Vísir - 13.03.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 13.03.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. mars 1976 3 Fagmenn, sem hægt er að nota bæði til sjós og lands — Atvinnumöguleikar eru mjög góðir fyrir vélstjóra i dag, sagði Andrés. Vélstjórar eru fagmenn, sem hægt er að nota bæði til sjós og lands. — Stórhluti fer reyndar enn i að þjónusta flotann, sagði hann, en fiskimiðin eru að verða upp- urin og þá fara þessir menn i smáiðnaðinn og höfum við þess mörg dæmi um vélstjóra þar i fremstu röð. — Vélstjóra getur þú fundið viða, hélt hann áfram. Nægir að nefna orkuverin, frystihús og bræðslur, vélaverkstæði og smiðjur svo eitthvað sé nefnt. Sem dæmi um hversu hagnýtt þetta nám er má minna á þegar vélskólanemar á 3. stigi fóru upp á Akranes i fyrra og lag- færðu kynditæki bæjarbúa. Aætluðu þeir sparnað af þessu nema um 450 milljónum króna ef gerðar yrðu um allt land. Einnig má nefpa að nú nýverið gerðu þeir breytingar á Akra- borginni, þannig að vélar skips- ins brenna nú svartoliu i stað gasoliu áður. Sparnaður af þessu er um 50% af eldsneytis- kostnaði. —VS. — Hún tekur sig fagmannlega út við smlðarnar, eini kvenvélstjór- inn, sem við eigum. Guðný Petersen stundar nú nám á öðru stigi. „Smáfiskadráp- ið er of mikið" — segir Ólafur K. Pálsson fiskifrœðing- ur nýkominn úr rannsóknarleiðangri „Smáfiskadrápið er of mikíð. Við mældum afla nokkurra togara sem ver- ið var að landa úr. Kom í Ijós að tæpur helmingur afla þeirra sem veitt höfðu út af norðurlandi var smáfiskur. Ástandið var hins vegar skárra í afla togara sem veitt hafði út af austurlandi." Þetta sagði ólafur Karvel Pálsson, fiski- fræðingur, sem fyrir nokkru kom úr leiðangri á hafrannsóknaskipinu Hafþóri þar sem athug- anir voru gerðar á smá- fiski út af norður-, norð- austurlandi og allt að Lónsdýpi. Ólafur sagði, að Hafrann- sóknastofnunin reiknaði út hluta smáfisks með þvi að telja smá- fiskinn i aflanum. ,,Ég held, að niðurstöður at- hugananna sýni nokkurn veginn ástandið eins og það er i lönduð- um afla sem fenginn er úti fyrir norðurlandi. Eitthvað úrkast er óhjákvæmilegt þar sem smá- fiskur er þarna þannig að á- standið er heldur verra miðað við veiddan afla. óiafur Karvel Pálsson: „Þurf- um að auka möskvastærð og koma á kerfisbundnum rann- sóknum og eftirliti með ástandi smáfisksins.” Smáfiskur er á þessu svæði og þvi er ekki hægt að komast hjá nokkru smáfiskadrápi þarna.” AUKA MÖSKVASTÆRÐ Hefur verið rætt um að friða svæðið út af Norðurlandi? „Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það enn sem komið er. En um það verður rætt á næstunni. Það yrði til mikilla bóta að auka möskvastærðina i 155 millimetra a.m.k. En meðan núverandi möskvastærð helst verður um að ræða smáfiska- dráp. Ég tel æskilegt að komið verði á kerfisbundnum rannsóknum á þriggja mánaða fresti þar sem athugað verði ástand smáfisks- ins. Þess á milli þarf að koma aukið eftirlit, ef koma á i veg fyrir smáfiskadráp. Núna er ekkert skipulag á sliku eftirliti. Við komum úr leiðangri okkar fyrir tveimur vikum, en engin áætlun er um að fara i sérstakar eftirlitsferð- ir. Enda er ekki til neitt sérstakt skip til þessa. GERÐUM RÁÐ FYRIR MEIRI SMÁFISKI Komu niðurstööur rannsókn- anna ykkur á óvart? „Það má segja að við höfum gert ráð fyrir meiri smáfiski. Uppistaðan i smáfiskinum eru þorskárgangar frá 1973 og 1972. 