Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 GísCi J. Ástþórsson ritstýrði Aíþýðub(aðinu á sjötta ár. Á ritstjómartíð fians varð uppíagið mest 14.000 eintökj sextán síður dagCega og komst stundum upp í 24 síður. í spjolíi við KoCbrúnu Bergþórsdottur rifjar Gisíi upp árin á ACþýðubCaoinu Slegist víð stórfcarla tzux- *** wiigtf&a spcx fctád * irtwtttóitóbení ■**»«*4k* * *♦**•* Í***** •*»***»• Þú varst ritstjóri á Alþýðublaðinu í sjö ár, settirðu skilyrði fyrir ráðn- ingu þinni? „A þessum tímum var það venja fremur en undantekning að ritstjór- um væri fjarstýrt utan úr bæ af póli- tíkusum. Ég var leiddur fyrir þáver- andi formann flokksins og hann reyndi að komast að því hvort ég væri krati. Ég svaraði því til að með- an ég væri ritstjóri Alþýðublaðsins myndi ég að sjálfsögðu ekki skrifa á móti því. Ég komst upp með það svar. Ég setti það skilyrði fyrir ráðn- ingu minni að það yrði að vera ljóst að ég stjórnaði því hvað yrði birt í blaðinu og hvað ekki. Ég sagði að engin trygging væri fyrir því að ég myndi leggja heilu síðumar undir ræður helstu forkólfanna. Ennfremur sagði ég að ekki yrði spurt í hvaða flokki maður væri áður en sagt yrði frá því hversu mikill skúrkur hann væri. Það var gengið að þessum skil- yrðum, en reyndi fljótt á. Ég hef líldega ekki verið búinn að sitja þama nema í tvær vikur þegar formaðurinn hélt langa ræðu, sem hefði lagt undir sig einar tvær síður í Alþýðublaðinu. Ég birti fimmtán lína útdrátt úr henni og lét setja á forsíðu. Daginn eftir hringdi síminn og spurt var þungri og dimmri röddu: „Em mínar ræður ekki nógu góðar fyrir Alþýðublað- ið?“ Það reyndi einnig á þegar framámaður allmikill í flokkn- um missteig sig hroðalega. Ég sagði við samstarfsmenn mína: „Ef við segjum ekki frá því að þessi maður hafi þverbrotið lög, hvað eigum við þá að segja við litla skúrkinn þegar við birtum fréttir af skammarstrikum hans?“ Ég man líka að á tímabili vom afskaplega margar uppákomur í sambandi við Keflavíkurvöllinn, hálfgeggjaðir hershöfðingjar gengu lausir, veifandi skamm- byssum framan í sakiausa Islend- inga, og fleira miður geðslegt var aðhafst. Þessar fréttir vildu ákveðnir menn innan flokksins alls ekki láta birta, því það var talið vatn á myllu rauðu bolsanna. Þess vegna kom sú einkennilega staða upp á tímabili að þótt stórkrati væri utanríkisráðherra þá var ekki hægt að slá á þráðinn til hans heldur varð að gæta þess rækilega að hann hefði ekki pata af fréttavinnslunni svo hann færi ekki að reyna að stöðva fréttina. Síðan tókum við bara við aðfmnslunum daginn eftir." Hvernig blað vildirðu gera Al- þýðublaðið að? „Fyrirmynd mín var Daily Mirror sem var sprelllifandi blað. Við lögð- „Eg var kvaddur niður i stjornarrað fyrir hádegi einn laugardag. Ég fann hvað lá í loftinu, menn voru að gefa eitt og annaö í skyn án þess nokkurn tímann að koma sér að efninu. Á dramatísku augnabliki sagði ég: „Er verið að segja mer upp?“ Þá kom svarið: “Nei, það er ekki til um- ræðu hér á þessum fundi." - Og síðan létu þeir mig flakka." SJá tósi&i þCTTA tH OKKAR HtrD! V * i.:* n-M* ZT, * n ** ** * < ******''. : **<««*» * t***#***' *** ““ ***** ■ ÍÍSWCS^ ***** ,3 ** ***** ******* ** ■ »* *■* „ .,.♦>«♦♦ J **#*****>** - —* » *********** ***** *** — ----— Fyrsta forsíða Alþýðublaðsins undir “u: stjórn Gísla bar upp á sama tima og ... Islendingar færðu landhelgina út í 12 mílur. 