Vísir - 25.06.1976, Blaðsíða 7
7
vism Föstudagur 25. júnl 1976
< ::
Plastið heppnaðist ekki
Penny Priestley, 26 ára fyrirsæta og tiskusýningarmær I Lond-
on, vakti á sér athygli I fréttum núna i vikunni, er hún höföaði
mál á hendur skurölækni, sem sérfróöur er i plastaðgeröum.
Hún sagöi, aö aðgerð á brjóstum hennar heföi misheppnast og
brjóstin oröiö mislaga, sem væri til mikils lýtis. — Bar hún sig
undan þvi viö dómarann, aö þetta heföi leitt af sér tekjumissi
(sem næmi 13.000 pundum), þvi aöhún heföi ekki fengið verkefni
slöan I fyrra.
Ef myndin lýgur ekki, má mikiö vera, ef dómarinn tekur ekki
hennar málaleitan vel. Þaö sýnist synd, ef svona „meistara-
stykki” hefur veriö skemmt af klaufaskap.
VERDUR VEIÐI
Á SKÍÐISHVÖL-
UM BÖNNUÐ?
Skorað hefur verið á al-
þjóðlega hvalveiðiráðið að
banna veiðar á skíðishvöl-
um og minnka til mikilla
muna veiðikvóta búrhvala
fyrir næstu vertíð.
I fréttaskeyti frá Reuter segir,
að ein af undirnefndum ráðsins,
skipuð visindamönnum, hafi lagt
þetta til eftir ákafar umræður og
heitar. — Þótti liklegt, að ráðið
mundiverða við þessum áskorun-
um á fundi sinum i dag.
Tillagan um algert bann við
veiði á skiðishvölum sprettur upp
af þeim fullyrðingum nokkurra
aðildarrikja ráðsins og umhverf-
isverndarmanna viða, að stofnum
þeirra hvalategunda stafi mikil
hætta af ofveiði.
Undirnefndin leggur um leið til
að á suðurhveli jarðar verði leyft
að veiða af búrhvölum 3.033 karl-
hvalir og 78 hvalkýr. — En raunar
var nefndin klofin og lagði hinn
hluti hennar til, að veiðikvótinn i
Suðurhöfum yrði 3894 karlhvalir
og 897 hvalkýr. — Báðir þessir
kvótar mundu verða mikið lægri
en i fyrra, en þá mátti veiða 5,870
karldýr og 4.870 kýr.
t Norðurhöfum er lagt til að
veiðikvótinn verði 4.320 karlhval-
ir en 2.880 kýr. — Þar mátti veiða
i fyrra 51200 karldýr og 3.100 kýr.
Veiðibannið á skiöishvölum
mundi koma harðast niður á
Japan, meðan sovéskir hvalveiði-
menn mundu finna mest fyrir
minnkun veiðikvóta búrhvala.
Ófríður að nýju
í Líbanon
Skotblossarnir lýstu
upp náttmyrkriö i út-
hverfum Beirút, þegar
barist var af hörku fram
á nótt. — Varð ekki meö
Andófsmenn settir í geðveikra-
hœli i Austur-þýskalandi
Austur-þýskur
visindamaður segir i
viðtali, sem birtist í
blaði i Frankfurt i gær,
að þess séu dæmi, að
austur-þýskir andófs-
menn hafi verið lokaðir
inni á geðveikrahælum.
Robert Havemann, prófessor —
sem var efnafræðingur við Hum-
boldt-háskólann i Austur-Berlin,
uns honum var vikiö úr kommún-
istaflokknum 1964 — lætur hafa
þetta eftir sér f viötali viö ,,Me-
tall”, málgagn vestur-þýskra
málmiðnaðarmanna.
Hinn 66 ára gamli prófessor
segir við tiðindamann blaösins,
að „sé einhver til pólitisks ama i
A-Þýskalandi er þeim sama
varpaö út”.
neinu móti séð, að það
ætti að heita vopnahlé í
landinu, eða að leiðtogar
araba hefðu á prjónunum
að halda fund til þes að
koma á sáttum í Libanon.
Eftir tveggja daga orustur við
flóttamannabúðir Palestinu-
araba hjá Tel Al-Zaatar réðust
skæruliðar paiestlnuaraba i
hefndarskyni inn I Ain Al-
Rummaneh, sem er hverfi
kristinna manna.
Var eins og aldrei hefðu verið
töluð þau orð, sem fóru á milli
forsætisráðherra Sýrlands og
Egyptalands i Riyadh þar sem
skipst hafði verið á viljayfirlýs-
ingum til þes að koma á kyrrð i
Austurlöndum nær.
Að undanförnu hafa sýrlend-
ingar kallað heim herlið sitt að
mestu úr Libanon, eftir sam-
komulag leiðtoga arabarikj-
anna um að senda sameiginlegt
friöargæslulið þangað. —
Palestinuarabar voru sann-
færöir um,aö árás hægri manna
á flóttamannabúðirnar i Tel Al-
Zaatar væru tilraun til þess að
færa sýrlendingum heim sann-
inn um að þeir yrðu að hafa
áfram herlið i Libanón til að stia
ófriðaraðilum sundur. En sýr-
lendingar hafa haldið áfram
heimflutningi hermanna sinna.
Hægrimenn notuðust við
skriðdreka i árásinni og stór-
skotaliö, en eftir nokkurra
klukkustunda bardaga hörfuðu
þeir aftur. — Þeim mun hafa
verið mest i mun að komast yfir
vopnabúr Tel Al-Zaatar, þar
sem a ða 1 vopna bir gðir
palestinuskæruliða munu
greymdar.
Suður- og Norður-
Víetnam sameinað
Suður-Vietnam og
Norður-Vietnam verða i
framtiðinni nefnd einu
heiti „sosialista-lýð-
veldið Vietnam”, og
verður Hanoi höfuðborg
þessa nýsameinaða
rikis.
Útvarpið i Hanoi, sem flutti i
gær opinbera yfirlýsingu, um að
þessi tvö riki væru nú sameinuð I
eitt, skýrði um leið frá þvl, að hér
eftir yrði Saigon, fyrrum höfuð-
borg Suöur-Vietnam, kölluð Ho
Chi Minh-borg eftir leiðtoga
Norður-Vietnama sem lést 1969.
Hið nýja riki fær nýjan fána,
nýjan þjóðsöng, nýtt rikistakn og
nýja stjórnarskrá. — Nýi þjóð-
söngurinn verður ,,Tien Qua Ca”
(Hermenn áfram gakk), gamall
byltingarsöngur, sem Viet
Minh-skæruliðar kyrjuöu í and-
stöðu sinni gegn frönskum ný-
lenduyfirvöldum fyrrum. Nýi
fáninn er rauður með gulri
stjörnu (fimm-hyrndri), en það er
fáni Viet Cong istriðinu gegn Sai-
gonstjórninni og Bandarikjunum.