1973 árgangurinn hefur alltaf verið álitinn afar sterkur. En i rannsóknunum kom hann ekki eins sterkur út og við bjuggumst viö. 1972 árgangurinn var hins vegar sterkari en við bjuggumst við. Mjög litið fékkst úr árgöngun- um frá 1974 og 1975 eins og reyndar kemur heim og saman við niðurstöður seiðarannsókna. —EKG Aðdragandi árekstranna á miðunum í gœr: Júnó sigldi út í bláinn, en Týr stefndi á togarana Frá óla Tynes, blaða- manni Vísis, um borð « varðskipinu Tý á miðun- um fyrir austan land: Freigátan Júnó sigldi i dag (föstudag) tvisvar sinnum á Tý, og varð fyrri áreksturinn sá harðasti sem Týr hefur orðið fyrir i þorskastriðinu. Enda cr varðskipið mikið beyglað, frá stefni og tiu tii fimmtán metra aftur með bóg. Guðmundur Kjærnested, skipherra, segir þó að skemmdirnar séu svo ofarlega að sjóhæfni skipsins sé söm og áður. Júnó tók á móti okkur þegar við komum á miðin á fimmtu- dag. Nokkru áður hafði Nimrod þota flogið yfir varðskipið og til- kynnt um stöðu^þess. Júnó hefur fylgt Tý eins og skuggi siðan. Lónuðu samsíða Frá þvi snemma i morgun hafði Guðmundur Kjjprnested lónað fram og aftur i grennd við niu breska togara sem voru að veiðum. Freigátan gætti þess að halda sig alltaf á milli togar- anna og varðskipsins, þannig að ekki var hægt að komast að þeim. Freigátan og varðskipið sigldu þvi bara samsiða á litilli ferö, og menn tóku myndir hver af öðrum á milli skipanna. Gildran lokast Ég var satt að segja orðinn dálitið óþolinmóður. Hverskon- ar sjóorrusta var þetta eigin- lega, að lóna þarna fram og aft- ur? Guðmundur sat sallaróleg- ur i skipherrastólnum, og brá kikinum öðru hvoru fyrir augun. Allt i einu jók freigátan ferð- ina. „Jæja,” sagði Guðmundur og steig út stólnum. Gildran sem hann hafði egnt með þolinmæði sinni var að lokast. Ég sá hana nú ekki. En mér er kannski nokkur vorkunn. Skipherrann á freigátunni sá hana nefnilega heldur ekki. „Fulla ferö, mann á stýriö"! Beint fyrir framan okkur i tveggja milna fjarlægð var togarinn Arctic Vandal. Frei- gátan ætlaði að nota þá gömlu taktik að fara fram fyrir varð- skipið og sigla þar sikk sakk á hægri ferö, til að Týr kæmist ekki aö togaranum i tima. Gallinn var bara sá að Guð- mundur hafði engan áhuga á þessum togara, enda var hann að hifa. En nú voru engin hægindastólarólegheit á skip- herranum. „Fulla ferð áfram, mann á stýrið, hringið út skipshöfn- ina!” Sirenurnar vældu um Tý, og mannskapurinn fór á harða hlaupum á sinar vigstöðvar. Jafnframt skalf varðskipið og titraði þegar 8600 hestöflum var „sleppt lausum” i vélarrúminu. Sjálfstýringin var tekin af, og Ólafur Þór Ragnarsson, báts- maöur, tók sér stöðu við stýrið. „A bakborða,” skipaði Guð- mundur, og Ólafur snarsneri stýrinu. A nokkrum augnablikum var staðan