Alþýðublaðið - 01.08.1997, Page 18

Alþýðublaðið - 01.08.1997, Page 18
18 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997 Jón Baldvin Hannibalsson: Utlaginn að vestan sem notaði leiðara Alþýðublaðsins sem tilraunastofu undir nútímalega jafnaðarstefnu, og að lokum stökkbretti til að verða áhrifamesti hugmyndafræðingur seinni tíma í íslenskum stjórnmálum. und er mest var undir hans stjóm og var þá stækkað í sextán síður dag- lega. Uppsetning blaðsins undir stjóm Gísla var bylting rétt eins og hjá Finnboga Rúti aldarfjórðung áður. Annað glæsitímabil var að hefj- ast. Líklega hefur ein helsta fyrirmynd Gísla J. Ástþórssonar verið enska blaðið Daily Mirror og skandinavísk blöð í svipuðum stíl. Lögð var áhersla á stórar og djarfar fyrirsagnir og stærri myndir en áður höfðu tíðkast. I stað þess að hrúga öllu inn á forsfðuna voru aðeins ein eða tvær fréttir á henni en vísað á aðrar fréttir inn í blaðinu. Myndir á forsíðu vom oft úr hversdagslífinu en ekki bein- línis harðar fréttamyndir og var það líka nýjung. Aðaltakmark Gísla var að skjóta djarft og stórt og segja fréttir óháðar flokkspólitík. Þá var reynt að forðast langhunda í blaðinu. Opnan var til dæmis lögð undir fjöl- breytt skemmtiefni. Meðal annarra nýjunga var þátturinn Hlerað sem vom eins konar óstaðfestar smáfrétt- ir sem nú kallast í daglegu máli slúð- ur og er í flestum blöðum. Þá byrjaði Gísli sjálfur að teikna skopmyndir sem stundum var slegið upp á for- síðu. Varð þá meðal annars til per- sónan Sigga Vigga en hún birtist fyrst á síðum Alþýðublaðsins 10. nóvember 1959. Erlendum teikni- myndasögum fjölgaði líka að mun og vom stundum heil síða en það var nýjung í íslenskri blaðamennsku. Meðal teiknimyndasagna sem bytj- uðu á þessum tíma og lengi vom í blaðinu vom Krulli og Nágrannamir. Alþýðublaðið kom sannarlega með nýjan tón í íslenska blaða- mennsku undir stjóm Gísla J. Ást- þórssonar og fór hann fljótlega að hafa áhrif á önnur blöð en þau höfðu þá verið í stöðnun ámm saman. Morgunblaðið breytti til dæmis all- mikið um svip og efnistök árið 1959 og hafði Matthías Johannessen for- göngu um það. Tímanum var breytt mikið á ámnum 1960 til 1962 og árið 1961 varð gjörbylting á Vísi. Allt þetta kom í kjölfar Alþýðublaðs Gísla J. Ástþórssonar. Gísli J. Ástþórsson varð ekki lang- lífur á Alþýðublaðinu enda ekki allir forystumenn Alþýðuflokksins í takt við hugmyndir hans. Hann hætti árið 1963 en árið 1959 hafði Benedikt Gröndal orðið meðritstjóri ásamt Helga Sæmundssyni. Alþýðublaðið tekur kollnnísa Það var Gylfi Gröndal sem tók við af Gísla J. Ástþórssyni og var blaðið áfram býsna líflegt undir stjóm þeirra bræðra. Meðal nýjunga sem þá komu var baksíða í hálfkæringi og birtust þar ýmsar persónur sem sögðu álit sitt á líðandi stundu. Einnig var þar vísan sem þeir skipt- ust á að yrkja Kankvís (Axel Bene- diktsson), Lómur (Gestur Guðfinns- son) og Skúmur (Kristján Bersi Ólafsson). Teiknari blaðsins var Ragnar Lár og settu teikningar hans mikinn svip á blaðið um hríð. Valur