Vísir - 27.03.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 27. mars 1976
3
Þessi mynd af Geirfinni var tekin
.1973. Er hann óþekkjanlegur fyrir
sama mann og þann sem mynd
birtist af við frumrannsókn máls-
ins. Sú mynd var tekin af honum
1968. Nýrri myndin lá fyrir frá upp-
hafi að sögn eiginkonu Geirfinns.
Haukur Guðmundsson, rannsókn-
arlögregtumaður i Keflavik, segir
hana hafa komið fram skömmu
siðar en hina. Hefur hann gefið þá
skýringu á þvi hvers vegna nýrri
myndin var ekki birt, að þeir hafi
óttast rugiing, sem torveida mundi
rannsóknina.
Hver á Pierpoint úr númer
267x?
Að sögn lögreglunnar er erfitt að
upplýsa þetta mál. Þeir menn, sem
til yfirheyrslu hafa verið teknir,
draga sinn hlut i málinu og þvi
erfitt að byggja á framburði
þeirra. Þeirsem sitja inni geta ver-
ið saklausir og kvaðst lögreglan að
sjálfsögðu rannsaka báðar hliðar.
Nauðsynlegt var að setja þá i
gæsluvarðhald til þess að hægt væri
að rannsaka málið. Ekki vildi lög-
reglan þó skýra frá yfirheyrslum
yfir mönnunum fjórum.
Dómsrannsókn i málinu hefst á
mánudag en jafnframt mun lög-
reglurannsókn halda áfram af full-
um krafti.
Meðal þess, sem lögreglan bað
um að lýst væri eftir var eigandinn
að Pierpoint armbandsúri. Kassa-
númer úrsins er 2080 en úrið sjálft
er númer 267x. — VS.
Fyrstu tón-
leikar Sinfón-
íuhljómsveitar
Reykjavíkur
eru ó morgun
Sinfóniuhljómsveit Reykja-
vikur heldur sina fyrstu
tónleika á morgun, sunnudag,
klukkan 16.00 i sal Mennta-
skólans við Hamrahlið.
Sveitin er að mestu skipuð
áhugamönnum, sem eru þó
flestir ýmist fyrrverandi at-
vinnumenn i hljóðfæraleik,
tónlistarkennarar eða
tónlistarnemar.
Tildrögin að stofnun hljóm-
sveitarinnar voru þau, að á
siðastliðnu sumri auglýsti
Garðar Cortes eftir fólki sem
hefði áhuga á að leika með i
slikri hljómsveit. Bar þetta
frumkvæði þegar mjög góðan
árangur, og i haust hófust
æfingar hjá hljómsveitinni.
Á tónleikunum á morgun
verða eftirtalin tónverk flutt:
Forleikur, eftir J.S. Bach,
Adagio funebre eftir Karl Ó.
Runólfsson, Trompetkonsert
eftir Haydn, einleikari Lárus
Sveinsson trompetleikari,
Finale for an Concert eftir G.
Bush, Little Suite eftir M. Arn-
old og Pomp & Circumstance
march nr. 4 eftir Elgar.
Vitlaust hótel
Frimerkjauppboðið, þar
sem meðal margra annarra
sjaldgæfra frimerkja verða
boðnar upp tvær seriur af
„Hópflugi itala” verður á
HótelLoftleiðum en ekki Hótel
Sögu eins og mishermt var i
blaðinu á miðvikudag. Hefst
uppboðið klukkan 14 í dag.
Fatlaðir
í starfi
Aiþjóðadagur fatlaðra er á
morgun og ber hann
einkunnarorðin Fatlaðir i
starfi.
Það hefur um árabil verið
venja Alþjóðabandalags fatl-
aðra að vekja með þessu móti
almenning tii umhugsunar um
ýmsa þá samfélagsörðugleika
sem fatlaðir eiga öðruin frem-
ur við að striða.
Vinnan er grundvöllur allr-
ar velmegunar, bæði andlegr-
ar og likamlegrar, en fatlaðir
standa mun verr að vigi en
flestir aðrir við að fá vinnu við
sitt hæfi.
Kemur þar bæði tii skortur á
hentugri vinnuaðstöðu og
hleypidómargagnvart þvi að
fatlaðir standi öðrum að baki
við vinnu. Staðreyndin er hins
vegar sú að fatlað fólk leggur
metnað sinn i að mæta vel til
vinnu og leysa störf sin sem
best af hendi.
Sjálfsbjörg beinir þeirri
eindregnu ósk til allra at-
vinnurekenda, að þeir veiti
fötluðum sömu aðstöðu og
sama rétt til atvinnu og öðrum
þegnum.
Um abstrakt-
myndir Finns
Listasafn Islands hyggst
,taka upp þá nýjung að hafa
mánaðarlega fyrirlestra um
listfræðileg efni i húsakynnum
sinum. Fyrsti fyrirlesturinn
flytur Júliana Gottskálksdótt-
ir næstkomandi mánudag kl.
20.30.
Hann heitir „Um abstrakt-
myndir Finns Jónssonar, sem
hann gerði á árunum
1922-1925.” — ÓT.
Klippingar, snyrt-
ing og matarboð
á hlutaveltu
i dag klukkan tvö opna is-
lenskir ungtemplarar hluta-
veltu i húsi iðnaðarins við
Hallveigarstig.
Þar verða vinningar af ýms-
um stærðum og gerðum og má
þar nefna keramik, heimilis-
tæki, bækur, matarborð,
klippingar og margt fleira.
