Vísir - 16.03.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 16.03.1976, Blaðsíða 4
Ráðstefna sjálfstœðismanna í Reykjavík: Hvað er framundan í verslun landsmanna Jón Magnússon Þorvarður Eliasson Björn Matthiasson Til þess að leita svars við þessari spurningu hyggst Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavik gangast fyrir eins og hálfs dags ráðstefnu um verzlunar- og neyt- endamál. Ráðstefnan fer fram á Hótel Loftleiðum, Kristalsal, 17. og 18. mars n.k., miðvikudag frá kl. 17:30 og fimmtudag frá kl. 10:00. Dagskrá: Miðvikudagur 17. mars: Kl. 17:30 Setning: Gunnar Helgason form. Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna i Reykjavik. Ávarp: Július Sæberg Ölafsson, form. undirbúnings- nefndar ráðstefnunnar. Kl. 18:00 Viðskiptaleg tengsl við umheiminn. Jón Magnússon. — Fyrirspurnir og umræður. — Kl. 19:00 Matarhlé. K 19:45 Fjármál og afkoma verslunarinnar. Þorvarður Elias- son. Kl. 20:30 Fræðslumál verslunarinnar. Valdimar Hergeirsson. Kl. 21:00 Umræðuhópar starfa. Fimmtudagur 18. mars: Kl. 10:00 Umræðuhópar Kl. 11:00 Skattamál og þjónusta er verslunin innir af hendi fyrir hið opinbera. Hjörtur Hjartarson. — Fyrirspurnir og umræður. — Kl. 12:30 Hádegisverður Kl. 13:30 Verslunarþjónusta i Reykjavik. Dr. Bjarni Helgason. — Fyrirspurnir og umræður. — Kl. 14:30 Umræðuhópar Kl. 16:00 Umræðuhópar skila af sér. Kl. 17-19 Fjármagnsstreymi verslunar — Panelumræður — Stjórnandi: Björn Matthiasson. Kl. 19:00 Matarhlé Kl. 20:30 Panelumræður. Geir Hallgrimsson, forsætisráðherra, Gunnar Thoroddsen iðnaðar- og félagsmálaráðherra, Matthias Á. Mathiesen fjármálaráðherra og Birgir Isl. Gunnarsson borgarstjóri sitja fyrir svörum. Stjórnandi Þórir Einarsson Kl. 22:30 Slit ráðstefnunnar. Bjarni Helgason Valdimar Hergeirsson Hjörtur Hjartarson. Þátttaka sé tilkynnt til skrifstofu Fulitrúaráðsins i sima 82963 eða 82900. Ráðstefnugjald er kr. 2.200 innifalið er matur og kaffi báða dagana auk ráðstefnugagna. SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Tónleikar I Háskólablói fimmtudaginn 18. marz ki. 20,30 Stjórnandi Páll P. Pálsson Einieikari Halidór Haraldsson. Efnisskrá: Jón Ásgeirsson: Fornir dansar Tsjaikovsky: Pianókonsert nr. 2 Stravinsky: Petrouschka. AÐGÖNGUMIÐASALA: Bókabúð Lárusar Blöndal Skólavörðustig Símar: 15650 Bókaverzlun Siglúsar Eymundssonar Austurstræti 18 Simi: 13135 sinfOn IlhuOmsxeit Islands rIkisi tnarpið Mj'jM'Hjói ri ‘ V *- 4 é .á ■ • Þriðjudagur 16. mars 1976 vism Silvía tók sví með trompi Trúlofun Karls Gústafs svla- konungs og hinnar þýsku Silvlu Sommerlath hefur vakið al- menna ánægju I Svlþjóð. t sjálfu sér kom ekki á óvart að konung- urinn skyldi trúlofast hcnni. Þau hafa sést saman endrum og eins I þau fjögur ár sem þau hafa þekkst. En hvorugt hefur viljað kannast við að nokkuð al- varlegt væri á ferðinni. Silvia tók svia með trompi á blaðamannafundinum sem haldinn var daginn eftir trúlof- unina. Hún brosti mikið, hló og var hnyttin i tilsvörum. Þau hjúin virtust mjög ánægð og héldust i hendur meðan þau svöruðu mörgum furðulegum spurningum. Yfir 100 blaða- menn og jafnmargir ljósmynd- arar kepptust að við að missa ekki af neinu. Kóngurinn fer i fjögurra vikna ferðalag til Bandarikj- anna innan skamms, en Silvia fer ekki með. Fjölskylda Silvíu, foreldrar og þrir bræður, komu með henni til Sviþjóðar til að hitta fjöl- skyldu Karls Gústafs i