Vísir - 26.04.1976, Page 10
10
c
visir
3
Skoski titilinn
fór til Rangers!
„Eiulaspretturinn hefur veriö
al'ar slakur hjá okkur og á laugar-
daginn glötuöum viöölluin mögu-
leikum okkar þegar viö töpuöum
l'yrir Ayr”, sagði Jóhannes
Kövaldsson, þegar við spjölluöum
viö hann i Glasgow i morgun. En
á laugardaginn varö Glasgow
Kangers skoskur meistari i knatt-
spyrnu annað áriö i röö.þó aö lið-
iö eigi enn eftir að leika tvo leiki.
Rangers sigraði Dundee United
með einu marki gegn engu og
skoraði Derek Johnstone markið
eftir 22 sekúndur.
Ekkert mark var skorað i' fyrri
hálfleik i leik Celtic og Ayr, en
lljótlega i' siöari hálfleik var
dæmd vitaspyrna á Celtic sem
Malcolm Robertson skoraði tir —
og stuttu si'ðar skoraði sami mað-
ur annað mark. Dixie Deans
minnkaöi muninn fyrir Celtic
með marki úr vitaspyrnu, en það
dugði ekki ti].
Úrslit leika i úrvalsdeUdinni
urðu annars þessi:
Aberdeen — Hibernian 3:0
Celtic —Ayr 1:2
DundeeUtd, —Rangers 0:1
Hearts — St. Johnstone 1:0
Motherwell — Dundee 1:1
Celtic á að leika við Rangers á
Parkhead i kvöld, en úrslitin i
leiknum skipta engu máli.
—BB
Staðan er nú þessi:
Rangers 34 23
C'eltic 33 20
Hibemian 35 18
Motherwell 34 16
Aberdeen 36 11
Hearts 34 12
Ayr 34 13
Dundee 35 10
Dundee Utd. 34 11
St.Johnston 35 3
6 5 60:24 52
5 8 66:38 45
7 10_55:41 43
8 10 56:46 40
10 15 49:50 32
8 14 38:45 32
5 16 41:53 31
10 15 48:62 30
7 16 44:48 29
4 28 29:79 10
St. Johnstone er þegar fallið i 1.
deild, en baráttan um hitt fallsæt-
ii verður á milli Dundee, Dundee
l'td., Ayr og Hearts.
SIÐASTUR I MARK
• •
MEÐ BROS A VOR!
Halldór Skúlason heitir hann þessi hlaupagarpur nr. 100, sem viö
sjáum hér á myndinni. Hann mætti eins og venja hans hefur ver-
iö sl. þrjú ár I drengjahlaup Ármanns á gúmmlskónum sinum.
Hann kom lika brosandi 1 mark eins og venjulega og á slnum
venjulega staö — slðastur. Það skiptir hann engu máli hvort
hann vinnur eöa tapar, öllu tekur hann meö brosi á vör, enda
uppáhald allra sem við mótiö starfa. Nánar verður sagt frá
drengjahlaupinu I blaöinu á morgun. — VS/Ljósmynd Einar.
Uniroyal golfkeppnin:
Júlíus hafði það
með einu höggi!
Vrnsar merkilegar tölur voru
skráöar upp á vegg i golfskál-
anum á Hvaleyrarholti á laugar-
daginn, en þá fór þar fram fyrsta
opna golfmótið á Stór-Reykja-
víkursvæðinu á þessu ári. Var þaö
„Uniroyal” keppnin, sem háö var
á vegum hafnfiröinga, meö góöri
aöstoö tsIensk-amerIska
verslunarfélagsins — umboðs-
aöila „Uniroyal” hér á landi, sem
gaf öll verðlaunin i keppnina.
Nær niutiu kylfingar mættu i
mótiö — og gekk mörgum þeirra
erfiðlega að „skora” á Hval-
eyrarvellinum i þetta sinn. Ekki
var þar hægt að kenna veðrinu
um — það var eins gott og hægt er
að fá það, og völlurinn var i ágætu
ástandi, miðað við árstima.
Leiknar voru 18 holur og veitt
verðlaun með og án forgjafar.
