Vísir - 12.05.1976, Side 17
YISIR Miövikudagur
12. maí 1976.
Sjónvarp kl. 20:40:
Vaka í nœst
síðasta sinn
Vaka er I næstsiöasta skipti á
dagskrá sjónvarpsins f kvöld.
Fjallað verður um sýninguna á
verkum Siri Derkert, rætt viö
Aöalstein Ingólfsson og loks
veröur viötal viö Hauk Gunn-
arsson um leikhús f Japan.
Siri Derkert fæddist árið 1888
og lést 85 ára gömul. Hún er
meðal fremstu listamanna sem
svfar hafa átt og Norræna húsið
sýnir nú verk hennar, sem við
sjáum i þættinum i kvöld. Þá
verður einnig rætt við son Siri
Derkert sem hér er staddur.
Þar á eftir fer viðtal við Aðal-
stein Ingólfsson um Kjarvals-
staði og litið er á sýninguna á
pólsku plakötunum sem þar er
nú.
Haukur Gunnarsson er að-
stoðarleikstjóri Imyndunar-
veikinnar sem Þjóðleikhúsið
setur nú upp. Hann var við nám
i Japan og Englandi og verður
rætt itarlega við hann um leik-
hús i Japan, gömul og ný.
Magdalena Schram er um-
sjónarmaður Vöku. Þátturinn
hefst að loknum fréttum og aug-
lýsingum i kvöld.
—EA
Vinnumál í útvarpi kl. 19:35:
5 málefni
á dagskrá
Fjallaö veröur um fimm mál-
efni I þættinum Vinnumál i út-
varpinu i kvöld.
Fyrst verður fjallað um út-
gáfustarfsemi stéttarfélaga.
Þvi næst verður fjallað um
slysabætur. Þar á eftir veröur
fjallað um lagasjónarmið um
heimildír til að boða vinnu-
stöðvun þegar laun eru ekki
greidd. Loks eru rakin sjónar-
mið þegar um vaneíndir á ráðn-
ingarsamningi er að ræða, og
tekið dæmi um ráðningar fær-
eyinga hingað árið 1954. Siðast
verður svo rætt um frumvarpið
um jafnstöðu karla og kvenna.
Arnmundur Backman og
Gunnar Eydal sjá um þáttinn
sem hefst klukkan 19.35.
—EA
Sjónvarp kl. 22:40:
UMRÆDUR UM
HAFRÉTTARMÁL
Umræöur um hafréttarmál
veröa á dagskrá sjónvarpsins i
kvöld. Umræöurnar voru teknar
upp á ráöstefnunni og fara þær
fram á ensku.
Þátttakendur i þessum um-
ræðum eru dr. Fernando Zegers
frá Chile, dr. Helmut Turk frá
Austurriki og Poul Lapointe frá
Kanada. Umræðunum stýrir
Gunnar G. Schram en spyrjandi
ásamt honum er Eiður Guöna-
son.
Umræðurnar taka hálftima.
Þeim fylgir islenskur texti.
—EA
7.00 Morgunútvarp, Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15
10.25: Missa Brevis nr. 2 eft-
ir Bach. Flytjendur: Agnes
Giebel, Gisela Litz, Her-
mann Prey, Pro Arte kórinn
I Luzern og Pro Arte hljóm-
sveitin i Mönchen; Karl
Redel stjórnar. Frönsk tón-
listkl. 11: Hljómsveit Tón-
listarskólans i Paris leikur
Forleik eftir Germaine
Tailleferre; Georges
Tzipine stj./Sinfóniuhljóm-
sveit Lundúna leikur
Parade (Skrúögöngu)
ballettmúsik eftir Erik
Satie; Antal Dorati
stj./Hljómsveit Tónlistar-
skólans I Paris leikur
Sinfóniu nr. 2 eftir Darius
Milhaud; Georges Tzipine
stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Gestur
I blindgötu’’ eftir Jane
Btackmore Þýöandinn, Val-
dis Halldórsdóttir, les (3).
15.00 Miðdegistónleikar:
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.00 Lagiö mitt Anne Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.30 Mannlif i mótun Sæ-
mundur G. Jóhannesson
rekur minningar frá fyrstu
kennsluárum sinum (3).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumál Þáttur um lög
og rétt á vinnumarkaði.
Umsjónarmenn: Gunnar
Eydal og Arnmundur Back-
man lögfræðingar.
20.00 Kvöldvaka a. Einsöngur
Sigurveig Hjaltested syngur
lög eftir Sigfús Halldórsson.
Höfundurinn leikur á pianó.
b. Úr sendibréfi frá Kanada
Helgi Vigfússon kennari les
kafla úr bréfi, sem Rós-
mundur Árnason I Elfrœ
ritaði h'onum fyrir
skemmstu. c. Kvæöi eftir
Guttorm J. Guttormsson
Baldur Pálmason les. d.
