Vísir - 16.03.1976, Síða 24
VfSIR
Þriðjudagur 16. mars 1976
"■l" 1 1 V 1
Loðnu-
bátar
í start-
stððu
„Það eru allir bátar i start-
stöðu” sagöi Andrés Finn-
bogason hjá Loðnunefnd i
morgun. Suðaustan hvassviðri
er nú á loðnumiöunum út af
Jökli og ekkert veiðiveður. Að
sögn Andrésar er töfin sem
orðið hefur vegna veðurs orðin
á þriðja sólarhring.
Allir loðnubátarnir halda sig
á miðunum fyrir vestan og
biða þess i vari að veður lægi.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar er spáin fyrir
l'oðnumiðin slæm i dag. Storm-
ur veröur af suð-austri en gæti
farið að lægja i nótt og vindur
snúist i suður.
— EKG
Blaða-
menn
sömdu
Samningar hafa nú tckisti deilu
blaðamanna og útgefenda. Náðist
samkomulag i morgun um kl.
átta og hafði þá fundur staðið i
sextán tima.
Samkomulagið felur i sér sömu
kjarabætur og i almennu samn-
ingunum milli ASÍ og vinnuveit-
enda, nema að 2% fara i sér-
kröfur.
Þá var gerður samningur fyrir
handritalesara en það er I fyrsta
sinn sem gerður er samningur
fyrir það fólk. Blaðamanna-
félagið mun halda félagsfund
seinni partinn á morgun þar sem
samningarnir munu verða bornir
undir atkvæði.
VS
„Stórfelld áhrif
á efnahagslífið"
,,Um þær stærðir er
að ræða að verði
tillögur meirihlutans
að veruleika hefur það
stórfelld áhrif á efna-
hagslifið”, sagði Jónas
Haralz bankastjóri er
Visir spurði hann hver
áhrif það hefði á efna-
hagslif islendinga ef
tillögur meirihluta
nefndar þeirrar sem
fjallaði um skipan og
stjórn á fiskveiðum
okkar, yrðu fram-
kvæmdar.
„Ég tel það algjöra nauðsyn
að um þessa skýrslu verði
fjallað á efnahagslegum grund-
velli”, sagði Jönas. „Hingað til
hefur það ekki verið gert. Fyrr
en það liggur fyrir er ekki hægt
að leggja dóm á skýrsluna.
Ræða þarf um hvaða efna-
hagslegu afleiðingar það myndi
hafa ef framkvæmt yrði það
sem segir i skýrslunni og hvaða
segir Jónas
Haralz banka-
stjóri um fisk-
veiðiskýrslu
efnahagslegu ráðstafanir þyrfti
að gera, til þess að það yrði
framkvæmanleet.
Hingað til hefur aðeins verið
um þessi mál fjallað frá fisk-
veiðisjónarmiði. Hitt er ekki
siður vandasamt. Hvað á til
dæmis að gera við skipin sem
ekki halda til veiða? Hvað
verður um útgerðir slikra
skipa?” -EKG
Ágjöf á Ingólfsgarði
Stórstreymi og suðaustan rok var niðri við höfn er Jim Ijósmyndari
lagði leið sina þangað i morgun. Eins og lög gera ráð fyrir við slikar
aðstæður lagði sælöðrið yfir Ingólfsgarð.
Þeir sem ekki vildu verða gegndrepa og sæbarðir urðu þvi að vera
vel á veröi þvi alltaf var hægt að búast við að gusa gengi yfir.
Hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson var i höfn enda nýlega
kominn úr rannsóknarleiðangri.
Allgóður bol-
fiskafli ó suð-
vesturhorninu
Heiidarbolfiskafii bátanna sem
landað hafa i Þorlákshöfn á
þessari vertið er nú um þrjú
þúsund fimm hundruð og niutiu
tonn, samkvæmt upplýsingum
þaðan i morgun.
Þessi afli er talinn ekki lakari
en i fyrra. Tuttugu og sjö til átta
bátar stunda nú veiðarnar, en
fleiri eru væntanlegir i hópinn
eftir loðnuna. Aflahæstur Þor-
lákshafnarbáta er Friðrik
Sigurðsson, með um 400 tonn.
i Grindavikeru komin á land á
vertiöinni 2.945 tonn, en þar eru
um fjörutiu bátar byrjaðir. Aflinn
á sama tima i fyrra var rúm þrjú
þúsund og fimm hundruð tonn.
Þess ber hins vegar að gæta að
landanir núna eru um hundrað
færri, mest vegna verkfallsins.
