Vísir - 10.04.1976, Blaðsíða 15
15
VÍSIR
Laugardagur 10. april 1976.
Spáin gildir fyrir sunnudaginn 11.
april
Hrúturinn
I 21. mars—20. apríl:
Hyggðu að þörfum annarra og
sýndu vott að viðleitni til að sinna
þeim. Haltu sambandi við alla
sem þú átt von á einhverju frá.
Ljúktu þvi sem þú hefur vanrækt
að undanförnu.
Nautift
21. april—21. mai:
Láttu ekki hjónaband þitt eða
vináttusamband reka á reiðan-
um. Einbeittu þér að þessum
mikilvæga þætti daglegs lifs.
Maður er manns gaman.
m
Tviburarnir
I 22. mai—21. júni:
Þú verður sennilega að lúta vilja
annarra mest allan daginn.
Leggðu áherslu á að gera öðrum
til geðs og brostu breitt! Likur
eru á að kvöldið verði dapurlegt.
Krabbinn
21. júni—23. júlí:
Griptu nú tækifæri sem þér gefst
til að sýna forustuhæfileika þina.
Leggðu áherslu á skemmtun og
leiki, það getur orðið ljómandi
gaman! Reyndu að verða að liði i
kvöld.
Nt
Ljónift
24. júlí—23. ágúst:
Þú ert eitthvað niðurdreginn i
dag. Morguninn er hálf drunga-
legur. Með kvöldinu færist fjör i
fólkið i kringum þig og þér er boð-
ið i skemmtilegt partý eða
heimsókn.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.:
Það sem aðrir taka sér fyrir
hendur er mun eftirsóknarverð-
ara i þinum augum en þitt eigið
starfa. Fátt er svo með öllu illt að
ekki boði nokkuð gott, þú mátt bú-
ast við breytingu á högum þinum
til hins betra.
Vogin
24. sept.—23. okt.:
Notaðu daginn vel til hvildar,
Vinnan er krefjandi og erfitt að
standa fremst(ur) i flokki. Ferða-
lag á næstunni gæti komið þér i
kynni við bráðskemmtilegt fólk.
Drekinn
_______24. okt.—22. növ.:
Nú er um að gera að láta sunnu-
daginn ekki hlaupa frá sér i leti.
Skemmtilegt ferðalag eða
heimsókn gæti komið öllum i
betra skap. Farðu snemma i bólið
þvi morgundagurinn er anna-
samur.
Bogmafturinn
23. nóv.—21. «les.:
Venus hefur áhrif á hugmynda-
flugið. Óvenjuleg uppátæki og
sprell setja svip á daginn. Vertu
viðbúin(n) að tapa hjartanu til
bráðókunnugrar manneskju i
kvöld.
&
Steingeitin.
22. des.—20. jau.:
Eitthvað óvænt gæti ruglað öllum
þinum fyrirætlunum. Þú bjóst við
að eyða deginum i ró, en getur bú-
ist við að fara út að skemmta þér
með vinum sem koma langt að.
10
Vatnsberinn
21. jan.—liL febr.
Óraunsæi og skakkt verðmæta-
mat koma þér i klipu. Reyndu að
kynna þér betur staðreyndir
hvers máls. Taktu kvöldiö rólega
og sinntu hugðarefnum.
Fiskarnir
20. febr.—20. mars:
Þetta verður skemmtilegur dag-
ur dagur sem þú eyðir liklegast
með þinum nánustu. Þú dettur of-
an á eitthvað sem þú vilt fræðast
meira um og gleymir alveg
timanum.
KHN<Z_________________________ H-tL *-Œffl>- .lŒQJJDir <2Qlimtn 020 EOtt- U.ŒIII00- J-UX lí J<*-