12 mílur klukkan 12 var hín hressilega fyrirsögn. um mikið upp úr fyrirsögnum, höfð- um þær snarpar og stórar. Við lögð- um einnig áherslu á að vera með fáar en stórar myndir. Ég vildi gera Alþýðublaðið að góðu og hörðu fréttablaði. Ég held að það hafi tekist. Fréttir okkar skiptu þjóðfélagslegu máli en snerust ekki um það að maður hefði bitið hund. Við slógumst við stórkarlana. Eitt sinn unnum við frétt þess efnis að embættismaður hefði hyglað útlend- ingum, sem höfðu verið að aðstoða embættið, með peningagjöfum. Fréttin byggðist á heimildarmönnum sem vildu ekki láta nafn síns getið, og við höfðum í rauninni engin önn- ur gögn í höndum. Embættismenn neituðu því harðlega að fréttin ætti við rök að styðjast, hún var sögð vera haugalygi sem við hefðum spunnið upp. Alþýðublaðinu var hótað mál- sókn og við vorum óneitanlega orðn- ir dálítið taugaveiklaðir því við höfð- um engin gögn í höndunum. Þá kviknaði sú hugmynd að senda út- lendingunum, sem allt snerist um, skeyti með spumingum um helstu staðreyndir málsins. Og frá þeim kom svar þar sem þeir ítrekuðu skrif- lega það sem þeir höfðu áður sagt okkur munnlega. Þar með höfðum við gögn undir höndum. Það varð aldrei af meiðyrðamáli." Þetta hefur verið skemmtileg og samhent ritstjórn? „Þetta var afskaplega skemmtileg- ur tími. Ritstjómin var snaggarlegur hópur, sprækir menn og metnaðar- gjamir. Og okkur fannst einfaldlega svo gaman.“ Viltu ekki segja mér frá þessum mönnum? „Nei, því ég væri vís til að gleyma einhvetjum þeirra. Einn mann vil ég nefna sem var dálkahöfundur blaðs- ins, það var Vilhjálmur Vilhjálmsson, eða Hannes á Hominu. Hann skrifaði skemmtilega og tónninn í greinum hans var sá að verkalýðurinn hefði rétt fyrir sér og kratar ennþá réttara fyrir sér. Hann var afskaplega töff maður að sumu leyti og viðkvæmur að sumu leyti.“ Af hverju hœttir þú sem ritstjóri? „Blaðstjómin réð mig og hét mér stuðningi. Áki Jakobsson formaður blaðstjómar stóð alla tíð með mér, en honum var loks mjakað úr stólnum. Þá nennti ég ekki lengur að búa við það að sífellt væri verið að nudda í manni.“ Og þú hefur sagt upp? „Ég var kvaddur niður í stjómar- ráð fyrir hádegi einn laugardag. Ég fann hvað lá í loftinu, menn vom að gefa eitt og annað í skyn án þess nokkum tímann að koma sér að efn- inu. Á dramatísku augnabliki sagði ég: „Er verið að segja mér upp?“ Þá kom svarið: „Nei, það er ekki til um- ræðu hér á þessum fundi.“ - Og síð- an létu þeir mig flakka. Þegar ég kom út úr stjómarráðinu eftir hinn afdrifaríka fund hitti ég blaðamann, mikinn krata, og sagði honum að ég væri að hætta sem rit- stjóri Alþýðublaðsins. „Og hvað ætla þeir að láta þig fá?“ spurði hann. „Ætla þeir að gera þig að sendi- herra?“. En það var nú reyndar eitt- hvað annað, svo ég skellti mér bara í sfld.“ Fylgdistu með Alþýðublaðinu nœstu árin ? „í ritstjómartíð minni hafði ég alltaf fengið blaði sent heim og þeir héldu áfram að senda mér það eftir að ég var hættur. En ég var hundfúll og vildi ekki sjá það. Svo ég hringdi nokkrum sinnum og sagði þeim að hætta að senda mér þennan helvítis snepil. En það dugði ekki. Alltaf kom blaðið. Þá datt mér það snjallræði í hug að hringja og segjast óska eftir þvf að gerast áskrifandi. Ég sá blaðið ekki eftir það.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.