Alþýðublaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 5
FOSTUDAGUR 4. JULI 1997
Brauðfætur Borgarleikhússins
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Lriiiinti
Eg er ekki að skjóta á neinn
Þórhildur Þorleifsdóttir kannast ekki við að hafa neitað Ll um samstarf
Leikfélag Reykjavíkur setti upp
óvenjufáar sýningar á síðasta leikári
og féll aðsókn niður um nokkur þús-
und áhorfendur frá fyrra leikári eins
og frant kemur í úttekt í nýútkomnu
hefti tímaritsins Frjáls verslun. Þór-
hildur Þorleifsdóttir vill ekki meina að
þessar tölur þýði að uppsetningar LR
í vetur hafi allar verið illa sóttar. „Oft
er það þannig að ein sýning á leikári
gengur sérlega vel og laðar til sín
flesta áhorfendur. Það þatf ekki að
þýða að aðrar sýningar hafi gengið
illa, enda eru þær yfirleitt á svipuðu
róli x aðsókn. Hins vegar munar um
hverja uppsetningu og því hlýtur
heildaraðsókn að minnka þegar upp-
setningum fækkar.“
Á LR að fylgja lögmálum markað-
arins eða gegna sérstöku menningar-
hlutverki?
„Til þess eru framlög til menning-
armála, að menningin sé ekki of háð
markaðinum. Hins vegar er aldrei á
vísan að róa þegar reynt er að setja
upp sýningar sem talið er að fólk vilji
sjá. Leikhúsið verður líka að koma til
móts við allskonur kröfur og þarfir.
Klassísk verk og óþekktir höfundar
höfða ekki oft til mjög stórs hóps sem
þýðir ekki að það eigi að sniðganga
þau. Þá er nauðsynlegt að styðja við
bakið á nýjum íslenskum leikritum og
því fylgir viss áhætta. Það er ekkert
tryggt í þessum efnum, þótt líklegt sé
að þekktir söngleikir sem eru dýrir í
uppfærslu fái aðsókn."
Þórhildur Þorleifsdóttir.
Ertu að skjóta á einhvem ?
„Ég er ekki að skjóta á neinn. Ég er
einfaldlega að benda á að það er eng-
in formúla til.“
Þú hefur sagt að Borgarleikhúsið
tapi á þvt að fá leikhópa inn í húsið.
Leikfélag Island hefur gagnrýnt þessi
ummœli. Hvernig á að skilja þetta?
„Það hafa mörg samstarfsverkefni
af ýmsum toga verið unnin í sam-
vinnu við Leikfélag Reykjavík. Sum
hafa gengið vel. Önnur illa. Það er
ekkert algilt í þeint efnum. Og ég hef
ekki látið orð falla um tap af samstarf-
inu við Leikfélag fslands. En þegar
litið er yfir margra ára reynslu af slík-
unt samstarfsverkefnum er niðurstað-
an hins vegar sú að Borgarleikhúsið
hefur Iagt meira til en það hefur feng-
ið vegna þessara verkefna. Héma er
verið að tala um meðaltal en ekki ein-
stök verkefni.
Ein af ástæðunum fyrir því að Leik-
félagið kemur út úr þessu með tapi
þegar á heildina er litið er sú að eng-
inn hefur þurft að greiða fyrir full af-
not af húsinu, og þá er ég að tala um
kostnaðinn sem fylgir því að halda
húsinu opnu, til dæmis yftr æfmga-
tímann. Þegar vel gengur höfum við
fengið greiðslu sem mætir þessum
kostnaði en ekkert er greitt þegar illa
gengur vegna þess að LR hefur deilt
áhættu með hópunum. Skuldasöfnun
Leikfélagsins frá þeim tíma sem flutt
var í Borgarleikhúsið gerir það að
verkurn að við getum ekki leyft okkur
þetta lengur."
Þið virðist samt ekki ætla að hœtta
með samstarfsverkefni því eitt slíkt
verður frumsýnt í ágúst? Er það ráð-
legt samkvœmt þessu?
„Þetta er ekki samstarfsverkefni
heldur er einfaldlega um leigu að
ræða. Það er engin ástæða til að loka
á slíkt þegar við fullnýtum ekki húsið,
en við ákveðið að breyta forminu.
Samningnum við hópinn sem frum-
sýnir í ágúst er þannig háttað að for-
svarsmenn hans ganga í ábyrgð fyrir
vissri upphæð og þurfa að greiða hana
að fullu hvemig sem fer. Framlag LR
má aldrei fara fram úr þeirri upphæð,
þannig er tryggt að leikfélagið fái
greiðslur fyrir afnotin. Þetta hefur
aldrei verið gert fyrr. Einnig er tryggð
lágmarksleiga fyrir hveija sýningu, en
ekki bara ef eitthvað er afgangs. Þessi
samningur hefur því fordæmisgildi.“
Hefur minna verið sótt um samstarf
við LR siðan þessar reglur tóku gildi?
„Það er nýverið búið að móta þær
og við höfum skýrt reglumar fyrir
þeim sem þegar hafa falast eftir sam-
starfi í vetur. Þeir sem sótt hafa um
verða síðan að ráða hvort þeir ganga
að þeirn eða draga umsóknir sínar til
baka.
Þar sem Leikfélag Islands hefur
sagt í Morgunblaðinu að þeirn hafi
verið neitað um samstarf í sumar verð
ég að segjaað það em helber ósann-
indi. Slík beiðni hefur aldrei borist,
hvorki munnleg né skrifleg. Mér er
það því hulin ráðgáta hvers vegna þeir
em með svona yfirlýsingar.“
Þú hefur sagt að Borgarleikhúsið
sé ekki samkeppnisfœrt við Þjóðleik-
húsið. Hvað áttu við tneð því?
„Þjóðleikhúsið fær það miklu meiri
pening en við, eða 300 milljónir á
móti þeim 140 milljónum sem við
fáum. Það er því langt frá því að við
sitjum við sama borð. Við getum ekki
fullnýtt húsið því við höfurn ekki efni
á því að setja upp nógu margar sýn-
ingar á leikárinu nema bæta við skuld-
imar.“
VelkQmin um barð
rferjuna Baldur
Daglegar ferðir með viðkomu í Flatey
Frá Stykkishólmi kl. 10.00 &16.30
Frá Brjánslæk kl. 13.00 & 19.30
Símar: 438-1120 Stykkishólmi
456-2020 Brjánslæk
Fax: 438-1093 Stykkishólmi
Aukið öryggi
í kortaviðskiptum í bensínsjálfsölum “
frá og með 8. júlí
Þú þarft að slá inn
PIN-númerið þegar
þú greiðir með
kredit- eða debetkorti
í bensínsjálfsölum
Til samræmis við alþjóölegar öryggisreglur í kortaviðskiptum hafa íslensku
greiðslukortafyrirtækin ákveðið í samráði við olíufélögin að frá og með
8. júlí skuli persónulegt leyninúmer korthafa (PIN-númer) notað í viðskiptum
með greiðslukortum í bensínsjálfsölum hér á landi*
* PIN-númer vegna ViSA-korta fást endurútgefin hjá viðskiptabönkunum,
sparisjóðunum og VISA ef þörf er á.
PIN-númer vegna Eurocard-korta fást endurútgefin hjá Europay á íslandi.
ÁLFABAKKA 16, 109 REYKJAVÍK simi 525 2000 - fax 525 2020
EUROPAY
í s l a n d
KREDITKORT HF.
ÁRMÚLI 28-30 • 108 REYKJAVÍK
Sími: 550 1500 • Fax: 550 1515