Vísir - 26.04.1976, Síða 9
VISIR Sunnudagur 25. apríl 1976
9
Þetta gœti verið gott að vita
Þarftu aö kaupa barnávagn, kerru eða rúm? Eða þarftu á Hér eru ýmsar góðar ráðleggingar i sambandi við kaup á
barnastól að halda? Þú ætlar kannski lika að kaupa bangsa þessum liiutum. Það er nefnilega alls ekki sama hvað keypt
eða jafnvel úr? Ef svo er, þá ættirðu að lita yfir þetta áður. er. —EA
Bangsi
verður
að þola
þvott
Kaupiö bangsa sem
þolir þvott og er úr end-
ingargóðu efni. Saumað
nef og saumuð augu eða
gleraugu sem saumuð eru
með sterkum þræði í
gegnum höf uðið eru best.
Höfuð, fætur og hendur
sem saumuð eru föst end-
ast lengst.
Ekki sama
hvernig
kerran er
Setan á ekki að vera i meiri
hæð en um 40-50 cm frá jörðu.
Lifleg börn þurfa á beisli að
halda sem heldur þeim i kerr-
unni.
Breiddin á ekki að vera meiri
en 57 cm. Handfangið á
að vera i 95 cm fjarlægð frá
jöröu. Þvermál hjóla ætti að
vera minnst 28 cm á þungum
kerrum, en 23 á þeim léttari.
Helst á að vera hægt að taka
áklæðið af og auðvelt verður að
vera að hreinsa það.
Hankar á handfanginu fyrir
töskur eiga að snúa inn og vera
staðsettir neðarlega.
Innkaupagrind eykur jafn-
vægiö.
Er auðvelt að koma kerrunni
fyrir i bil?
Reynið bremsuna og gætið
þess að hún virki á að minnsta
kosti tvö hjólanna.
Hengið endurskinsmerki á
kerruna.
Kaupið kerru með tilliti til
þess á hvernig vegum hún verö-
ur notuð og hversu mikið.
Á barnið að fá úr?
Waterproof eða water-
resistent merkir að úrið er
vatnsþétt en ekki að það megi
baða sig með það.
Kringlótt úr er þéttara en
kantað.
Börn eiga að vera með úr sem
eru höggþétt.
Visarnir og stafirnir eiga að
vera greinilegir og gjarnan má
vera sekúnduvisir i greinilegum
lit.
Það er skemmtilegra fyrir
barnið að eiga úr sem það
trekkir upp sjálft.
Það er langt frá þvi nauðsyn-
legt að úrið sé sjálflýsandi.
Gætið þess að ábyrgð sé á
úrinu og lesið ábyrgðarseðilinn.
Þegar keyptur er vagn..
Hvar á að nota vagninn?
Verður hann mikið notaður á
holóttum slæmum vegum eða
malbikuðum sléttum vegum á
milli húsa?
Gættu fyllsta öryggis! Eru
hvassar brúnir á vagninum?
Heldur hann góðu jafnvægi?
Er hægt að setja vagninn inn i
bila? Er hægt að koma grindinni
fyrir i farangursgeymslu bils-
ins? Vagninn sjálfur á að vera
minnst 75 cm langur, ca. 35 cm
breiöur og um 23 cm djúpúr.
Getur ein manneskja komið
vagninum fyrir á grindinni á
meðan barnið er i honum?
Er bremsan góð og þægileg i
notkun?
Hjól með slöngu eru mýkri.
Mælt er með að þvermál hjól-
anna sé 28,5 cm.
Handfangið ætti að vera 95 cm
hátt og 2 cm þykkt. Varðandi
hæðina er miðað við manneskju
sem er 165 cm á hæð.
Það getur verið ódýrara að
kaupa vagn sem siðar má
breyta i kerru.
Innkaupagrind er hentug og
gerir vagninn stöðugri.
Bamastóllinn
bestur svona
Hvernig er barna- Auðvelt verður að
stóllinn bestur? vera að hreinsa stólinn.
Við flest matarborð
passar stóll með 52-57
cm setuhæð.
Fjarlægð á milli setu
og þreps fyrir fætur (sé
eitthvert) á að vera 16-
19 cm.
Stóllinn verður að
vera mjög stöðugur.
Gætið þess að barnið
geti ekki fengið flisar
úr stólnum eða meitt
sig á honum.
Horn og kantar eiga
að vera „rúnnuð”.
Best að vera
Það borgar sig að vera gagn-
rýninn þegar keypt er rúm eða
ef rúm er fengið lánað:
Rúm með óhreyfanlegum
hliðum er stöðugra en rúm með
hliöum sem eru hreyfanlegar.
Rúm sem lakkað er með
glæru lakki er betra en þaö sem
lakkað er i lit. Þá sést t.d. hvort
viöurinn er án kvista.
Gætið þess að engir'kvistir
séu i rimlunum á rúminu, og að
þeir séu fastir og sterkir.
Heill botn er betri en fjalir.
Rúmkanturinn á að vera minnst
60 cm frá botni.
Gætið oft að skrúfum og fest-
ingum.
Gætið þess að rúmið sé
stööugt.
Rúmpláss á að vera minnst
110x55 cm. Bil á milli rimla
mest 8,5 cm, minnst 6,5 cm.
Kaupiö ekki rúm með lausum
botni eða þar sem of langt bil er
á milli rimla.