Miðinn verður seldur á 100
kr. og gildir jafnframt sem
happdrættismiði, en allir eiga
að fá vinning þar sem engin
núll verða i miðaboxinu.
Ágóðann af hlutaveltunni
ætla ungtemplarar að nota til
endurbóta á aðstöðu sinni i
Templarahöllinni, en þar hafa
þeir m.a. haft diskótek á
hverju laugardagskvöldi fyrir
unglinga 13 ára og eldri og
hafa þau verið vel sótt og notið
mikilla vinsælda.
Mozart-
tónleikar
að Kjarvalsstöðum
Kammersveit Reykjavikur
heidur tónleika f samvinnu við
Reykjavikurborg á Kjarvals-
stöðum á sunnudaginn kl. 3.
Tónleikarnir eru haldnir til
að heiðra minningu Asgrims
Jónssonar, listmálara, en
hann hafði sérstakt dálæti á
tónlist Mozarts. Verða leikin 3
verk eftir Mozart: Flautu-
kvartett i D-dúr KV 285,
Sónata fyrir fiðlu og sembal i
G-dúr KVll og Klarinettu-
kvintett i A-dúr KV 581.
Flytjendur verða félagar úr
Kammersveit Reykjavikur og
Deborah Davis, sellóleikari.
Slökkviliðsmennirnir voru rúma tvo tima að ráða niðurlögum eldsins I fyrrinótt. Var það framan af
mjög erfitt, þar sem mikill reykur myndaðist frá brennandi ullar-og skinnavörum.
Gifurlegar skemmdir urðu á vörum i verksmiðjunni bæði vegna bruna og reyks. Hér gefur að lita hluta
af þvi sem eyðilagðist úti fyrir dyrum skinnalagersins.
Myndir: Jón Einar.
„Kerfið" sýnir örlœti
„Ég er furðu lostin yfir
þessum bréfaskriftunrt. Ég
hef aldrei á ævi minni átt
fasteign og hef búið í sama
leiguhúsnæðinu s.l. 50 ár,"
sagði konan þegar hún
fékk fyrir nokkru bréf frá
borgarstjóra. Þar var
henni tilkynnt að hún mætti
búast við hlutfallslega
sömu lækkun á fasteigna-
sköttum ársins 1976 og hún
hefði fengið á árinu 1975.
t fyrra fékk hún tilkynningu um
að ákveðið hefði verið að lækka
fasteignaskatta hennar um u.þ.b-
6000 krónur það árið vegna lágra
tekna. Konan fór með þá til-
kynningu á skattstofuna og gátu
starfsmenn þar ekki gefið neina
skýringu á þvi hvernig hún hefði
komist á blað sem fasteignaeig-
andi. Þess má geta að engin
önnur kona á landinu ber sama
nafn.
Hafði konan á orði, að kominn
væri timi til að hún fengi að sjá
þessa húseign sina og njóta þeirra
hlunninda sem af henni mætti
hugsanlega hafa.
—SJ
BORGARSTJORINN I REYKJAVlK
Revkjavík, 5. janúar I97b.
JGT/MB
Framtalsncfnd Reykjavíkur hefur undanfarin ár í umboði borgarráðs athugað
skattframtöl elli- og örorkulífeyrisþega og beitt heimild til lækkunar á
álögðum fasteignasköltum, skv. 3. mgr. 5. gr. laga un< tekjustofna svcitar-
félaga frá 17. marz 1972, ef lífeyrisþegarnir ná ekki ákvcðnum tekju- eða
eignamörkum.
Athugun þessi getur ekki farið fram fyrr en skattframtol hafa borizt, og
úrvinnsla gagna tekur óhjákvaanilega nokkurn tíma.
í byrjun árs sendir Gjaldheimtan í Reykjavík hins vegar út tilkynnmgar
um álagningu fastcignaskatta, enda er fyrri gjalddagi þeirra 15. janúar.
Með bréíi þessu vil ég gera þeim elli- og örorkulífeyrisþegum, sem fongu
tilkynningu um lækkun fasteignaskatta á árinu 1975 gr*in fyrir því, að
miðað við óbreyttar aðstæður þeirra, (þ.e. tekjur og eignir) mega þeir
reikna með hlutfallslega sömu lækkun á fasteignaskottum 1976.
Vakin er athygli á, að heimild til lækkunar á fasteignaskatti nær ekkt
til annarra gjalda á fasteignagjaldaseðli, s.s. vatnsskatts, brunabóta-
iðgjalds og lóðarleigu.
N/-M
Binrir ísl. Gunnarsson .
##
200 mílum'' dreift á
Út er komið blað sem nefnist
„200 niiles” og inniheldur ýms-
an fróðlcik um landhelgismálið.
Það er Landheigisféiagið sem
gefur blaðið út og cr það prentað
á ensku.
Blaðið liggur viða frammi'hér
á landi. Að auki mun ætlunin að
senda það til útlanda. bar á
meðal verður það sent á
Hafréttarráðstefnuna og þar
verður þvi dreift.
Blaðið inniheldur viðtöl við
ýmsa framámenn i islensku
atvinnulifi sérstaklega
sjávarútvegi. Rætt er við tvo
skipherra landhelgisgæslunnar.
fulltrúa sjómanna og ýmsa aðra
úr verkalýðshreyfingunni.
—EKG