Alþýðublaðið - 11.07.1997, Síða 3
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
ÖRSOQ Cl R
Iapríl var femínistinn Helga
Kress fyrsta konan í 85 ára
sögu Háskólans til að verða for-
seti heimspekideildar. Fleiri tillög-
ur komu fram en Helga hlaut yfir-
gnæfandi stuðning. Varaforseti
Helga Kress: Nýkjörinn
eildarforseti með þrjár
bækur í fæðingu...
deildarinnar var kjörinn Jón G.
Friðjónsson, prófessor í ís-
lensku. Konur innan deildarinnar
beittu sér fyrir kjörinu beinlínis til
að hnekkja karlveldinu innan
hennar. Þess má geta að Helga
varð á sínum tíma fyrst kvenna til
að fá lektorsstöðu við hina fjöl-
mennu heimspekideild, þegar
hún var ráðin lektor í íslensku fyr-
ir erlenda stúdenta árið 1971.
Hún varð síðan önnur kona til að
verða prófessor við deildina, þeg-
ar hún var skipuð prófessor í al-
mennri bókmenntafræði og enn
eru konurnar bara tvær. Helga er
fjölvirk og um þessar mundir eru
að koma út hjá Rannsóknastofu
í kvennafræðumþrjár bækur,
sem hún á höfundarréttinn að.
Eitt er ritgerðasafn tileinkað stofn-
anda Kvennasögusafnsins, Önnu
Sigurðardóttur, þar sem Helga
er ritstjóri, annað er safn erinda
sem flutt voru á ráðstefnu um ís-
lenskar kvennarannsóknir og
Helga ritstýrir með Rannveigu
Traustadóttur, en loks kemur
svo út bókin Yfir dyrum fóstru
sem geymir greinasafn Helgu
sjálfrar...
Besti vinur Alþýðublaðsins,
Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra, opnaði í síðustu viku
nýja vinnumálaskrifstofu sem ríkið
rekur. Á sínum tíma stóð mikill
Gissur Pétursson: Enn
einn gæðingurinn á garða
Framsóknar...
styrr í þinginu um að vinnumiðl-
anir sveitarfélaganna skyldu flutt-
ar til ríkisins en Páll hafði þó sitt
fram eftir harðar deilur. Nú er Páll
búinn að ráða að skrifstofunni
nýjan forstjóra, sem í anda mann-
úðar Framsóknarflokksins sagðist
í útvarpi ætla að nota lögguna til
að elta uppi atvinnuleysingja sem
reyndu að afla sér aukatekna
með svartri vinnu. Hann leitaði að
sjálfsögðu ekki langt yfir skammt,
heldur valdi til starfans fyrrverandi
formann ungra Framsóknar-
manna, Gissur Pétursson...
Hér kann þó Alþýðublaðið að
vera á hálum ís hinnar sam-
tryggðu spillingar, því nýi forstjór-
inn á vinnumálaskrifstofunni mun
halda því fram, að Alþýðublaðið
þurfi ekki að kvarta undan sínum
hlut við stofnun skrifstofunnar.
Einn af þeim sem undirþjó málið
og sat við hlið ráðherrans, þegar
það var kynnt var nefnilega eng-
inn annar en Hrólfur Ölvisson.
En hann er rekstrarstjóri Alþýðu-
blaðsins...
Einn af þekktustu gleðigjöfum
landsins er Örn Árnason
leikari, sem hefur skemmt land-
anum jafnt í Imbakassanum á
Stöð tvö sem Spaugstofunni á
Örn Árnasona: Hnýtir flug-
ur til að losa sig við
stress...
Ríkisjónvarpinu, er einn þeirra
mörgu leikara sem er orðinn hel-
tekinn af stangaveiði. Hann á
raunar ekki langt að sækja veiði-
bakteríuna, því faðir hans Árni
Tryggvason hefur meðfram ævi-
löngum leikaraskap verið á hand-
færum frá Hrísey sérhvert sumar.
Það vita hinsvegar færri, að Örn
Árnason er með flinkari fluguhnýt-
urum landsins, og lærði þá iðju
hjá frænda sínum Jóhanni Þor-
steinssyni sem er einn af heið-
ursfélögum Stangaveiðifólags
Reykjavíkur. i síðasta tölublaði
Sportveiðiblaðsins kom fram að
þegar leikarinn er að deyja úr
stressi veit hann ekki betri
afslöppun en hnýta flugur. lila
höldnum lesendum Alþýðublaðs-
ins er bent á þessa aðferð til að
losa sig við stressið...