víkingur var meðal annars persóna sem var um hríð daglega á síðum blaðsins. Þetta setti léttan svip á blaðið og andstæðingar þess töldu það orðið óttalegt léttmeti, ekki síst ef myndir af fáklæddu kvenfólki birt- ust á forsíðu en það vildi brenna við. Það hafði samt fasta menningarlega kjölfestu og sá Ólafur Jónsson gagn- rýnandi um þá hlið mála. Gylfi hætti sem ritstjóri árið 1967 en ári síðar varð Kristján Bersi Ólafsson ritstjóri ásamt Benedikt Gröndal. Árið 1968 hætti Alþýðu- flokkurinn formlega að reka Alþýðu- blaðið en við tók Nýja útgáfufélagið. Var nú margt gert til að reyna að auka veg blaðsins en þó seig jafnt og bít- andi á ógæfuhliðina. Árið 1969 var gripið til þess ráðs að gera blaðið að síðdegisblaði en sú tilraun misheppn- aðist. Það varð svo aftur morgunblað er það fór í offsett 1972. Árið 1969 varð Sighvatur Björgvinsson ritstjóri ásamt Kristjáni Bersa Ólafssyni en Benedikt Gröndal hætti. Sighvatur sagði eitt sinn í viðtali að tvisvar á ferli sínum sem ritstjóri hafi hann staðið uppi með aðeins tvo blaða- menn og þurft að gefa út tólf síðna blað; það hefði ekki verið skemmti- legt. Á þessum tíma fór blaðið ýmsa kollhnísa enda var það í rauninni í samfelldri kreppu. Vistin hjá Vísi Árið 1973 fór svo að dagblaðið Vísir tók við rekstri Alþýðublaðsins vegna fjárhagsörðugleika þess síðar- nefnda og Freysteinn Jóhannsson var ráðinn ritstjóri við hlið Sighvats Björgvinssonar. Nýjung sem vakti at- hygli í blaðinu á þessum tíma var (H)rós í hnappagatið á forsíðu en kaktusorðan á baksíðu. Sumarið 1975 var svo komið að Alþýðublaðið kom ekki út í heilan mánuð vegna fjárskorts en væringamar á Vísi, er Dagblaðið var stofnað, hristu Frey- stein þá úr ritstjórastóli. Stofnað var Blað hf. til að gefa Alþýðublaðið út og ritstjómarskrifstofur fluttar úr Al- þýðuhúsinu í Síðumúla 11. Blaðið kom út fimm daga vikunnar og var tólf síður. Báðir ritstjóramir hættu en Ámi Gunnarsson tók við ritstjóm. Reykjaprent, útgáfufélag Vísis, gaf blaðið út frá áramótum 1976. Árið 1978 á sama tíma og Alþýðuflokkur- inn vann sinn glæstasta sigur í al- þingiskosningunum, var Alþýðu- blaðið enn að veslast upp. Talað var um það í alvöru að leggja það niður en þrautalendingin var að minnka það niður í fjórar síður. Tók Alþýðu- flokkurinn þá við rekstri þess af Reykjaprenti. Pólitísk sendibréf Jóns Baldvins Á ámnum 1978 til 1979 var mikil Kolbrún Bergþórsdóttir blaðakona kveður litla blaðið sitt Hinn frjálsi andi Alþýðublaðsins í tvö ár hefur Alþýðublaðið verið stærsti þáttur tilveru minnar. Eg hef hvergi annars staðar viljað vera, og ég hefði ekki trúað því að þaðan ætti ég eftir að fara glöð í hjarta. En nú er verk að vinna við að skapa nýtt ftjáls- lynt dagblað og að þeim starfa þarf að ganga með kjarkmiklum huga og ein- beitni hins baráttuglaða jafnaðar- manns. Eg treysti mér til að taka þátt í því verkefni að skapa nýtt blað, en ég er sannfærð um að það blað mun aldrei verða gott nema hinn frjálsi og skap- andi andi Alþýðublaðsins svífi þar yfir vötnum. Það er