Vísir - 10.04.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 10.04.1976, Blaðsíða 3
vism Laugardagur 10. april 1976. 3 Gítarleikur í Norrœna- húsinu Tónlistarskólinn i Görðum. Garðabæ, efnir til gitartón- leika i Norræna liúsinu i dag kl. 14.00. Gitarleikarinn er Pctur Jónasson. og eru tónleikarnir þáttur i burti'araprófi hans frá skólanum, en hann er fyrsti nemandinn sem útskrifast þaðan. Pétur hefur stundað nám við skólann frá 1969, kennari hans er Eyþór Þor- láksson. A efnisskránni eru verk sem eru litt kunn hérlendis, en að- gangur er ókeypis. Elliheimili menntskœlinga Menntskælingar á Akureyri sýna Elli- heimilið eftir Kent Andersen og Bengt Bratt i Samkomuhúsinu á Akureyri i kvöld og annaðkvöld. Leikendur eru tólf, en leikstjórn annast Þórhildur Þorleifsdóttir og Kristin ólafsdóttir. Fjórir tón- listarmenn aðstoða við flutning- inn. Elliheimilið var frumflult um siðuslu helgi við góða aðsókn og frábærar undirtektir. Sýningarn- ar hefjast kl. 8.30. Þeir sem ætla með Ferða- félaginu stilla sér upp við Umferðamiðstöðina að austan- verðu, en þeir sem kjósa Oti- vistarferðirnar, að vestan- verðu. Ferðafélagsmenn leggja leið sina m.a. i Undirhliðar og Kaldársel, Skálafell og Hellis- heiði og Gróttu. Otivist fer m.a. i Æsustaða- fjall og Helgafell i Mosfellssveit, og upp i Hvalfjörð þar sem gengið verður á steinafjöru og kræklingafjöru og verða kræklingar matreiddir og snæddir á staðnum. Auk þess bjóða báðir aðilar upp á gönguferð i Búrfellsgjá og Búrfell, en sinn hvorn daginn. Skíðaferðir ó Akureyri og Húsavík Þá eru ótaldar skiðaferðir norður i land bæði á Húsavik og Akureyri, og er á hvorugan staðinn upppantað ennþá. Ljósmyndaraðir ó Listasafninu Það er Otsýn sem selur Húsa- vikurferðirnar i samvinnu við Flugfélagið og verður flogið norður miðvikudaginn fyrir skirdag. A Húsavik, og reyndár lika á Akureyri, hefur verið fremur litill snjór i vetur, en úr þvi kann þó enn að rætast. Ot- sýn hefur þvi ákveðið ferðir frá Húsavik, austur i Kelduhverfi og einnig út i Flatey fyrir þá sem þessóska. Verðið á þessari ferð er frá 15.200 upp i 17.200. Úrval selur ferðirnar til Akur- eyrar, en þar verður Skiða- landsmótið haldið um páskana og þvi mikið um að vera þar. Flogið verður norður 14. april og kostar ferðin frá 15.500 upp i 21.000 eftir þvi hvort gist er i Skiðahótelinu eða á Hótel Varð- borg. Þá munu upptaldar þær skipulögðu ferðir sem á boðstól- um eru þessa páska, en mögu- leikarnir fyrir einstaklings- framtakið eru jú ótæmandi. — EB Sýning á Ijósmyndaröö- um eftir Flemming Koe- foed, var opnuð hjá Lista- safni A.S.i. í gær og stend- ur í tvær vikur. Flemming Koefoed hefur hald- ið átta einkasyningar i Danmörku og Sviþjóð og auk þesstekið þátt i nokkrum samsýningum. Myndaraðirnár sem sýndar eru lieita. Bæjargluggar. I framandi borg. Grafreitirnir og Hin oþekktu. Sýningin er opin alla daga. nema laugardaga frá kl 14- 18. I r in> ndarööinni Ilinir óþekktu Merkileg nýjung í með- ferð ófengissjúklinga Nokkrir isienskir áfengis- sjúklingar liafa fengið árangursríka meðferð i Banda- rikjunum og hyggjast þeir nú miðla öðrum áfengissjúklingum af reynslu sinni. Félagsniálaráð Keykjavikur- borgar hefur lagt til við borgar- stjórn að