fyrsta sinn. Þau ferðuðust frá Þýska- landi til Sviþjóðar undir fölsku nafni, til að vekja engan grun. Vinsældir Karls Gústafs eru miklar I Sviþjóð. Nýlegar skoð- anakannanir sýna að 87 prósent svia eru mjög ánægðir með hann. Fingragull Silvia bar trúlofunarhring með stórum demanti. Sibylla prinsessa, móðir Karls Gústafs, átti hann áður. Konungurinn var með sléttan gullhring. En hann vildi ekki upplýsa hvað væri grafið i hann. ,,Það geymi ég i hjarta minu” sagði hanns og Silvla bætti við: „Næsta spurning?” Sænskan hennar er það góð að hún skilst vel, og ekki þarf að túlka fyrir henni þegar sænska er töluð. Parið viðurkenndi að það hefði verið ást við fyrstu sýn þegar þau hittust á Ólympíu- leikunum i Munchen fyrir fjór- um árum. Ekki upplýst um giftingardag Hjónin tilvonandi vildu ekkert segja hvenær þau mundu gifta sig. „Dagsetningin er þó ákveð- in, segjum að það verði fyrir mitt sumar” sagði Karl Gústaf. Drottningin tilvonandi var að sjálfsögðu spurð hvernig hún mundi inna hlutverk sitt af hendi. „ForSverige i tiden”, svaraði hún á ágætri sænsku. Þetta eru einkunnarorð konungsins, óþýð- anleg svo vel sé yfir á islensku. Þau Karl og Silvia sátu á ljós- drapplitum sófa meðan þau töl- uðu við blaðamenn i konungs- höllinni i Stokkhólmi. Einhver vakti athygli á þvi að fjórar systur konungsins hefðu Hið hamingjusama par á blaðamannafundinum I konungshöilinni, þar sem þau svöruðu (eða svöruðu ekki) áleitnum spurningum blaðamanna, og brostu framan i hundrað ljósmyndara. Endrum og eins hefur tekist að ná myndum af Karli og Silvlu sam- an. Þessi er frá þvl þegar þau voru fyrst að kynnast fyrir fjórum ár- um. Samband Karls og Silviu hefur verið mikið umtalsefni I blöðum. Ljósmyndarar hafa lagt á sig mikið erfiði til að ná niyndum af þeim saman, eins og t.d. þessari, þegar kóngurinn var að tappa bensini i sporthilinn sinn. „Hvenær gerðuð þið ykkur ljóst að þið munduð giftast?” spurði einn blaðamaðurinn. ,,Ég vissi það um leið”, sagði kóngur og gaf Silviu sinni koss, „en hún vissi það ekki...” Karl Gústaf sagði að Silvia hefði flutt föður sinum skilaboö- in um að kóngurinn bæði um hönd hennar. Hvað hefur Silvía til að bera? „Ég sagði bara að ég ætlaði ekki?” spurði einn blaðamann- anna áhyggjufullur. Svar Silviu drukknaði i skelli- hlátri, og hjúin þrýstu hvort annars hendur. „Hvað hefur Silvia sem aðrar konur hafa ekki?” var spurt. „Hún er Silvia, og það er allt og sumt” svaraði Karl Gústaf hlæjandi. Fögnuður i Stokkhólmi Þegar fréttin um trúlofunina hafði borist eins og eldur i sinu um höfuðborg Sviþjóðar á föstu- dag, þyrptist mannfjöldi að kon- ungshöllinni i von úm að fá að lita parið augum. Þrátt fyrir frost og snjó stóðu nokkur hundruð manns fyrir utan klukkutimum saman, en hjúin létu ekki sjá sig. Eftir blaða- mannafundinn á laugardag komu þau hins vegar út og veif- uðu til annars eins mannfjölda. Þrátt fyrir trúlofunina flytur Silvia ekki til Sviþjóðar fyrr en við giftinguna I sumar. Hún starfar enn i Innsbruck, i sam- bandi við ólympiuleikana sem þar voru haldnir. allar setið á grænum sófa þegar þær tilkynntu trúlofun sina. „Af þvi að við erum svo mörg hér, varð að skipta um herbergi, og i flýtinum gleymdist sófinn” útskýrði Karl Gústaf. að giftast, ekki að ég ætlaði að verða drottning” bætti Silvia við. „Aðvöruðu foreldrarnir yður * r

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.