Vísir - 16.03.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 16.03.1976, Blaðsíða 3
vism Þriðjudagur 16. mars 1976 vr ' Smáfiskur var 3% landaðs afla — segir starfsmaður Framleiðslueftirlits sjávarafurða ,,Að segja að hér sé um stór- kostlegt smáfiskadráp að ræða eru miklar ýkjur”, sagði Jón Páll Iialldórsson, framkvæmdastjóri á isafirði i samtali viðVisi. Frá þvi var sagt i Vísi og haft eftir Helga liallvarðssyni skip- herra að verulegt magn smáfisks hefði veiöst seint i siðuslu viku i Keykjafjarðarál. Keyndar hefur slikt mál komið upp áður en skipstjórar og út- gerðarmenn neitað þvi að um smáfiskadráp væri að ræða. Vilja fremur leigja bátana en kaupa þá Tilboð þau sem komið hafa um báta til Landhelgisgæslunn- ar eru nú i athugun hjá forstjóra gæslunnar. Að sögn Baldurs Möller, ráðuney tisstjóra I dómsmálaráðuneytinu, stendur nd yfir athugun á hugsanlegri leigu á einhverjum þessara báta. Baldur sagði að á þessum hraðbátum væru ákveðnir ágallar, sem gerðu kaup á þeim ef til vill ekki freistandi. Þeir væru miður heppilegir á Is- landsmið að efni og gerð. Hins vegar gæti vel komið til greina að leigja þessa báta, enda hraö- inn það atriði sem mest er sóst eftir. —SJ Iðnaðurinn er horn- reka í þjóðfélaginu Káðstefna um þróun iðnaðar var haldin á vegum Rannsókna- ráðs rikisins s.l. föstudag. Ráð- stefnustjóri var Davið Scheving Thorsteinsson og tjáði hann Visi, að menn hefðu verið mjög sam- mála um að taka þyrfti til við það af alvöru að byggja upp iðnað i Skúdu hvoldi með 2 mönn- um innanborðs Skdtu hvolfdi við Akureyri i fyrradag. Tveir'menn voru á skdtunni. Annar þeirra gat komið henniá réttan kjöl attur og komst um borð. Hinn varð viðskila við skdtuna og varð að sækja hann á trillu. Hvassviðri olli þvi að skút- unni hvolfdi. Atvikið gerðist um klukkan hálf sjö Skútan er fremur litil og voru mennirnir á skemmtisiglingu. Báðir voru i björgunarbelt- um. Sá sem viðskila varð við skútuna þurfti ekki að biða lengur i sjónum en i 10-15 mfnútur áður en honum var bjargað um borð i trUluna. — EA Jón Pállsagði að sjómenn vissu hvar helst væri hætta á að smá- fiskur veiddist og þeir reyndu að forðast að veiða hann enda væri þeim enginn greiði gerður með veiðum á honum. 3% aflans var smáfiskur t afla togarans Guðbjartar IS sem varm.a.aðveiðum i Reykja- fjarðarál og landaði 9. mars sfð- astliðinn reyndust aðeins um 3% vera smáfiskur, að sögn Magnús- ar Jónssonar sem starfar hjá Framleiðslueftirliti sjávaraf- urða, á Isafirði. Til viðmiðunar gat hann þess að 10% aflans mætti vera það sem kallast smáfiskur eða af stærð- inni 43 til 50 sentimetrar. Ef hann færi yfir það magn teldist það ó- vlöglegt. Magnús gat þess að misjafnt væri hvernig skipting afla vest- firsku togaranna væri. Færi þaö eftir þvi hvar aflinn veiddist og vanalega væri það svo að afli sem fengist vestarlega væri betri en sá sem veiddist austar. Magnús var spurður hvort smáfiskur væri yfirleitt innan við 10% af afla vestfirskra togara og kvað hann svo vera. Raunar væri hlutur smáfisks i aflanum langt fyrir innan 10% mörkin. En mest væri af millifiski. —EKG Heildarloðnuaf linn var í gær kominn í 285 þúsund tonn. Á sama tíma í f yrra voru komin á land 405 þúsund tonn af loðnu. landinu og búa honum það um- hverfi, sein hann gæti dafnað I. Voru ráðstefnugestir á einu máli um að taka þyrfti upp gjör- breytta stefnu i atvinnumálum, ef ekki ætti illa að fara og koma til fólksflótta úr landi innan fárra ára. Var bent á að iðnaður væri hægfara þróun, en ekki bylting — og tæki langan tima að byggja hann upp sem atvinnuveg. Eins og málum væri nú háttað væri það umhverfi sem stjórnvöld sköpuðu iðnaðinum, hvað snerti fjármál, tollamál, skattamál