Kynni af merkum fræöaþul
Sigurður Guttormsson segir
frá Sigfúsi Sigfússyni þjóð-
sagnaritara! e. Valbrár
þáttur Rósa Gisladóttir frá
Krossgerði les sögu úr
þjóðsagnasafni Sigfúsar
Sigfússonar. f. Kórsöngur
21.30 Útvarpssagan: „Siöasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (27).
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir Kvöld-
sagan: „Sá svarti senuþjóf-
ur”, ævisaga Haralds
Björnssonar Höfundurinn
Njörður P. Njarðvik, les
22.40 Djassþáttur Jón Múli
Árnason kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok
Ný framhaldssaga í sjónvarpinu kl. 18:25:
2 STRÁKAR Á SLÓÐ-
UM DEMANTSÞJOFA...
Demanlaþjófarnir heitir ný
framhaldsmynd sem hefur
göngu sina i dag. Myndin er i
fjórum þáttum.
Þar segir frá tveimur piltum
sem eru komnir i sumarfri i
skólanum. Þeir hafa ljtið að
gera og leiðistfrekar. En leiðinn
stendur ekki lengi. Þeir veröa
varir við grunsamlega menn,
sem virðast útlendingar, en
myndin gerist i Finnlandi.
Þeir fylgjast meö mönnunum
og eru áður en langt um liður
komnir á slóð demantaþjófa
sem hafa látið greipar sópa i
Belgiu en farið siðan til Finn-
lands.
Ekki borgar sig að segja
meira, en fyrsti þátturinn hefst
klukkan 18.25 i dag. —EA
Sjónvarp kl. 18:45:
18.00 Björninn Jógi Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Demantaþjófarnir
Finnsk framhaldsmynd i
fjórum þáttum. 1. þáttur.
Þýðandi Borgþór Kjærne-
sted. (Nordvision-Finnska
sjónvarpiö)
18.45 Gluggar Breskur
fræðslumyndaflokkur.
KrókódQaveiöar Furöuleg
reiöhjól Neöri Aswan stffian
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald. Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Vaka Dagskrá um bók-
menntir og listir á liöandi
stund. Umsjónarmaður
Magdalena Schram. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
21.20 Bilaieigan Þýskur
myndaflokkur.
21.45 Grænaland Kvikmynd
Magnúsar Jóhannssonar
Ferðaþættir frá Noröaust-
ur-Grænlandi og fornum ís-
lendingabyggðum við Ei-
riksfjörð. Aður á dagskrá
13. september 1969.
22.15 1 kjallaranum Söngsveit-
in Þokkabót flytur nokkur
lög. I Þokkabót eru Ingólfur
Steinsson, Halldór
Gunnarsson, Leifur Hauks-
son, Eggert Þorleifsson og
Sigurjón Sighvatsson.
Stjórn upptöku Andrés
Indriöason.
22.40. Umræður um hafréttar-
mál. Umræðum stýrir
Gunnar G. Schram. Spyrj-
andi ásamt honum Eiður
Guönason. Þátttakendur frá
Chile, Austurriki og
Kanada.
Viö fáum aösjá krókódilaveiðar i sjónvarpinu I dag. Þessi krókódfil
bjó um stund á Sædýrasafninu hér.
Hvað er í
Gluggum?
Krókódillaveiöar, furöuleg
reiöhjól og neöri Aswan stiflan.
Þetta eru nöfn þeirra mynda'
sem sýndar verða i Gluggum i
dag.
1 fyrstu myndinni segir frá
frumstæöum þjóðflokki i Afriku
sem lifir á krókódilaveiöum og
fylgjumst við nokkuð með þvi.
Þessi þjóðflokkur er i talsverðri
h,ættu. Hann er ákaflega
frumstæður en menningin
heldur innreið sina smám
saman og túristahótel og annaö
slikt ógnar þjóðflokknum.
1 annarri myndinni er rakin
saga hjólsins. Hjólin hafa veriö
af öllum gerðum i gegnum árin
og oft hefur mátt sjá furðu-
legustu gripi. A timabili var það
mikiö i tisku að fara i hjólreiða-
túr á sunnudögum og eitthvað af
sliku ættum viö að sjá .
Loks er það myndin um neöri
Aswan stifluna, þar sem segir
frá vandkvæðum i Egyptalandi
vegna virkjunar á Nil. Er greint
frá þvi þegar fornar menjar
voru i mikilli hættu, hof og
önnur verömæti fóru i kaf og
sagt er frá starfi manna við aö
bjarga þessum gömlu verð-
mætum.
Þátturinn Gluggar hefst
klukkan 18.45 i dag. Þýöandi og
þulur er Jón. O. Edwald.
— EA
Myndin er tekin á blaöamannafundinum sem haldinn var vegna
sýningarinnar á verkum Siri Derkert.