Vísir - 26.04.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 26.04.1976, Blaðsíða 4
4 visra Enskukennarar Leo van Lier frá Longmans verður i bóka- verslun okkar i Hafnarstræti 4, uppi á morgun frá kl. 9.00-18.00. Hann mun kynna nýjar bækur og veita upplýsingar um allar enskukennslubækur, sem gefnar eru út af Longmans. Bókaverslun Snæbjarnar, Hafnarstræti 4. Fró barnaskólum Reykjavíkur Innritun 6 ára barna (þ.e. barna, sem fædd eru á árinu 1970) fer fram i barna- skólum borgarinnar mánudaginn 26. og þriðjudaginn 27. april n.k., kl. 17—18 báða dagana. A sama tima þriðjudaginn 27. april fer einnig fram i skólunum innritun þeirra barna og unglinga, sem flytjast milli skóla. Fræðslustjóri. Tannlœknastofa mín er flutt að Ármúla 26. Ríkarður Pálsson tannlœknir — sími 32320 psfeindstæki Suðurveri sími 31315 Húsbyggjentíur Einangrunarplast V \ Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-Reykjavikursvæðiö með stuttum- fyrirvara. Afhending á byggingarstað. IIAGKVÆ.MT VERÐ. (jRElÐSI.USKI I.M AI.AK Borgarplast hf. Korgarnesi sinii: 93-7370 Kvöldsimi 93-7355. Einnig getiö þér haft samband viö söluaöila okkar i Keykjavik: IÐNVAL Kolholti 4. Simar 83tr.5- -83354. RániO viröist ætla aö takast vel en snuröa hleypur allti einu á þráöinn. (------ÍE^hnrrifriYíyfo ' ... —MI.I' II ■ Jón Björgvinsson skrifar um myndina „Dog Day Afternoon" MANNLEG VANDAMÁL GEGN LÖGREGLU- OFBELDI — Nei, Sidney minn, þetta gengur ekki i mannskapinn. Þegar kvikmyndaleikstjórinn Sidney Lumet vann að undirbúningi myndar- innar ,,Dog Day After- noon” fékk hann enn einu sinni að heyra þessi orð. — Kvikmyndahúsa- gestir hafa ekki eirð í sér til að horfa á tvær klukkustundir á kvik- mynd, sem öll gerist i sama herberginu. En eins og áöur, þegar hann vann aö gerð mynda eins og „Twelve Angry Men”, sem öll gerist i réttarherbergi og „Murder on the Orient Express”, sem nær öll er kvik- mynduð i tilbúnum lestarklefa, lét Sidney Lumet þessi að- vörunarorð sem vind um eyru þjóta. Og nú þegar „Dog Day After- noon” fer sigurför um jörðina með einn Óskar i barminum hafa raddir formúlumannanna loks þagnað. Fyrir tilstuðlan manna eins og Sidney Lumet hafa kröfur biógesta nefnilega breyst eins og Óskarsverð- launaafhendingin I ár sannaði best. Umsátur og gislar hafa nú komist i flokk erfiðustu vanda- mála lögreglunnar i mörgum löndum. Ekki dregur það úr höfuðverk lögreglunnar, þegar gislarnir vingast við glæpamennina og jafnvel taka afstöðu með þess- um mönnum, sem þeir verða að þola með súrt og sárt oft dögum saman. Slikt sanna dæmi eins og frægt bankarán i Sviþjóð og um- sátur um veitingahús eitt I London á siðasta ári. Svipaða sögu er að segja um mis- heppnað bankarán i New York fyrirnokkrum árum. „Dog Day Afternoon” lýsir þvi bankaráni i fréttamyndastil. Fljótlega eftir að lögreglan hefur umkringt bankann, þar sem ræningjarnir tveir sitja með gisla sina kemur i ljós, að forsprakkinn Sonny (A1 Pacino úr Guðfeðrunum) er atvinnu- laus kynvillingur, sem vantar fé til að gera kynbreytingu á vini sinum. Fjölmiðlarnir fá áhuga á þessum félögum og jafnframt gislarnir, sem þykir spennandi að vera i brennipunkti frétt- anna. Sonny sjálfur gengst einnig upp við alla athyglina, sem hann vekur og fer að halda þrumuræður yfir lögreglunni og kynvillingum og öðrum áhorf- endum, sem safnast saman fyrir utan. Samúð áhorfendanna beinist allan timann að Sonny. Honum með sin mannlegu vandamál er stillt upp gegn ofbeldisfullri lög- reglunni, sem greinilegt er að biður aðeins eftir góðu færi til að skjóta bankaræningjana. Hlutverk Sonny er vissulega eitt erfiðasta hlutverk A1 Pacino til þessa, en þess verður ekki vart að hann eigi I neinum erfið- leikum með að skila þvi með glæsileik. Þótt sami maðurinn, Sonny, sé á tjaldinu nær allan timann og myndin öll gerist I bankanum heldur leikstjórinn fullkominni spennu i gegnum alla myndina. Það er list, sem Sidney Lumet lærði forðum, er hann starfaði við gerð sjónvarpsmynda- og fáum öðrum er lagið. Leikararnir John Cazale og A1 Pacino (báöir þekktir úr Godfather) leika tvo viövaninga i bankaránum, sem ákveöa þó aö ráöast I stór- aðgeröir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.