Vísir - 12.05.1976, Side 6
Miövikudagur 12. mai 1976. VISIR
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
„Pólitískt kraftaverk
sagði Frank Church, eftir að hafa fengið fleiri atkvteði en Jimmy Carter í forkosn-
ingunum í Nebraska — Ford tapaði fyrir Reagan, en vann í Vestur-Virginíu
Nokkuð á óvart hafði
Frank Church öldunga-
deilda rþingma ður
gengið 40 prósent at-
kvæða, en Jimmy Cart-
er aðeins 36 prósent at-
kvæða demókrata þeg-
ar meirihluti atkvæða
hafði verið talinn i for-
kosningunum i
Nebraska i morgun.
Ford forseti hefur stöðvað
sigurgöngu Eeagan að vissu
leyti, með þvi að fá 57 prósent
atkvæða repúblikana á móti 43
prósentum Reagans i forkosn-
ingunum i Vestur-Virginiu. En
forkosningarnar þar eru ekki
jafn mikilvægar og i Nebraska,
þar sem Reagan sigraði Ford.
Þegar meirihluti atkvæða hafði
verið talinn i morgun, hafði
Reagan fengið 52 prósent at-
kvæða, og Ford 48 prósent.
Frank Church, sem nú tók
þátt i fyrsta sinn i forkosning-
um, sagði i morgun, að úrslitin
væru „pólitiskt kraftaverk”.
Hvorki Carter né Church
vildu þo nokkuð spá um úrslit
siðari forkosninga með tilliti til
þessara úrslita.
Carter tókekki þátt i forkosn-
ingunum i Vestur-Virginiu.
Robert Byrd, annar öldunga-
deildarþingmaður fy.l kisins var
þar i kjöri, og fékk um 90
prósent atkvæða demókrata, og
George Wallace fékk um 10
prósent. Wallace fór ekki i kosn-
ingaferðalag um V-Vireiniu.
Forkosningar fóru einnig
fram hjá demókrötum i
Connecticut. í morgun hafði
Jimmy Carter fengið 36 prósent
afkvæða, og Morris Udall 31
prósent. Frank Church — sigraði Carter.
FÖISUÐ [RFDASKRÁ
HUGHíS
Embætti fógetans i Las Vegas
fékk bréf fyrir stutlu. með skjali
i scm sagt var crfðaskrá Howard
liughes. i þessari erfðaskrá var
niu manns áhafnaöur um sjötti
hluti eigna Hughes. Nöfn fólksins
voru ekki nefnd, hcldur aðeins al-
mannatrygginganúmcr þess.
Talsmaður Summa fyrirtækis-
ins, sem Hughes átti, sagði að
„erföaskrá” þessi væri fölsuð.
„Erfðaskráin” er dagsett 22. júni
1969, og i henni er Summa fyrir-
tækinu falið að skipta eignunum.
En Summa var ekki stofnað fyrr
en i desember 1972.
1 skjalinu sem sent var fógetan-
um sagði að þetta væri erfðaskrá
Howard Hughes, og ætti að póst-
leggja hana 30 dögum eftir dauða
hans. Hinir fimm sjöttu hlutar
eigna Hughes, sem metnar eru á
tvo milljarða dollara, áttu að
renna til ættingja hans, lækninga-
stofnunar og háskóla.
Húsnœði óskast
Einstaklingsibúð eða herbergi með hús-
gögnum óskast fyrir sænskan styrkþega
við Norrænu eldfjallastöðina, frá 1. júni.
Upplýsingar i síma 25088
Norræna eldfjallastöðin
Fró
Byggingasamvinnufélagi
Kópavogs
Fyrirhuguð er stofnun byggingarflokks
um byggingu fjölbýlishúss.
Tekið verður á móti umsóknum félags-
manna á skrifstofu félagsins að Lunda-
brekku 2 til laugardagsins 15. mai kl. 1-7
s.d.
Stjórnin
Húsnœði óskast
5-4 herbergja íbúð með húsgögnum óskast
til leigu fyrir finnskan styrkþega við Nor-
rænu eldfjallastöðina frá 1. júni nk.
Upplýsingar i sima 25088.
Norræna eldfjallastöðin
TILKYNNING TIL
SÖLUSKATTSGREIÐENDA
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvl, að gjalddagi
söluskatts fyrir aprflmánuð er 15. mai. Ber þá að skila
skattinum til innheimtumanna rikissjóðs ásamt sölu-
skattsskýrslu I þrlriti.
Fjármálaráðuneytið
Gabor og Ryan giftu sig I janúar 1975. Hér skera þau brúðkaups-
tertuna. En sælan stóð ekki lengi.