Július R. Júliusson GK varð
sigurvegari án forgjafar — lék 18
holurnar á 77 höggum — fimm
höggumyfirparivallarinseins og
Július R. Júliusson — til vinstri
á myndinni og Henning Bjarna-
son til hægri — hlutu fyrstu
verölaun meö og án forgjafar I
Uniroyal golfkeppninni á
laugardaginn. A milli þeirra er
Bert Ilanson, umboösmaöur
Uniroyal hér á landi, sem gaf
verðlaunin i keppnina.
hann var leikinn i þessari
keppni.
Einar Guðnason GR og Björg-
vin Þorsteinsson GA, voru einu
höggi á eftir — eða á 78 höggum.
Þeir háðu aukakeppni um annað
sætið.oghafði Einar betur i þeirri
viðureign.
Július ogEinar voru einnig með
lægstu tölur þegar forgjöf þeirra
hafði veriðdregin fra, en þar sem
þeir fengu verölaun án forgjafar,
féllu verðlaunin með forgjöf
öðrum I skaut. Þannig fengu sex
menn verölaun I keppninni, en að
örðum kosti hefðu fjórir skipt
þeim öllum á milli sin.
Fyrstu verðlaun með forgjöf
hlaut Henning Bjarnason GK —
lék á 85höggum, hafði 10 f forgjöf
og kom þvi inn á 75 höggumnettó.
Annar varð Hilmar Björgvinsson
GS — 89 m inus 13 eða á 76 höggum
nettö og þriðji óskar Sæmunds-
son GR á 82 minus 5 eða 77
höggum nettó.
Sú nýbreytni var tekin upp i
sambandi við þetta mót, að
sýndar voru kvikmyndir frá
erlendum stórmótum. Mæltist
það vel fyrir, — höfðu menn að
þvi góða skemmtun og sáu hvem-
ig „þeir stóru” fara að þvi að
leika golf. —klp—
Göppingen hélt
sér í 1. deild!
Sigraði Bad Schwartau 26: 11, þar sem Einarsson brœðurnir
skoruðu 10 mörk - Dankersen sigraði Dietzenbach 23:11
í keppninni um þýska meistaratitilinn
,,Það var allt á öðrum
endanum hér i Göpping-
en um helgina, eftir sig-
ur okkar gegn Bad
Schwartau — um fallið i
2. deild” sagði Gunnar
Einarsson er við höfðum
samband við hann i
Göppingen i morgun.
„Það var dansaö og sungið hér
um allan bæ og mikiö svolgrað af
bjór. Hér búa um 60 þúsund
mannsoggleði fólksins var mikil,
enda hefði það verið mikið áfall
fyrir bæinn ef við hefðum fallið.
Við eigum -eftir að mæta Bad
Schwartau i siðari leiknum á
þeirra heimavelii, en við megum
tapa þeim leik með sextán mörk-
um til þess að falla, og á þvi tel ég
vera litla möguleika.
Þetta var hálfgert strögl til að
byrja með — staðan var 4:4 er við
fórum loks i gang og komumst i
7:4. Af þessum sjö mörkum
skoraði ég og Ólafur bróðir fimm
mörk, en hann lék þarna sinn
fyrsta leik með Göppingen.
Okkur gekk báðum vel i þessum
leik — ég skoraði sex mörk og
hann fjögur, en við sigruðum i
leiknum með 26 mörkum gegn 11.
Ég tel alveg af og frá að Bad
Schwartau nái að vinnaþann mun
upp i síðari leiknum, og er þvi
Göppingen áfram i 1. deildinni.”
Um helgina hófsteinnig úrslita-
keppni I þýsku deildarkeppninni i
handknattleik karla. Þar var
Dankersen sem þeir Axel Axels-
son og Ólafur H. Jónsson leika
með, i sviðsljósinu og tryggði sér
svo gott sem rétt til að leika um
þýska meistaratitilinn.
Þá lek Dankérsen við SG Diet-
zenbach og sigraði með 23 mörk-
um gegn 11. Axel Axelsson lék
ekki með Dankersen i þeim leik
vegna meiðsla, en aftur á móti
var ólafur með og lék vel.
Skoraði hann 5 af mörkum
Dankersen i leiknum.
Gummersbach sigraði Hofwei-
er 19:15 og á að vera nokkuð
öruggt með að komast i úrslit.
Þessi lið eiga eftir að mætast aft-
ur, og þaö sem hefur betur út
úr þeim leik leikur til úrslita um
þýska meistaratitilinn. Eins og
málin standa nú, er allt útlit fyrir
að það verði Gummersbach og
Dankersen, sem mætast þar eins
og i' fyrra.
— klp —