einfaldlega svo að þetta minnsta dagblað á íslandi var einnig það besta. Líklega vegna þess að það var skrifað af hugsjón. Þar ríkti engin kyrrstaða. Hver dagur fól í sér spennu, óvæntar niðurstöður og ný kynni. Við leyfðum okkur allt, enda má líklega flokka okkur sem tilfinn- ingaríkt stemmningsfólk. Við höfðum ekki alltaf á réttu að standa og stund- um skjátlaðist okkur illa, en við vor- um þó alltaf með rækilegu lífsmarki, síspyrjandi spuminga sem okkur fannst að hlytu að skipta máli. Líf okkar snerist um þetta litla blað og við gáfum því fjörugan, áræðinn og dyntóttan anda. Við munum taka hann með okkur á nýtt blað þar sem við ætlumst til að hann fái að dafha sem aldrei fyrr. Fari á annan veg þá er sjálfhætt. Og vitaskuld verður aldrei lagt upp í för komi í ljós að fyrirheitin hafi verið blekking ein. Ég átti ævintýrarík ár á Alþýðu- blaðinu með samstarfsmönnum mín- um og vinum blaðsins. Þau eru efni í mikla grein sem ég veit að ég á eftir að skrifa um tímabil sem ég get með sanni sagt að hafi verið það ánægju- legasta á ævi minni. Vinum Alþýðublaðsins þakka ég samfylgdina. Nú er stefnt á aðra braut. Ég vona að við göngum hana saman, og að hún verði ekki síður ánægjuleg en sú sem við gengum undir merkjum þessa litla, hugrakka blaðs. Við eigum mikið verkefni fyrir óvissa um framtíð Alþýðublaðsins. Vilmundur Gylfason velti fyrir sér leiðum um framtíð blaðsins og í framhaldi af umleitunum hans varð Helgarpósturinn til sem er þannig skilgetið afkvæmi Alþýðublaðsins. Hann var kallaður óháð vikuútgáfa Alþýðublaðsins en í rekstrarlegum tengslum við það. Eftir að Helgar- pósturinn leit dagsins ljós sáu blaða- menn hans um útgáfu Alþýðublaðs- ins um hrið. Erfiðu millibilsástandi í lífi Al- þýðublaðsins lauk í byrjun septem- ber 1979 er Jón Baldvin Hannibals- son var ráðinn ritstjóri og kallaði hann blaðið „eins konar pólitískt sendibréf til safnaðarins". Sumarið 1981 varð hin magnaða Alþýðublað- skrísa milli Vilmundar Gylfasonar, er þá var afleysingaritstjóri blaðsins, og ýmissa annarra forystumanna í Al- þýðuflokknum. Verður hún ekki rak- in hér. En hún sýndi svo að ekki varð um villst að Alþýðublaðið gat enn vakið miklar geðshræringar þó að lít- ið væri. Síðla árs 1983 var Guðmundur Ámi Stefánsson ráðinn ritstjóri og fluttu þá ritstjómarskrifstofur í Ár- múla 38. Var blaðið enn í miklum fjárhagskröggum. Hinn 1. mars 1984 var nýtt útgáfúfélag stofnað um blað- ið er nefndist Blað hf. eins og áður, og var Alþýðuflokkurinn aðalhlut- hafinn. Áskriftir vora þá taldar um 3500. Guðmundur Ámi Stefánsson hætti sem ritstjóri 1985 en Ámi Gunnarsson tók á ný við. Var hann ritstjóri einn eða með öðram til 1987. Þá hóf störf sem ritstjóri Ingólfur Margeirsson og fór þá fram svoköll- uð októberbylting á blaðinu. Næsta ár gaf Helgarpósturinn upp öndina og tók þá Alþýðublaðið að gefa út Pressuna sem tók við hlutverki Helg- arpóstsins að veralegu leyti enda sögð hálfsystir hans. Verður þessi saga ekki rakin lengra. höndum. Sameinuð munum við leiða það til