Eiginmaður Zsa Zsa
plokkaði Rollsinn
Leikkonan Zsa Zsa Gabor,
fræg fyrir hjónabönd sin og
skiinaöi, kærði núverandi
eiginmann sinn til lögreglunn-
ar I Hollywood I gær, fyrir aö
hafa plokkað tveggja milljón
króna verðmæti af Rolls-
Royce bil hennar.
Eiginmaðurinn, milljóner-
inn Jack Ryan, er farinn frá
Gabor fyrir nokkru, og þau
hafa ákveðið að skilja. Ryan,
sem er 50 ára, sagði þessu til
skýringar að þau hafi ákveðið
að skipta sameiginlegum
eignum jafnt, og hafi Rollsinn
verið þar á meðal. Hann hafi
bara tekið sinn hluta bilsins.
Þau hjónin hafi verið búin að
ákveða að láta gera bilinn
upp, selja hann, og skipta
ágóðanum. En Gabor hafi
látið draga bilinn burt meðan
verið var að króma hluta
hans.
Ryan tók þá hjólin undan
bilnum, felgur, sæti, grill,
hluta yfirbyggingar og
stuðara, og sagðist vera búinn
að fá sinn hluta.
Vinstri
menn
setja
fram
kröfur
sínar
Vinstrimenn i Líbanon
hata sett fram sameigin-
legar kröfur sínar i sex lið-
um til að pólitísk lausn fá-
ist í borgarastriðinu i
Líbanon.
Vinstrimenn setja á oddinn að
hersveitir sýrlendinga hverfi á
brott úr Libanon. Nú eru um 10
þúsund sýrlenskir hermenn innan
landamæranna.
1 yfirlýsingu sinni létu vinstri-
menn i það skina aö þeir kynnu að
geta unnið með Elias Sarkis, hin-
um nýkjörna forsta Libanon.
Sarkis var löglega kjörinn forseti
en vinstrimenn vilja ekki sjá
hann þvl hann er hægri maður. Þó
kann að vera vonarglæta um
samstarf þvl vinstrimenn segja
að það sé ekki maðurinn sem
skipti máli, heldur hvaö hann
hyggst gera.
1 yfirlýsingu sinni krefjast
vinstrimenn auk þess að sýr-
lendingar tryggi „öryggi
palestinsku byltingarinnar”.
Þá er krafist viðræðna um kröf-
ur vinstrimanna um umbætur.
Þær umbætur stefna m.a. aö þvi
aö hætt verði að kjósa menn til
hárra embætta eftir trúarflokk-
um.
Bardagar voru á við og dreif i
nágrenni Beirút i gær, og inni I
sjálfri borginni.
Fœr Azevedo stuðn-
ing sósíalista?
Sósialistar i Portúgal munu
að öllum líkindum tilkynna i dag
hvern flokkurinn kýs að styðja
sem frambjóðanda til forscta-
kjörs. Kosning forseta fcr fram i
næsta mánuði.
Kosningabaráttan i Portúgal
greinist nú æ meir i baráttu
milli hægri og vinstri afla.
Antonio Ramalho Eanes yfir-
hershöfðingi hefur þegar fengið
stuðningsyfirlýsingu tveggja
'flokka sem taldir eru fremur
ihaldssinnaðir, alþýðu-
demókrata og miðdemókrata.
Þessir flokkar eru annar og
þriðji stærstu stjórnmálaflokk-
ar Portúgal.
Pinheiro de Azevedo
aðmiráll, forsætisráöherra
Portúgal, virðist hins vegar
njóta stuðnings vinstri manna. 1
fyrstu leit út fyrir að sósialistar
mundu styðja Eanes, en öfl
iengst til vinstri innan flokksins
vilja ekki vera i samfloti með
alþýðudemókrötum eða mið-
demókrötum.
Þvi er allt eins búist við að
Azevedo fái stuðningsyfirlýs-
ingu sósialista.
Þótt bæði Azevedo og Eanes
hafi lýst yfir að þeir hyggist
bjóða sig fram til forsetaem-
bættis, hafa þeir ekki gert það
formlega. Eini frambjóðandinn
sem hefur gert það er kona,
Maria Vieira de Silva að nafni.
Tveir litlir flokkar trotskyista
styðja hana, en óliklegt er talið
að hún fái mörg atkvæði.
Þar sem enginn stjórnmála-
flokkur fékk afgerandi meiri-
hluta i þingkosningunum i sið-
asta mánuði, verður forseta-
kjörið mikilvægara en ella. For-
setinn á að skipa forsætisráð-
herra, og hann mun hafa sterk
itök i málefnum sem varða
stjórnarskrána.
Azevedo