Þrátt fyrir svolítinn sigur
femínista með kjöri Helgu
Kress í embætti forseta heim-
spekideildar miðar hægt í jafnrétt-
ismálum i Háskólanum. i frétta-
bréfi Háskóla íslands er lýst
breytingum á stöðum við Háskól-
ann á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs. Þar kemur fram, að af þrett-
án nýráðningum eru aðeins fjórar
konur. Þær eru Ebba Þóra
Hvannberg, sem varð tölvudós-
ent, Bryndís Benediktsdóttir
lektor í heimilislæknisfræði, Ólöf
Ásta Ólafsdóttir dósent í geisla-
læknisfræði og loks var Sigríður
Þorgeirsdóttir ráðin lektor í
heimspekilegum forspjallsvísind-
um...
Við fyrstu sýn virðist jafnréttis-
baráttan í Háskólanum ganga
betur innan stjórnsýslu skólans.
Af tíu nýjum starfsmönnum sem
þar voru ráðnir á fyrstu þremur
mánuðum ársins eru nefnilega
sex konur. Þegar grannt er skoð-
að kemur þó í Ijós, að karlarnir
eru ráðnir I störf sem virðast í
fljótu bragði þyngri og háttsettari
en þau sem konurnar eru ráðnar
í. Foringi Vesturbæjarhlaupa-
hópsins, Ólafur Þorsteinsson,
bróðir Kristínar Þorsteinsdóttur
fréttakonu varð þannig deildar-
stjóri á fjármálasviði, Axel Axels-
son (sonur Axels heitins í Rafha)
varð innkaupastjóri, Skúli Svanur
Júlíusson sem var áður inn-
kaupastjóri varð deildarstjóri fast-
eigna, og Sverrir Guðmunds-
son deildarstjóri á rannsókna-
sviði. Allir karlarnir voru þannig
ráðnir í stjórnunarstöður. Aðeins
tvær kvennanna náðu þeirri upp-
hefð og hinar fjórar eru titlaðar
fulltrúar..
Meðal stangaveiðimanna er
flugan Krafla vel þekkt, en
hún er sköpunarverk eins af
þekktari fluguhnýturum og veiði-
mönnum landsins, Kristjáns
Gíslasonar. Kraflan kom fyrst
fram árið 1977, þá í sex mismun-
andi litbrigðum, og hefur reynst
afburða fiskin á lax. Nú er Kraflan
hinsvegar í fyrsta sinni á boðstól-
um frá Kristjáni í túpuformi og
reyndir veiðimenn á borð við
Eggert Skúlason spá því að
Kröflutúpan verði heitasta agn
veiðimannsins í ár...
Kristján Gíslason lætur sér
ekki nægja að hnýta flugur
og veiða laxa, heldur er hann
einnig góðkunnur veiðibókahöf-
undur. Nú í haust gefur Forlagið
út þriðju bók hans, og hún er
um þá laxa sem Kristján þekkir
öðrum betur, enda ber hún nafn
þeirra, Ofurlaxar...
Mikil starfsemi er jafnan um
helgar í þjóðgarðinum á
Þingvöllum, þar sem landverðir
bjóða upp á lengri og skemmri
Séra Heimir: Dúndurpré-
dikun í Þingvallakirkju...
gönguferðir, sérstaka dægrastytt-
ingu fyrir börn og stundum eru
fyrirlestrar um merk, söguleg efni.
Þingvallanefnd, sem lýtur skel-
eggri forystu Björns Bjarnason-
ar menntamálaráðherra, hefur
sömuleiðis nýverið sent frá sér
glæsilegt göngukort, sem gert er
af myndlistamanninum Gylfa
Gíslasyni. Þar eru helstu ömefni
merkt inná, og allar gönguleiðir.
Um helgar eru þar að auki af og
til messur, sem séra Heimir
Steinsson fyrrum útvarpsstjóri og
núverandi staðarhaldari sér um.
Prédikanir séra Heimis þykja sér-
lega merkar, enda öðrum þræði
guðfræðilegir fyrirlestrar á alþýðu-
máli, og þvi vel sóttar. Um helg-
ina var þannig troðfull kirkja hjá
séra Heimi...
Síðustu daga hafa örsagnir Al-
þýðublaðsins sagt frá vaxandi
vægi herra Ólafs Ragnars
Grímssonar í utanríkismálum.
Fleiri dæmi eru um að erlendir
Ólafur forseti: Talar um ut-
anríkismál í Suomi...
aðilar snúa sér stundum beint til
forsetaskrifstofunnar til að leita
eftir afstöðu íslands, sem ríkis-
stjórnin fer að sjálfsögðu með.
