Vísir - 03.05.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 03.05.1976, Blaðsíða 1
VÖRUGJALDIÐ ÚR 10 í 18% 1000 milljón króno tekjuöflun til landhelgisgœslu kemur ekki inn í vísitölu Fjármálaráðherra mun væntanlega i dag leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um hækkun vörugjalds úr 10% i 18%. Þetta er liður i fjármálaráðstöfunum rikisstjórnarinnar tii þess að koma i veg fyrir halla á rikissjóði á þessu ári. Auk hækkunar á vörugjaldi hef- ur verið ákveðin hækkun á bens- ini og á innflutningsgjaldi á jeppabifreiðum. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Vlsir hefur afl- að sér er áætlað að tekjur rikis- sjóðs aukist um 1800 til 2000 mill- jónir króna með þessum ráðstöf- unum. Um það bil 1000 milljónir króna af þessari nýju tekjuöflun munu fara til þess að standa undir auknum kostnaði við landhelgis- gæsluna. Sú upphæð kemur ekki til hækkunar á visitölu og hefur þvi ekki áhrif á kaupgjald. Hækk- un vörugjaldsins á einnig að standa undir verulega auknum útgjöldum til hafrannsókna. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Vlsir hefur aflað sér mun láta nærri að kjarasamningarnir við opinbera starfsmenn hafi leitt til 4000 milljóna króna útgjalda- aukningar á þessu ári, þegar með eru taldar hækkanir almanna- trygginga. Þegar tekjuáætlun rikissjóðs hafði verið endurskoðuð mun hafa komið i ljós, að nálægt 2000 milljónir króna skorti til þess að ná endum saman. Hinár nýju fjármálaráðstafanir eiga að mæta þessum mismun. Búast má við að umræður um þessar fjármálaráðstafanir hefj- ist á Alþingi I dag eða á morgun. —ÞP LEITUÐU AÐ LÍKI! Mikill fjöldi manna leitaði I Hafnarfjarðarhrauni á laugardag samkvæmt ábendingum frá bllstjóranum sem ók banamönnum Guðmundar Einarssonar þangað. Leitin stóð allan daginn en bar ekki árangur. Þar fundust aðeins kindabein. Ljósm.: Loftur Bresku togaraskipstjórarnir ræða það nú sín á milli að fái þeir ekki aukna vernd við veiðarnar, fari þeir heim á morgun. Samkvæmt upplýsingum landhelgisgæslunnar í morgun, hefur ekkert frést um þetta að utan, en að hennar sögn er nú mikill óróleiki í bretunum á miðunum. Sjá nánar í f rétt f rá Óla Tynes á baksíðu. Nú minnka forréftindi jeppanna Ákveðið hefur verið að hækka innf lutningsgjöld á jeppum og vélsleðum til meira samræmis við venjulegar fólksbifreiðar og bifhjól. A þessum tegundum ökutækja er 90% tollur og 50% innflutningsgjald. A jeppum og véh.leðum verður 40% tollur og 75% innflutningsgjald fram til 1. júli, en eftir þann tima verður innflutningsgjaldið 90%. Þessi hækkun á innflutnings- gjöldum rennur beint i rikissjóð, en gert er ráð fyrir að innflutningsgjaldið komi vega- gerðinni að einhverju leyti til góða I ár. — SJ SCHMIDT TELUR AÐILD KOMMÚN- ISTA AÐ RÍKIS- STJÓRN ÍSLANDS EKKI NEITT TIL AÐ OTTAST - $ja u$. 7

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.