Vísir - 23.07.1976, Side 1

Vísir - 23.07.1976, Side 1
ðtigangsmenn leggja útlendinga í einelti Tuttugu útigangsmenn eru handteknir í miðborg Reykjavikur á degi hverjum. Lögreglan segir þá leggja útlendinga í einelti til að betla af þeim peninga. „Þetta er stórkostlegt vandamál"# segir Erlendur Sveinsson varð- stjóri i samtali við Vísi. — sjá baksíðu Slasaöi maðurinn borinn úr þyrlu varnarliösins viö komuna til Reykjavíkur i morgun. Vísismynd: Kari Jeppesen. g ELDSNEYTISVEL OG ÞYRLA I SJUKRAFLUGI I MORGUN Þyrla frá varnarliöinu á Keflavikurflugvelli sátti i nótt siasaöan mann austur i Landmannalaugar og flaug meö hann til Reykjavíkur. Hópur þjóöverja var þarna á ferö, og ungur maöur i hópnum féll fram af klettum og slasaöist mikiö á höföi. Læknir sem var með hópnum taldi ekki þorandi að flytja hinn slasaða i bil, þar sem taliö var að hann heföi fengið slæman heilahristing og jafnvel aö blætt hefði á milli höfðukúpu og heila. Flugskilyrði voru fremur erfiö yfir Landmannalaugum sökum dimmviðris og tók flug- ferðin þvi lengri tima en áætlaö haföi verið. Varð að senda elds- neytisvél til móts við þyrluna til að hún kæmist til baka. Þyrlan kom svo til Reykja- vikur um hálf-niu i morgun, og sjúklingurinn fluttur á Borgar- spitalann. AH SIGLUFJORÐUR: Loðnumóttöku hœtt Sfldarverksmiöjur rikisins á Siglufiröi hafa tilkynnt loönu- nefnd aö þar sé nú hætt aö taka á móti loðnu. Jón Reynir Magnús- son, framkvæmdastjóri SR, er nú staddur á Siglufiröi — og sagöi hann I morgun aö meö núverandi afköstum þýddi ekki aö taka á móti meira magni. Jón sagði að mjölið væri feitt. „Það er ekki nóg pressa til að ná fitu úr kökunni”, sagði hann. Jón sagöi að þeir fengju auka- skilvindu i næstu viku. Siðasti bátur sem landar á Siglufirði þar til annað verður til- kynnt loðnunefnd, er Asgeir RE, en hann kom inn til Siglufjarðar um hádegisbilið. Bræðslan hefur gengið eftir at- vikum i Bolungarvik. Þar hefur ekki verið tekið á móti miklu magni og verksmiðjan þar haft undan aflanum sem borist hefur. Jón Finnsson landaði þar 280 tonnum i morgun. Hjálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur um borð i Bjarna Sæmundssyni, sagði i morgun aö veiði hefði verið treg undanfarið og bátar aðeins fengið slatta. Loönuflotinn er enn norður af Horni og viröist vera allmikið um loðnu þar. En hún er stygg og illa gengur að ná henni. Hjálmar sagði að skipstjórarnir hefðu haft á orði að loönan væri hin fallegasta — það væri bara ekki hægt að ná henni. Bjarni Sæmundsson hefur leitað norður af Siglunesi en litið fundið —EKG. Lótinn maður fékk launahœkkun „Úrskurður kjara- nefndar sýnir ljóslega að ekkert tillit hefur verið tekið til kröfugerð- ar Starfsmannafélags ríkisstofnana, en hins vegar ganga röksemdir rikisvaldsins eins og rauður þráður i gegnum úrskurðinn”. Þetta kemur fram i ályktun sem Visi hefur borist frá stjórn og trúnaðarmannaráði Starfs- mannafélags rikisstofnana. Þar segir einnig að vinnubrögð nefnd- arinnar séu forkastanleg að öðru leyti. Til dæmis sé úrskurðað um störf, sem ekki eru lengur til, önnur hverfi og enn önnur lækki. Aö þvi er segir i ályktuninni er dæmi til um að maður sem hefur verið látinn i rúmt ár fái eins flokks hækkun. Trúnaðarmannaráð félagsins mótmælir harðlega þessum úr- skuröi kjaranefndar. Það telur að nefndin hafi með honum gefið mjög skorinorða yfirlýsingu um, hvernig hún litur á hlutverk sitt, og það sé um leið yfirlýsing til rikisstarfsmanna um að nú þurfi að breyta um starfsaðferðir. Trún- aðarmannaráöið bendir á að úr- skurður nefndarinnar sé enn ein röksemd fyrir þvi hve rýmkun verkfallsréttarins sé brýnt við- fangsefni. Nú megi öllum vera ljóst að leiðrétting fáist ekki á kjörum félagsmanna ef ekki sé hægt að setja þunga verkfalls- réttarins bak við kröfurnar. Kröfugerð félagsins hafi verið hógvær og langt frá þvi aö nálgast þær viðmiðanir 'sem félagsmenn hafi úti á hinum frjálsa vinnu- markaði. Trúnaöarmannaráð fól stjórn félagsins að leita eftir samstöðu og samvinnu við önnur félög inn- an BSRB til undirbúnings aðal- kjarasamnings á næsta ári með verkfallsréttinn að bakhjarli, og fá á þann hátt leiðréttingu þá sem nú var hafnað. —AHO. .. Sýnir myndir sem honn tók fyrir sextíu órum Sjá /#Lif og list" bls. 8

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.