Alþýðublaðið - 01.08.1997, Síða 23
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
23
Aðdáunin á Alþýðublaðinu leynir sér ekki
í svip þessara þripgja þingkvenna, sem
allar stefna að þvi að hrinda í fram-
kvæmd draumi Alþýðublaðsins um einn,
stóran, sterkan og sameinaðan flokk
jafnaðarmanna. Frá vinstri: Bryndís
Hlöðversdóttir, rísandi stjarna innan Al-
þýðubandalagsins, Ásta R. Jóhannes-
dóttir, skelegg baráttukona fyrir bættum
almannatryggingum, og Svanfríður Jó-
hannesdóttir, varaformaður þingflokks
jafnaðarmanna.
Davíð Oddsson fullur at-
hygli að lesa fréttaskýr-
ingu um sjálfan sig, þar
sem Alþýðublaðið upp-
lýsti, að innan Sjálfstæð-
isflokksins yrði - einsog
segir á forsíðu blaðsins
sem hann er að lesa -
gríðarlegur óvinafagnað-
ur ef hann blandaði sér í
baráttuna um forseta-
embættið. Skömmu síðar
lýsti hann yfir að hann
ætlaði ekki fram...
r
Guðmundur Arni Stefánsson alþingismaður jafnaðarmanna
Afl nýrra hluta
Það eru kaflaskipti í
sögu fjölmiðlunnar á Is-
landi þegar Alþýðublaðið
er lagt í dvala. Við, vinir
blaðsins til margra áratuga,
horfum til þess að á þess-
um tímamótum geti það
orðið afl nýrra hluta og afl-
vaki nýs öflugs blaðs jafn-
aðarmanna. Alþýðublaðið
hefur gefið okkur, vinum
sínum, hina réttu línu á
hveijum morgni. Nú virðist
því hlutverki þess lokið. En
allt er breytingum háð.
Maður skyldi spyija að
leikslokum og hver veit
nema Alþýðublaðið rísi
upp á nýjan leik öflugra en
nokkru sinni fyrr. Því á
aldrei að segja aldrei.
Sæmundur Guðvinsson fyrrverandi
ritstjóri
Bragi Kristjónsson, fornbókasali og menningar-
vörður úr Vesturbænum. „Eg er grenjandi blátt
íhald,“ sagði Braai fyrir skömmu í viðtali við glans-
rit í borginni, en a fyrsta degi síðustu ritstjórnar Al-
þýðublaðsins hringdi hann til að bjóða fram krafta
sina við hvers kyns öflun heimilda úr fornum text-
um og nýjum. Hollvinur Alþýðublaðsins að lesa sitt
raunverulega málgagn í sofanum, þar sem ráðherr-
ar og rónar koma við til að fá í nefið hjá Braga...
Steingrímur Hermannsson var góður sam-
starfsmaður Alþýðuflokksins í ríkisstjórn
1987-1991, og kvaðst jafnan lesa Alþýðu-
blaðið með athygii í þeirri von um að geta
einhverju sinni náð svo langt að skilja hugs-
un kratanna. Það tókst ekki, og hann fór í
Seðlabankann...
Jakinn, Guðmundur Jóhann Guðmundsson,
sem kvað erfitt að umgangast Alþýðublaðið
því það tæki svo langan tíma að lesa það...
Silja Aðalsteinsdóttir menningarritstjóri
Vitrænustu viðtölin
Bitastæðasta slúðrið í bœnum.
Frjálsustu pistlamir.
Skemmtilegasta klippið.
Menningarfréttin á forsíðunni.
Vitrœnustu viðtölin.
Morgunkajfið verður bragðdauft án Alþýðublaðsins.
Helgi Hjörvar framkvæmdastjóri
Mjólkurferna í stað
Alþýðublaðsins
Alþýðublaðið var lengst af litlaust
og leiðinlegt blað og þess hefði eng-
inn saknað fyrir nokkrum árum. Nú
hin síðari misseri hafa gamlir Þjóð-
viljamenn hins vegar veitt blaðinu
forstöðu og fyrir vikið hefur það í
senn verið ferskasta og flottasta blað-
ið. Starfsfólk þess hefur enda jafnóð-
um verið keypt á aðra fjölmiðla, vin-
sæla útvarpsþætti, glanstímarit, sjón-
varpsfréttastofur og nú hefur KEA
loks keypt allan kontórinn. Og er þá
nokkuð nema mjólkurfernan að lesa
á morgnanna?
Alþýðublaðið
þykir nú eitt
geta bj argað DT
Leiðir mínar og Alþýðublaðsins
hafa legið saman af og til í nær ald-
arfjórðung. Síðast í
byrjun þessa árs þegar
ég ritstýrði blaðinu um
skeið er það hafði enn
einu sinni fengið snert
af bráðkveddu. Sem
betur fer kom ekki í
minn hlut að kasta rek-
unum því andlátið dróst
á langinn meðan leitað
var tilboða í útförina. Á
langri göngu sinni var
Alþýðublaðið oft stór-
blað, burtséð frá upp-
lagstölum og blaðsíðufjölda. Þökk sé
fjölmörgum snillingum sem þar
héldu á penna. Alþýðublaðið hafði
jafnan sérstöðu á blaðamarkaðnum,
en fékk sjaldan þá út-
breiðslu sem það átti
skilið. Engu að síður
þykir nú það eitt geta
bjargað rekstri DT að
Alþýðublaðið leggi upp
laupana. Ég þakka
ánægjulega samfylgd
og harma brotthvarfið.
Eftir stendur hitt stór-
blaðið á íslandi, Morg-
unblaðið. Sem betur fer
eru engar líkur á að
Morgunblaðið missi
sjálfræðið og verði keypt til að hætta
útgáfu.