Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Blaðsíða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 ktaflst (i ri ítkomi f» mw VI" ssl *'~~‘!f!!í;„n.íi ,. ____. I •Uiln.A__ ^azísía i ^ Aarsnn canAi Qatt um Hitlpr nn fpkk hánt fvrir Otlatert nii y sekt, *"»«. ... Þórbergur Þórðarson sagði satt um Hitler og fékk bágt fyrir. I grein í Alþýðublaðinu árið 1934 kallaði Þórbergur Þórðarson Adolf Hitler „sadistann í kanzlarastólnum þýzka“. Ummælin féllu ekki í kramið og Þórbergi var stefnt fyrir meiðyrði Miðvikudaginn 31. október 1934 var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í land- ráðamálinu eins og Alþýðublaðið kallaði það. Þar var Þórbergur Þórð- arson dæmdur til að greiða 200 króna sekt fyrir meiðandi ummæli um Adolf Hitler í greinum í Alþýðu- blaðinu. Finnbogi Rútur Valdimars- son ritstjóri blaðsins var hins vegar sýknaður. Höfðað hafði verið opin- bert mál á hendur þeim tvímenning- um að kröfu þýska aðalkonsúlsins í Reykjavík. Ummæli Þórbergs, sem hann var dæmdur fyrir, voru í greinaflokkn- um “Kvalaþorsti nazista“, sem birt- ist í fimm hlutum í Alþýðublaðinu 6. janúar til 3. febrúar 1934. Það sem vakti gremju þýskra var að Þór- bergur leyfði sér að kalla Adolf Hitler „sadistann í kanzlarastólnum þýska“. Greinar Þórbergs birtust í þætti sem hann ritstýrði á þessum árum og kallaði „Lesbók alþýðu“. Birtist þátturinn á hverjum laugar- degi í Alþýðublaðinu. Sadistinn á kanslara- stólnum í fyrsta hluta greinarflokksins byrjar Þórbergur að lýsa því hvemig nasistar höfðu unnið að því að und- irbúa jarðveginn fyrir ofsóknir sínar. Þar segir meðai annars: “Það sannaðist þegar eftir Ríkis- þingsbrunann, að nazistamir vom eini stjómmálaflokkurinn í Þýska- landi, sem var undir þennan glæp búinn... Lognum fréttum er dreift út um landið með síma og útvarpi um tildrögin til bmnans, Sérstakir I ÞýakDland Þitðln er e ! ÞJóöa. AfvJ U4d | HWr A*rfhu kronur fangaskálar, eins konar bráðabirgð- arfangelsi, em uppmublemð með alls konar píningatækjum, svo sem stálsprotum, svipum, hlekkjum, böndum, kylfum, vatnsskjólum og laxerolíu. Og þessa sömu nótt hefj- ast kvalir og píningar, er jafnan sjálfan Rannsóknarréttinn á Spáni myndi hrylla við, ef hann mætti renna yfir þessi tæp 800 ár úr eilífð- inni, sem em milli Luciusar III og sadistans á kanzlarastólnum þýska.“ Verður framhald? Þann 12. janúar skýrði Alþýðu- blaðið frá því, að þýska aðalkonsúl- atið hefði nýlega snúið sér til for- sætisráðherra og krafist þess að rík- isstjómin kæmi í veg fyrir að fram- hald birtist af grein Þórbergs „Kvalaþorsti nazista". Á þessum tíma sat samstjóm Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks. í frétt Alþýðublaðsins þennan dag segir: „Forsætisráðherra, Ásgeir Ás- geirsson, hefur tjáð Alþýðublaðinu, að hann hafi svarað þýzka aðal- konsúlnum á þá leið, að rfkisstjómin sjái sér ekki fært að hindra útkomu blaðsins að svo kornnu, þ.e. án und- angenginnar málssóknar. Forsætis- ráðherra hefur sýnt Alþýðublaðinu kvörtun þýzka aðalkonsúlsins og farið fram á það við ritstjóm AI- þýðublaðsins að framhald greinar- innar birtist ekki“. Af háifu Alþýðublaðsins var því lýst yfir að ekki kæmi til mála að verða við þessum tilmælum. í frétt blaðsins segir meðal annars: “Alþýðublaðið mun taka þessu máli með mestu ró. Það mun birta ■•'o-cJ'" *• *•'• -.. . ■ _u framhald af grein Þór- bergs um „Kvala- þorsta nazista" eins og ekkert hafi í skorist. Það mun koma út á morgun á venjulegum tíma, svo framarlega sem stjómvöldin hafa þá ekki séð sig neydd til að banna útkomu þess eftir kröfu sendiherra Hitlers. OG ÞAÐ MUN EF TIL VILL KOMA ÚT ÞRÁTT FYRIR ÞAГ. Framhald greinar Þórbergs birtist svo eins og til stóð, laugardaginn 13. janúar og þar er Þórbergur enn við sama heygarðs- homið. Málshöfð- unar kraf- ist Þriðjudaginn 16. janúar skýrir Alþýðublaðið frá því að dag- inn áður hafi forsætisráðu- neytinu borist bréf frá þýska aðal- konsúlatinu í Reykjavík, þar sem það krefst þess í umboði þýsku rík- isstjómarinnar og eftir skipun frá henni, að íslenska stjómin láti höfða opinbert mál á hendur Alþýðublað- inu fyrir meiðandi upimæ^li um ■mfss* Alþýðublaðið minntist eins árs valda- afmælis Hitlers með þessari mynd. Undir myndinni stóð: Adolf Hitler 4 ára. þýska ríkiskanslarann, Adolf Hitler, °g.l?ýskHrífesÍÍ9rnjnfiu„|lljí)>ja.JH Þegar íslenska ríkisstjómin hafði metin Hitlers

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.