gerbreytt. Júnó sigldi út i bláinn, en Týr stefndi á fullri ferö beint á togarahópinn, sem hafði verið bakborðsmegin við freigátuna. öskur og formælingar Bresku togaraskipstjórarnir sáu nú hættuna sem þeir voru i, og mikil öskur og óhljóö hófust i talstööinni. Þeim var þó ekki beint gegn Tý, heldur Júnó, fyr- ir að láta fara svona herfilega með sig. Breski freigátuskip- stjórinn kallaði hins vegar og bað togarana að hifa hið bráð- asta. öslandi á 30 milum Liklega hefur honum runniö i skap við að láta leika svona á sig. Allar vélar voru settar á fulla ferð, og reykjarstrókarnir stóðu hátt upp úr skorsteininum um leið og freigátan snerist eins og skopparakringla. Þá átti heldur ekki að verða neitt hálfkák. Hún tók stefnu þvert á varðskipið. Það var hrópað i talstöðina að togararn- ir væru á alþjóöa veiðisvæði, en varðskipsmenn brostu bara. Svo kom vigdrekinn öslandi á 30 milna hraða. „Hart í bak, fulla ferö afturá". Hárbeittu stefni freigátunnar var beint þvert á Tý framantil. Þegar Guðmundur sá að ekki varð komist hjá árekstri, setti hann á fulla ferð afturábak, setti bógskrúfur á fullt og skip- aði að beygja hart i bak. En það dugöi ekki til. Ég hékk hálfur út um brúar- gluggann og þar sem ég hafði ekki handfestu á öðru, hélt ég krampakenndu taki i mynda- vélina mina, og skaut i ákafa. Svo skullu skipin saman meö ógurlegu braki. Týr snarhallaði á bakborða, og ég hrundi úr glugganum -- inn þó. Atlögunni 1 haldið áfram „Fulla ferð áfram,” skipaði Guðmundur, og gaf Ólafi Þór nýja stefnu. — Guð minn góður, hugsaði ég, mannandskotinn ætlar að halda áfram! Ég fékk þetta staðfest þegar ég heyrði rólega rödd Óla Vals, fyrsta stýrimanns, sem lýsti at- burðinum inn á segulband: „Varðskipið heldur nú aðförinni áfram.” Aftur siglt á Týr var nú aftur kominn á skrið og stefndi á togarahópinn. Það rauk úr spilunum þegar þeir hifðu veiðarfærin i ofboði. En Júnó var ekki hætt leikn- um. Hún kom aftur öslandi á fullri ferð. Aftur setti Guðmund- ur á fullt afturábak, og snar- beygði. En skipin skullu aftur saman, þótt höggið væri ekki eins mikið i þetta skipti. Tafirnar^nægðu þó Aftur var sett á fulla ferð. og Týr óð að togurunum. En það var um seinan. Guðmundur hafði orðið að stöðva tvisvar við árekstrana, og togararnir voru að taka inn hlerana, þegar viö komum að þeim. Þeir öskruðu óskaplega þegar Týr renndi framhjá þeim. Árangur samt Ekki var þetta þó árangurs- laus för. Togurunum var nóg boðið við þrjóskuna i Tý. Þeir hættu veiðum og tilkynntu að þeir ætluðu að sameinast öörum hóp. Þar verða þá fleiri freigát- ur til varnar en veiðisvæðið jafnframt minna, þvi nú er búið að þjappa þeim saman. Skömmu eftir ásiglinguna kom freigátan Galathea á öllu útopnuðu. Freigáturnar tvær halda sig nú báðar við Tý. Júnó er skemmd að aftanverðu, þvi þótt Týr keyrði á fullu afturá- bak, skall freigátan i varöskipið með skutinn. En svona gengur þetta til. cg þetta er á bak við sakleysislegar fréttir um að „varðskip ta'föi togarana frá veiðum". — óT.'^H

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.