Fyrir skömmu mun þannig for-
setaskrifstofunni hafa borist erindi
frá frændum vorum Finnum, þar
sem Ólafur Ragnar er beðinn um
að halda erindi á ráðstefnu um
Eystrasalt og skýra þar afstöðu
íslands til ákveðinna þátta. Málið
varð hið vandræðalegasta því
Finnar höfðu satt að segja afar lít-
inn áhuga á að heyra álit íslenska
utanrikisráðherrans. Niðurstaðan
mun hafa orðið að forsetinn mæt-
ir en flytur öðru vísi erindi en
Finnar báðu um...
Stærsta sýningartjald landsins
reis nýlega að Lónkoti
skammt utan við Hofsós, en þar
hefur Jón Snæbjörnsson byggt
upp ferðaþjónustu sem nýtur
vaxandi vinsælda ferðalanga um
Skagafjörðinn. Tjaldið verður
jöfnum höndum notað undir
dansleiki, listviðburði og
vörusýningar. Góð aðstaða var
fyrir að Lónkoti fyrir þreytta og
þyrsta ferðalanga, þvi Jón bóndi
hefur af frábæru hugviti breytt
gamla fjárhúsinu í gistihús og þar
sem kýr bauluðu áður í fjósi er
kominn einstaklega notalegur
bar...
Sálarrannsóknaskólinn
blómstar undir stjórn
skólastjórans Magnúsar H.
Skarphéðinssonar og siðasta
árið hafa nemendur skólans lagt
á sig mikið sjálfboðaliðastarf við
að safna sögum af huldufólki.
Mýgrútur slíkra sagna er til frá
fyrri tímum en skipulegt átak í
söfnun heimilda um huldufólk
hefur nú legið niðri í tæpa öld.
Áætlað er að safnrit með úrvali
huldufólkssagna komi út í vetur.
Auk Magnúsar skólastjóra hafa
það einkum verið Reynir
Baldursson, einn af
aðstandendum skólans, og Una
Hrönn Kristinsdóttir sem hafa
stýrt vinnunni. Magnús og sveit
hans hafa meðal annars heimsótt
elliheimili víðs vegar um landið til
að safna efni og afraksturinn
verið meiri en þau áttu í upphafi
von á...
“FarSide” eftir Gary Larson
Heyrðu.
Ætlar þú að lesa tímaritið Fjölni?
Einar G. Einars: Erla Kristjánsdóttir:
Ég býst við að ég kynni Ég kannast ekkert við það.
mér það.
Borgar Magnason:
Já.
Júlíus Ólafsson: Óli Herbertsson:
Nei, ég les það örugglega Ég veit það ekki.
ekki.
m q n n
Bubbi er sennilega efni í póli-
tíkus.
Garri í DT.
Flugleiðum hefur meðal ann-
ars tekist að gera það ásætt-
anlegt að ferðast með Saga
Class, en áður þótti það hið
mesta bruðl.
Þorkell Sigurlaug’sson í Viðskiptablaðinu.
Of snemmt að vera svartsýnn.
Tryggi Guðmundsson umsjónarmaður-
maður Eddu hótelanna í DT.
Nú er ekki lengur tekið gilt að
harðstjórar kalli sig “lýðræð-
islega" á þeim forsendum að
þeir stjórni „í þágu fólksins".
Jakob F. Ásgeirsson stjórnmálafræðingur í
Mogga.
Enginn veluppalinn einstak-
lingur tekur sér orðið píka í
munn.
Ragnhildur Vigfúsdóttir i DT.
Það er því Ijóst að konur sækj-
ast eftir kennslu og umönnun-
arstörfum til þess að geta
gegnt ýmsum hiutverkum
sínum.
Þorsteinn Hákonarson framkvæmdarstjóri
í DV. Svo þeim er ætlað það hlutverk?
Bakarameistarinn og synir
hans, bökuðu vöru sína af til-
finningu, þeim var í mun að
framleiðsla þeirra væri ekki
“bara“ bakarísvara, heldur
eitthvað sem fólk hafði unun
og ánægju af að snæða.
Jóhannes Proppé syrgir lokun síns bakarís
í DV. Greinilega sannur sælikeri.
Ólafur Thors er ekki hafinn yfir
gagnrýni frekar en aðrir menn.
Hannes Hólmstein Gissurarson í Mogga.
Bandaríkjamenn eru með
hamborgararass og þar eru til
slagorð eins og „feitt er fal-
legt“ og samt máttu sofa hjá
klappstýrunni.
Magnús Einarsson í DV.
Lesendabréf um Bandríkjamenn í DV.
MT'Ht L’ ilfTT—
Það verður aldrei vel stjómað fyrr
en þeir taka við stjómartaumunum
sem langar ekki til þess.
Platón.