og menntunarmál, á þann veg að hægt væri að segja að iðnaðurinn væri homreka i þjóðfélaginu. Davið sagði, að ný fyrirtæki sem útlendingar ættu aðild að nytu allt annarra kjara af opin- berri hálfu en þau fyrirtæki, sem rekin væru af islendingum ein- göngu, enda myndu útlendingar aldrei koma til íslands með at- vinnufyrirtæki, ef þeir ættu að sitja við sama borð og islending- ar. Sagði hann að meginniðurstaða ráðstefnunnar hefði verið að iðnaðurinn þyrfti að fá jafnan rétt og aðrar atvinnugreinar og jafn- rétti við útlenda samkeppnisaðila og útlendinga á Islandi. —SJ Býður aðstöðu ú Seyð- isfirði fyrir varðskipin Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur boðið Landhelgisgæslunni alla þá aðstöðu og fyrirgreiðslu á Seyðisfirði sem verða megi til þess að auðvelda störf varð- skipsmanna við landhelgis- gæslu á Austfjarðamiðum. Vill bæjarstjórnin vekja sér- staka athygli yfirvalda á þeim möguleikum sem bjóðast á Seyðisfiröi til aukinnar þjónustu við Landhelgisgæsluna. T.d. er bent á hagkvæmni þess að hafa áhafnaskipti á varðskipunum þar eystra. Myndi það létta af hinni löngu siglingu til Reykjavlkur — og þar af leiðandi verða til aukins sparn- aðar i rekstri varðskipanna. Mætti fljúga með áhafnir skip- anna til og frá Egilsstöðum, en þaðan eru aðeins um 25 km til Seyðisfjarðar. Einnig býður bæjarstjórnin hvers konar viðgerða- og viðhaldsþjónustu og bendir á að engin þörf sé á að fara til Reykjavikur til sjóprófa, þar sem sýslumaður N-Múlasýslu sitji á Seyðisfirði. —SJ Pólýfónkórnum hafnað — Vilja eingöngu ferskt efni ó listahótíð Tilboði frá Pólýfónkórnum um að flytja H-moll messu Bachs án endurgjalds á listahátið hefur verið hafnað. Pólýfónkórinn miðar við það að flytja þetta verk um páskana. Var kórinn reiðubúinn til að taka það upp aftur tii flutnings á lista- hátíð I sumar, og gat þá fengið heimsþekkta sólóista til að syngja með kórnum. Þetta er i fyrsta skipti sem H-moll messan er flutt i heilu lagi, en kórinn flutti verkið áriö 1968 og var þaö þá stytt. Listahátiðarnefnd hafnaði þessutilboði á þeirri forsendu, að hún vildi hafa ferskt efni á listhátiö, og þar sem Pólýfón- kórinn flytur verkið fyrst um páskana, uppfyllir það ekki þetta skilyrði. — SJ Hemanált" í Hólabrekkuskóla ## Nemendur úr 9. bekk Hóla- brekkuskóla i Breiðholti héldu i sl. viku kynningu á verkum Jón- asar Arnasonar með leik og söng. Þrjár sýningar voru haldnar við góða aðsókn nemenda og foreldra þcirra — og voru menn ánægðir með „Herranótt” Hólabrekku- skóla. Myndin með textanum er úr einu atriði kynningarinnar, Delerium búbónis, en einnig var sýnt úr Allra nteina bót og Þið munið hann Jörund. Smábótahöfn við Elliðaárhólma Nú fer að hiUa undir það að smábátaeigendur i Reykjavfk fái sómasamlega aðstöðu fyrir báta sina. Áætlun um smábáta- höfn við Elliðaárhólmann hefur verið kynnt i hafnarstjórn og umhverfisráði og mun nú verða lögð fyrir skipulagsnefnd. Borgarverkfræðingur hefur unnið að undirbúningi þessa máls í samvinnu við félag smá- bátaeigenda. Snarfara. Verður i 1. áfanga aðstaða fyrir 2-300 báta fremst i Elliðaárhólma úti við Gelgjutanga. Verður byggð þarna skemma fyrir bátana og flotbryggja til að binda þá við. Að sögn Þórðar Þorbjarnar- sonar, borgarverkfræðings, er mjög hagkvæmt að nota landið sem þarna er fyrir hendi sem útivistarsvæði. Gerð smábáta hafnar er eins ódýr og verið getur. Þórður kvað ekki vera hættu á náttúruspjöllum af völdum hafnarinnar. Hún verði þannig staðsett að hún trufli ekki laxagöngur i Elliðaárnar og valdi ekki spjöllum á háu bökkunum sem eru friðaðir vegna jarðlaga, sem sýna sögu Reykjavikur frá jarðfræðilegu sjónarhomi. — SJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.