Vísir - 26.04.1976, Qupperneq 1
Takmörkuð not af efni Evrópusambands sjónvarpsstöðva vegna ófullkominna fjarskipta við útlönd
Getum t.d. ekki tekið þátt í söngva-
keppninni fyrr en komin er jarðstöð
„Það er allt útlit tyrir að við
getum ekki tekið þátt I söngva-
keppni sjónvarpsstöðva Evrópu
fyrr en árið 1985, eða með öðr-
um orðum þegar við höfum
fengið hér jarðstöð til móttöku á
sjónvarpssendingum um gervi-
hnetti”, sagði Pétur Guðfinns-
son, framkvæmdastjóri sjón-
varpsins i samtali við Visi.
Hann sagði að það væri skil-
yrði fyrir þátttöku, að viðkom-
andi land væri i beinu sambandi
viö kerfi sjónvarpsstööva
Evrópu, þannig að dómarar
gætu fylgst með keppninni þar
og það land, sem bæri sigur úr
býtum annaðist þá framkvæmd
keppninnar næsta ár á eftir.
Sýnt hér þrem vikum
seinna en annars staðar
Söngvakeppnin var á dagskrá
islenska sjónvarpsins i gær-
kvöldi, 25. april, en hún fór fram
i Haag i Hollandi 3. april siðast-
liðinn. bann dag var bein
sjónvarpsútsending á þessu
vinsæla efni til nær allra
Evrópulanda og viðar út um
heim, og munu nær fimm
hundruð milljónir manna hafa
fylgst meö þeirri útsendingu.
fslendingar eru ein þejrra fáu
þjóða, sem ekki eru f beinum
fjarskiptatengslum við um-
heiminn, að þvi er varðar mót-
töku á sjónvarpsefni, og uröu
þvi að biða þar til myndsegul-
bandsupptaka frá keppninni
hafði borist hingað til lands, og
hægt var að sýna hana.
Þetta er aðeins eitt dæmi um
það, á hvern hátt það kemur sér
illa fyrir okkur að hafa ekki
jarðstöð hér á landi, en með
slikri stöð gjörbreytist frétta-
þjónusta sjónvarpsins, þar sem
hægt er að fá kvikmyndir af at-
burðum dagsins úti i heimi
sendar um gervihnött i stað
þess, að þurfa að senda þær
flugleiðis til landsins.
Þá gæfust um leið tækifæri til
þess að fylgjast með atburðum
úti i heimi á islenskum heimil-
um á sama tima og þeir gerast,
meö beinum útsendingum.
Þetta gildir ekki einungis um
atburði hér á jörðinni okkar,
heldur einnig það, sem gerist til
dæmis úti i geimnum eða á
tunglinu. Þannig gátu til dæmis
hundruð milljóna manna um
alian heim fylgst með beinni út-
sendingu frá tunglinu á sinum
tima, þegar menn stigu þar
fyrstu sporin.
Pétur Guðfinnsson,
framkvæmdastjóri sjónvarps-
ins, er i dag á förum á aðalfund
Evrópubandalags útvarps- og
sjónvarpsstöðva, en þar er rætt
um samskipti Evrópulanda
varðandi útvarps- og sjónvarps-
efni, en hingað til hefur tsland
haft mjög takmörkuð not af þvi
efni, sem þar er á boðstólum
vegna takmörkunar fjarskipta-
sambands okkar við umheim-
ínn.
Á annarri siðu Visis i dag er
fjallað nánar um þessi fjar-
skiptamál og útlitið varðandi
þau um þessar mundir. — óR.
Þessi mynd er tekin I aðalstjórnstöð Eurovision, Evrópusam-
bands sjónvarpsstöðva, en þar er stjórnað útsendingum og miðl-
un sjónvarpsefnis til aðildarlanda sambandsins.
' ' i " >■ /
9
Samtök sveitarfé-
iaga i Suðurlandskjör-
dæmi og Reykjanes-
kjördæmi hafa sett
fram óskir um aðild að
Landsvirkjun. Sveitar-
félög i þessum kjör-
dæmum hafa fram til
þessa keypt raforku frá
Rafmagnsveitum rik-
isins. Talið er að þau
kaupi raforku á 15 til
20% hærra verði nú en
ef þau ættu kost á að
kaupa hana frá Lands-
virkjun.
Iðnaðarráðherra hefur i
hyggju aö skipa nefnd til þess að
gera athugun á máli þessu. A
fundi borgarráðs 20. april var
lagt fram bréf frá iðnaöarráöu-
neytinu um fyrirhugaða
nefndarskipan i þessu skyni.
Eignaraðilar að Landsvirkjun
eru rfkið og Reykjavikurborg.
Reyknesingar hafa um nokk-
urn tima haft áhuga á aðild að
Landsvirkjun, en um það bil tvö
ár eru siðan sunnlendingar se ttu
fram óskir um þetta efni.
I bréfi sinu til Reykjavikur-
borgar óskar iðnaðarráðherra
eftirtilnefningu af hálfu borgar-
innar i nefnd þá.erhann hyggst
skipa. Reykjavikurborg, sem er
helmingseignaraðili að Lands-
virkjun, var ekki höfö með I ráð-
um, þegar ákveðiö var að skipa
þessa nefnd. VIsi er hins vegar
kunnugt um, að Albert
Guðmundsson, sem gegnt hefur
formannsstörfum i borgarráði I
fjarveru borgarstjóra hefur lýst
fylgi við nefndarskipun þessa,
en borgarstjóra hefur verið fal-
in meöferð málsins.
Kári Þórðarson rafveitustjóri
i Keflavik upplýsti á miösvetr-
arfundi Sambands islenskra
rafveitna fyrir skömmu, aö það
hefði kostað Rafmagnsveitu
Reykjavikur rúmar 100 milljón-
ir kr. árið 1975 i aukaútgjöldum,
ef hún heföi þurft aö kaupa raf-
orkuna frá Rafmagnsveitum
rikisins eins og sveitarfélögin á
Suöurlandi og Reykjanesi gera.
Ef þessi kjördæmasamtök
sveitarféiaga fá aðild að Lands-
virkjun er talið liklegast að þaö
verði með þeim hættiað stofnað
verði sérstakt fyrirtæki, Suður-
landsveita, sem siðan yrði eign-
araðiU að Landsvirkjun.
—ÞP
FRETTABANN LOFTSKEYTA- jr
MANNA STENDUR ENN!
Árekslur, klippingar og eftirför
Engar nýjar fréttir höföu borist til Landhelgisgæslunnar af
togaramiðunum f morgun, en um helgina sigldi freigátan Naiad
á varðskipið Tý og skemmdi hann mikið. Ægir og Týr klipptu
þrisvar á togvfra breskra togara og Baldur eyðilagði vörpu eins
til viðbótar. Þá var togara, sem sést hafði sjö mflur frá landi
veitt eftirför út fyrir 200 mllna mörkin, en ákveöið að beita ekki
byssum tii þess að stöðva hann.
Það leynir sér ekki spenningurinn i andliti Þórunnar K. Guðmunds-
dóttur þegar hún býr sig undir að stínga sér i laugina I unglingasund-
móti Ægis I Sundhöilinni i gær. Þórunn er ekki nema sex ára gömul og
er þarna að taka þátt i sinu fyrsta sundmóti og eftirvæntingin er þvi
mikil. Sjá nánar um mótið i opnu blaðsins svo og um fþróttaviðburði
helgarinnar á bls. 10,11 og 14. Ljósmynd Einar....
Mánudagur 26. april 1976
90. tbl
66. árg