Jóhannes Gunnar er aflahæstur
með tvö hundruð og sautján tonn.
í Sandgerði er Bergþór afla-
hæstur með um þrjú hundruð og
sjötiu tonn. Bolfiskaflinn þar er
kominn i 2.930 tonn, en að undan-
förnu hafa landað þar tuttugu og
sex til þrjátiu og tveir bátar.
Heildaraflinn á sama tima i
fyrra i Sandgerði var um tvö-
hundruð tonnum minni en nú, en
sjóferðirnar núna eru lika orðnar
um 110 fleiri á þessari vertið.
EB
Ríkið les
minna af
Þór er að verða
fokheldur aftur
Gólgahúmor varðskipsmanna ódrepandi
Frá Óla Tynes um borð i varö-
skipinu TÝ
„Þór er nú að verða
fokheldur aftur” sagði
Þorvaldur Axelsson skip-
herra þegar hann rabbaði
við Ólaf Val Sigurðsson 1.
stýrimann á Tý í nótt.
Þegar breska freigátan
AAermaid sigldi á varð-
skipið fyrir helgi lagði
hún aftur lunninguna frá
bakka aftur að brú og
lyfti jafnframt þakinu af
klefa fyrsta stýrimanns.
Bráðabirgðaviðgerð fór
fram á Seyðisfirði um
helgina.
„Þetta er að verða fokhelt”
sagði Þorvaldur. „Stýrimaður-
inn er þó ekki fluttur inn ennþá,
en þetta er smám saman að
komast i gott lag aftur”.
Auk fyrrtalinna skemmda
vantar annan brúarvænginn á
varðskipið og fjórðung af þyrlu-
pallinum stjórnborðsmegin, eft-
ir fyrri ásiglingar. Þessar
ásiglingar eru vissulega alvar-
legar en ekkert virðist geta
drepið gálgahúmor varðskips-
manna.
Gálgahúmorinn
ódrepandi
Þorvaldur hefur fengið að
heyra ýmsar glettnar athuga-
semdir frá kollegum sinum.
Sýnishorn:
„Þú hlýtur að ná ofsahraða á
dallinum núna, það er engin
loftmótstaða af yfirbygging-
unni”. — „Það er svo litið eftir
ofansjávar á Þór að skipið
myndi ekki reka þó það hefði 9
vindstig beint á hlið”. — „Þor-
valdur má passa sig að frei-
gáturnar haldi ekki að hann sé
kafbátur og dúndri á hann djúp-
sprengjum”.
Það er frekar þungur sjór á
miðunum núna, og herskip og
varðskip sigla friðsamlega hlið
við hlið i augnablikinu. Það er
alltaf verið að biða færis og það
getur dregið til tiðinda þegar
minnst varir.
dagblöðum
— Við kaupum ekki nema 200
eintök af dagblöðunum á þessu
ári — istað 450 áður. Héma er um
mikinn niðurskurð að ræða, sem á
sér þá skýringu, að fjárhæð sú
sem varið er til þessara kaupa
hefur ekki vaxið i réttu hlutfalii
við verðbólguna. Þá hefur eitt
dagblað bæst i hópinn, sem ér
Dagblaðið. Ef við þvi ættum að
kaupa óbreyttan fjölda dagblaða
yrði ekkert eftir til styrktar
landsmálablöðum.
Þannig fórust Höskuldi Jóns-
syni, ráðuneytisstjóra i fjármála-
ráðuneytinu orð, þegar Visir innti
hann eftir þvi hvaða f járhæð væri
varið' til styrktar blaðaútgáfu og
hvernig hún skiptist.
— Fjárhæðin, sem verja á til
kaupa á blöðum skv. fjárlögum
nam 27.5 milljónum króna, sagði
hann. — Þessi fjárhæð skiptist
þannig, að 2.6 milljónir renna til
NTB á Jelöy i Noregi. Um 7
milljónir fara til ráðstöfunar
þingflokkanna i hlutfaili við þing-
mannatöluþeirra. Þetta þýðir 116
þúsund á hvern þingmann. Þess-
ari fjárhæð verja þeir til styrktar
dagblöðunum og/eða landsmála-
blöðum. Þá fara 4.5 milljónir til
kjördæmamálgagna.
— Þá eru eftir um 13.5 milljón-
ir, sagði Höskuldur, sem fara eins
og áður segir til kaupa á sex dag-
blöðum og Nýjum Þjóðmálum —
eftir þvf sem það blað kemur út.
— VS