komið verði upp tveim eftirmeðferðarlicimilum fyrir áfengissjúklinga á vegum borgarinnar. Annað þessara heimila er lagt til að verði rekið i samræmi við tillögur Amerikufaranna, en þeir eru allir félagar i AA-samtökunum. Verða að hafa sýnt vilja til að standa sig Starfsemin yrði byggð þannig upp, að Reykjavikurborg ætti húsnæðið og greiddi húsverði iaun, en hann yrði eini starfs- maður heimilisins. öll önnur störf á heimilinu yrðu unnin af vistmönnum sjálfum. Þeir greiði lága húsaleigu, en greiði auk þess sjálfir allan kostnað af húsnæðinu, s.s. ljós og hita. Gert er ráð íyrir að hver vist- maður verði á heimilinu i 2-5 mánuði. Skilyrði er að hann hafi áður fen-gið einhvers konar meðferð á hæli eða stofnun. Þetta skilyrði er sett bæði vegna þess að læknisskoðun er nauð- synleg áður en vistmaður er tekinn á heimilið til þess að öruggt sé að hann eigi ekki fremur heima á sjúkrahúsi og eins svo ljóst sé að mönnum sé alvara i að standa sig. Útvega vinnu og húsnæði Hver vistmaður á svona heimili hefur sinn forsvars- mann (sponsor). Hans fyrsta verk er að hjálpa skjólstæðingi sinum að fá vinnu. Siðan er hann til taks og getur skjól- stæðingurinn leitað til hans á nóttu sem degi. Þetta er það hlutverk sem þessi hópur AA-manna ætlar sér. Þeir eru búnir að læra af eigin mistökum og geta sagt frá þeim og leiðbeint öðrum. Auk þess hafa þeir séð hvað hægt er að gera mikið með þeim aðferð- um sem þeir kynntust vestra. Ekki er skilyrði að vistmenn séu AA-menn eða gangi i sam- tökin. Mönnum er ráðlagt að sækja fundi samtakanna, en ■ þeim er i sjálfsvald sett hvort þeir gera það. Þegar vistmaður ætti að vera búinn að öðlast það mikinn kjark, að hann geti staðið á eig- in fótum, er honum útvegaö húsnæði annars staðar, en for- svarsmaðurinn hefur eftir sem áður eftirlit með honum i nokk- urn tima. Hlekkur sem hefur vautað Að sögn manna sem hafa kynnst baráttunni við áfengis- sjúkdóminn er svona heimili sá hlekkur sem lengi hefur vantað i sambandi við lækningu áfengis- sjúkra. Menn sem hafa brotið allar brýr að baki sér eiga oft i mikl- um erfiðleikum með að komast á nýjan leik út i lifið, jafnvel þótt þeir hafi fengið meðhöndl- un á hæli. Heimili eins og þau sem nú eru fyrirhuguð brúa bil- ið milli hælisdvalar og eðlilegs lifs. — SJ Óeðlileg útgáfa ríkisskuldabréfa — segja vinnuveitendur ,,Rikisvaldið hefur aukið ú fjármagns- örðugleika atvinnufyrir- tækja með óeðlilegri út- gáfu verðtryggðra rikis- skuldabréfa og happ- drættislána”, segir i ályklun aðaifundar vinnuveitendasambands islands. Lýsti fundurinn yfir áhyggjum sinum yfirþeim lélegu skilyrðum sem frjálsum atvinnurekstri eru sett. Þá segir i ályktun lundarins að verðbólgan hafi ruglað verðmæta og arðsemisviðmiðanir i fjár- lestingu. Og að úreltar afskrifta og skattareglur gerðu atvinnu- reksúúnum stöðugt erfiðara fvrir. — ÉKG Merkjasala vegna líknarmúla Ljósmæðrafélagiö efnir til árlegs merkjasöludags sins á morgun. Eins og að undanförnu veröur ágóða varið til liknarmála. Merkin verða afhent i eftir- töldum skólum klukkan 10 ár- degis. Alftamýrarskóla, Ar- ba'ja rskóla. Breiðholtsskóla. Fellaskóla, Langholtsskóla. Melaskóla og Vogaskóla.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.