrifstofuaðstöðu í
Hafnarstræti, en húsnæðið er víst
löngu sprungið utan af blómlegri
starfseminni. SR-mjöl hefur fest
kaup á einni hæði í Húsi verslun-
arinnar í Kringlunni. Við flutning-
inn flyst skrifstofan úr 250 fermetr-
um og í rúmlega 500 fermetra.
Þannig að betur mun fara um
Benedikt Sveinsson stjómarfor-
mann og félaga hans hér eftir en
hingað til, en með þessu er líka
styttra á milli hans helstu velda,
það er SR-mjöls og Sjóvá-AI-
mennra..
eira af SR-mjöli. Allt bendir til
þess að Jón Reynir Magn-
ússon verði settur af sem for-
stjóri, eða völd hans verða alla-
vega skert. Meðal nýju eigend-
anna er ekki mikið lof borið á störf
Jóns Reynis og þykir hann full-
gamaldags fyrir þeirra smekk...
Til allrar lukku fá ylfingarnir sem féllu á hnútaprófinu Ifka að
fara með í útileguna.
Á hvað horfir þú helst í sjónvarpi?
Jón Óskar Arason:
Bara það sem er í sjónvarp-
inu.
Kristín Hall í Götuleikhús-
inu:
Ég horfi á Ráðgátur og
fréttir.
Kristín Eysteinsdóttir tón-
listarmaður:
Ég horfi lítið á sjónvarp.
Helst á fréttir, X files og
Simpson, og Ellen á Stöð 2.
Árni Tómas Ágústsson:
X files, Simpsson og Star
Trek.
Gunnar Kristinsson Götu-
leikhúsinu:
Ég horfi afskaplega lítið á
sjónvarp.
v i t i m q n n
Ég held að það sé enginn vafi
á að norsk stjórnvöld ætlast til
þess að við sýnum meiri hörku
gagnvart norskum skipum sem
veiða í íslenskri landhelgi.
Sigurðarmálið sýnir að mínu
mati að það er þeirra ósk.
Þorsteinn Pálsson í Mogganum.
Þar sem menntamál eru póli-
tík er besta menntastefnan að
koma Sjálfstæðisflokknum út
úr menntamálaráðuneytinu í
næstu Alþingiskosningum. Sá
sem hefur setið við völd í 12
ár og spillt fjöreggi okkar á
ekki skilið annað en vera
dreginn til ábyrgðar.
Ágúst Einarsson alþingismaður í
Mogganum.
Ríkisforstjórinn á það sameig-
inlegt með Morgunblaðinu og
sósíalistum allra flokka, að
staðreyndir henta stundum illa
í málflutningi þeirra.
Birgir Þór Runólfsson, dósent í hagfræði,
að svara Jóni Sigurðssyni I Járnblendinu, í
Mogganum.
Víst er krían falleg og fim og
ver afkvæmi sín með kjafti og
klóm eins og öll önnur dýr, en
greindin, sjáðu til, Magnús,
greindin er hennar aðalvopn í
lífsbaráttunni.
Þorvaldur Hauksson, Kjalnesingur að
takast á við sveitunga sinn vegna samein-
ingarkosninga, í Mogganum.
Ég er þó sannfærður um að við
erum komnir úr fallhættu.
Sigurður Björgvinsson, annar tveggja þjálf-
ara Keflavíkur, eftir sjötta sigur liðsins í
sex leikjum, í Mogganum.
Strákarnir eru með bakteríuna
eins og ég. Heimta helst velt-
ur í hverri keppni. Sá eldri var
ekkert sérstaklega ánægður
með hvernig mér gekk í fyrra
og var farinn að halda með
Gísla G. Jónssyni.
Ásgeir Jamil Allansson torfærukappi I
Mogganum að ræða um syni sína.
Ég held að Kvennalistinn hafi
breytt öllu landslagi kvenna.
Kristín Halldórsdóttir, þingkona Kvennalist-
ans, í DT. Það er ekkert annað.
Oh, nefndu ekki svoleiðis
smámuni, við skulum hafa
þetta fróðleikssamtal. Einn
bolti, jafnvel úr leðri, það er
ekki merkilegt.
Ólafur Ketilsson, 93 ára ökumaður, í DT,
að svara þegar hann var spurður hvort
hann horfi á sjónvarp þegar dóttursonur
hans, Bjarni Frostason handboltamark-
maður er að keppa.
Syndir, sagði Jón Hreggviðsson
og rauk uppá nef sér. Ég hef aldrei
drýgt neina sýnd. Ég er ærlegur stór-
glæpamaður.
Úr íslandsklukku Halldórs Laxness.