Alþýðublaðið - 10.07.1997, Qupperneq 1
■ Fyrirtæki á Vestfjörðum
25 milljónir úr vinnudeilusjóðum
„Við erum að vinna í uppgjörinu
núna,“ segir Kristín Jónsdóttir hjá
Vinnuveitendasambandinu um
greiðslur úr vinnudeilusjóði Sam-
bandsins til fyrirtækja á Vestfjörðum.
„Þetta verða um 25 milljónir sem
verða greiddar í allt.“
Þegar Sjúkraliðar fengu greitt úr
verkfallsjóði fyrir tveimur árum var
þeim gert að greiða skatt af því, mál-
ið fór fyrir dómstóla sem úrskurðaði
skýrt um það. Aðspurð hvort þetta
væru skattskyldar tekjur sem fyrir-
tækin fengu greiddar núna svaraði
Kristín: „Það er fyrirtækjanna að
svara því.“
„Ég geri ráð fyrir því að þær séu
skattskyldar, fyrirtæki sem skila
hagnaði borga tekjuskatt. Ég geri ráð
fyrir að sömu reglur gildi og fyrir
aðrar tekjur. Ég mun þó bera það upp
við endurskoðandann minn,“ segir
Konráð Jakobsson framkvæmda-
stjóri Harðfrystihússins í Hnífsdal.
Nauðguðu
og drapu
Þýska vamarmálaráðuneytið
hefur farið fram á tafarlausa rann-
sókn á staðhæfingum um að sex
þýskir hermenn hafi stundað
manndráp og nauðganir í frístund-
um sínum, rneðan þeir vom í þjálf-
unarbúðum fyrir friðargæsluliða í
Bosníu í apríl 1996.
Sönnunargagnið er myndbands-
spóla með upptökum sem þeir hafa
útskýrt sem senur úr borgarastyij-
öldinni í Bosníu sem þeir hafi tek-
ið í frístundum. Vamarmálaráð-
herra Þýskalands hefur lýst því yftr
að þessari ótrúlegu hegðun her-
mannanna verði refsað með há-
marksrefsingu, verði þeir fundnir
sekir.
■ Víkingahátíðin og trúarlega útvarpsstöðin Omega
Víkingahátíð beðið bölbæna
Ég vil hvetja fólk til að biðja fyrir útvarpinu,11 segir ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðar
„Við setjum okkur ekki neitt inn í
bænir fólks, hvorki gegn þeim eða
hitt. Ef þetta er smekkur þeirra sem
ráða þessari útvarpsstöð, þá verða
þeir að eiga það við sig,“ segir Jón
Halldór Jónasson ferðamálafulltrúi
Hafnarfjarðar, einn þeirra sem standa
að víkingahátíðinni sem hófst í gær.
En á kristilegu útvarpsstöðinni
Omega, sem útvarpar trúarlegu efni,
kom fram maður, sem fór með bæn. I
miðri bæninni hóf hann skyndilega
að hvetja fók til að biðja gegn Vík-
ingahátíðinni, auk þess sem einnig
var hvatt til bæna gegn byggingu
hofs og nokkrum öðmm fyrirbærum
sem honum taldist til að væm Guði
ekki þóknanlegar.
“Fólk má biðja fyrir því sem það
vill og ekki nema gott eitt um það að
segja. Við óskum þeim hinsvegar
blessunar," segir Jón Halldór.
„Ég veit ekki afhverju hann var
að óska eftir því að það væri beðið
gegn hátíðinni þetta er friðsamleg
mannelsk hátíð. Ég vil hér með
hvetja fólk til að biðja fyrir útvarp-
inu.“
Jón Halldór benti ennfremur á að
það yrði sungin miðaldamessa í kelt-
neskum stfl á sunnudag klukkan 3,
lokadegi hátíðarinnar, en allur
messusöngur verður með þeim hætti
er munkar á íslandi og frlandi sungu
á 9. og 10. öld.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist
ekki í neinn sem tengdist Omega
stöðinni í gær.
IPíSilS
■■■■