sigurs. Sigurjón M. Egilsson varð undrandi þegar hann hóf störf á Alþýðublaðinu Magn eða gæði? Ég hafði starfað á nokkram af „stóra“ fjölmiðlum landsins, svo sem DV og fréttastofu Ríkisútvarpsins, líka á Pressunni þegar hún gekk hvað best. Ég var vanur að lesendur og hlustendur hefðu samband og lýstu yfir ánægju með það sem ég gerði, þó var ég öllu vanari því að fólk hringdi til að kvarta undan því sem ég hafði skrifað. Mér hefur meira að segja verið stefnt fyrir dómstóla og verið dæmdur. Þegar Össur bauð mér starf á Al- þýðublaðinu hafði ég ekki skrifað fréttir í nokkum tíma. Meðal annars vegna þess að áreiti fólks pirraði mig, eða það minnir mig að minnsta kosti. En Alþýðublaðið, svo lítið blað, hlaut að vera í friði frá lesend- um, svo ég tók boðinu. Ekki síst þeg- ar mér var hugsað til þess sem Bjöm Hafberg, sem var blaðamaður á Al- þýðublaðinu, þegar ég var á Press- unni og blöðin deildu með sér kaffi- stofu, sagði eitt sinn þegar ég hafði sætt allskyns athugasemdum í nokkum tíma: „Hvað era lesendur alltaf að hafa samband við þig. Eng- inn hringir í mig.“ En það var nú nokkuð annað. Ég varð undrandi strax á fyrstu dögum mínum hjá Alþýðublaðinu vegna þess hversu sterk viðbrögð lesenda blaðsins eru. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það var ekki bara vegna þess sem ég hafði skrifað að fólk hringdi. Alþýðublaðið á marga vini. Granur minn er sá að oft hafi skrifin verið notuð sem ástæða til að hafa samband við blaðið. í smæð sinni hefur Alþýðublaðinu tekist að eiga trausta og góða vini sem greini- lega hafa sterkar taugar til þessa litla blaðs. Ég komst að því að lesendur pirra mig ekki, ég kann vel við þá. Það sannast á Alþýðublaðinu að ekki fer alltaf saman magn og gæði. Það er sárt að kveðja Alþýðublað- ið. Ég hafði verið skotinn í því áður en ég réðst til starfa á blaðinu, en nú er ég ástfanginn og þá er allt búið. Margrét Elísabet Ólafsdóttir kveður skemmtilegasta vinnustaðinn Skemmtilegt frelsi Alþýðublaðið er skemmti- legur vinnustaður. Þar er gam- an í vinnunni. Meira gaman en á öðram vinnustöðum. Ég fullyrði það þótt viðvera mín á ritstjóm blaðsins telji ekki nema tvo mánuði, sitt hvort sumarið, þau þrjú ár sem ég hef skrifað skrykkjótt í blaðið, og það oftast að utan. Fyrir blaðamann sem eitt sinn fór af Morgunblaðinu á Pressuna og uppgötvaði um leið að hann er fyrst og fremst sá fjölmiðill sem hann vinnur fyrir í hugum viðmælenda sinna en ekki hann sjálfur, gerðu kunnugleg viðbrögð vart við sig þeg- ar ég kynnti mig í fyrsta skipti sem blaðamaður frá Alþýðublaðinu; virðing og velvild fór ekkert á milli mála. Mogginn var þá ekki eina blaðið í bænum sem einhverrar virðingar naut! En Alþýðublaðið var örugglega eitt um að njóta ósvik- innar velvildar sem þó eflaust væri nær að kalla aðdáun. Hvorki velvild né virðing hafa þó ráðið því hve gott var að vinna á Alþýðublaðinu, miklu heldur má þakka það samstilltum öndum frelsis sem jafnan svifu yfir ritstjóminni.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.