Vísir - 03.05.1976, Blaðsíða 9
VISIR Mánudagur 3. maí 1976
Hestur
úr gömlum
sokk
Það er óþarfi að
fleygja gömlu sokkunum
i stað þess má búa til
hesta eða hesta úr þeim
handa börnunum. Með-
fylgjandi mynd sýnir
hvernig að er farið.
Það sem til þarf er
kústskafteða annað skaft
sem er um 1/5 m á lengd/
sokkur/ helst af fullorðn-
um/ eitthvað til þess að
fylla sokkinn upp með/
garn/ bómullarband/
nokkrir filtbútar eða
annað þykkt ef ni, nokkrir
hnappar og gott límband.
Byrjað er á því að fylla
sokkinn upp, svo að
höfuðið verði vel þykkt og
stórt. Síðan er skaftinu
troðið i gegnum fylling-
una upp í hælinn á sokkn-
um. Ekki þó svo langt að
finna megi fyrir honum í
gegnum sokkinn.
Dragið síðan sokkinn
saman neðst við
kústskaftið og festið það
með límbandinu. Nú er
höfuðið tilbúið og þá er að
skreyta það með eyrum,
augum og öllu tilheyr-
andi. Eyrun eru saumuð á
en þau eru úr filter.
Augun má einnig gera úr
filter og sömuleiðis tenn-
urnar, faxið er úr garni.
Bómullarbandið er notað
í beisli og taum. Annars
skýrir myndin sig sjálf en
það er ekki verra að lima
t.d. filtbút neðst á
kústskaftið svo það rispi
ekki gólf eða annað þegar
farið verður i reiðtúr..
Eru gömul föt i
skápunum sem ekkert
virðist hægt að gera
við? Hvemig væri að
sniða föt á börnin úr
þeim sem ætluð eru á
fullorðna fólkið?
Hér sjáum við tvö
dæmi um það sem
gera má. 1 öðru voru
sniðnar buxur og vesti
upp úr gamalli peysu
og i hinu var saumað-
ur samfestingur upp
úr gömlum gallabux-
um.
Peysan var hvit en flekkótt
svo hún var lituð til að byrja
með. Slðan var byrjað að
sniða. Ermarnar mátti nota
eins og þær komu fyrir. Þær
voru klipptar frá og þar voru
komnar skálmar.
A teikningunni sést vel
hvernig farið var að. Vestið
var sniðið þannig að stroffið á
peysunni kom með. Stroffið i
hálsmálinu var klippt frá og
saumað á vestið.
Svo þarf enginn að vera
hræddur við að klippa peysur
niður, þvi þær rakna ekki svo
auðveldlega upp.
Gamlar buxur
verða nýjar
Upp úr gömlum gallabuxum
má sauma góðar buxur á þann
litla eða þá litlu. Skálmarnar
eruklipptarfrá eftir aðgengið
hefur verið úr skugga um að
efnið nægi. Klippið siðan upp
eftir öðrum hliðarsaumnum
og þá má fara að sm'ða.
Athugið að nota hinn hliðar-
sauminn þannig að hann komi
i hliðarnar á barnabuxunum.
Það er bæði fallegt og þar með
sparar maður sér einn saum.
Á myndinni er samfestingur
saumaður upp úr buxunum en
það má auðvitað lika gera
mittisbuxur, t.d. ef efnið nægir
ekki I samfesting.
GOMUL FOT
VERÐA
NÝ...
Hreppti trtilinn „fegurð-
arkóngur Svíþjóðar"
Það er ekkert leiðinlegra að sjá
sæta stráka en sætar stelpur. Það
getur þó verið að skiptar skoðanir
séu um fegurð þessara ungu manna
hér á myndunum. Lesendur
kvennablaðs nokkurs sem víðlesið
er i Sviþjóð virtust þó nokkuð á eitt
sáttir um það. Þeir kusu nefnilega
þann við bilinn fegurðarkóng Svi-
þjóðar 1976, Hinn hreppti titilinn I
fyrra.
Úrslitin voru kynnt fyrir stuttu,
og var ekki að sökum að spyrja að
sigurvegarinn varð yfir sig ánægð-
Hann þótti fallegastur og fékk bllinn I verðlaun þegar úrslitin voru tilkynnt
fyrir stuttu. „Ég átta mig tæpast á þessu,” sagði sá lukkulegi, Roger Sellin
20 ára.
ur. ,,Ég átta mig tæpast á þessu,”
varð honum að orði i viðtali i blað-
inu. „Þetta kemur sér þó verulega
vel fyrir mig, þvi ég er nýbúinn að
selja bilinn minn.” (Hann fékk bil i
verðlaun).
,,En,” bætir hann við til öryggis,
,,ég hefði verið ánægður án bilsins.
Það fer ekki hjá þvi að maður verði
ánægður yfir þvi hversu mörgum
finnst maður sætur....!”
Roger Sellin heitir sá iukkulegi,
20 ára gamall og afgreiðir i snyrti-
vöruverslun. Þar selur hann ilm-
vötn, gerviaugnahár og annað til-
heyrandi og kann vel við sig i starfl
inu. Um helgar er hann svo plötú-
snúður.
En hver eru svo áhugamál fall-
egasta karlmannsins i Sviþjoð? Jú,
að fara i bió og sjá þá helst kúreka-
myndir eða leynilögreglumyndir.
Hann spilar fótbolta á sumrin en
hlustar annars mest á tónlist þegar
hann á fri.
„Að gera eitthvað mikið, eins og
t.d. að lesa bækur, nenni ég ekki.
Það er svo margt annað spennandi
sem hendir mig. Timinn flýgur
hreinlega frá mér....”
Og þar hafið þið það. Skyldi
koma að þvi að kosinn verði falleg-
asti karl á Islandi...? _EA
Þessi sigraði i fyrra, Tommy Berggren
dreymir um að verða leikfimikennari....
Hann