Vísir - 23.07.1976, Page 3

Vísir - 23.07.1976, Page 3
VISIR Föstudagur 23. júll 1976. 't 3 „Skattstofan höllum fœti" stendur — segir skattstjórinn í Reykjavík Mjólkór- virkjun vígð í gœr „Við reynum aö gera eins vel og við getum. En við getum ekki meira”,sagði Halldór Sigfússon skattstjóri I Reykjavfk þegar hann kynnti nýju skattskrána fyrir fréttamönnum I gær. Halldór er nú búinn að starfa i skattamálum i 46 ár þar af sem skattstjóri i 42 ár. „Ég er ekki farinn að skilja skattamálin almennilega ennþá”, sagði hann. „Að fást við framtölin og leggja skattana á fer að veröa álika flókið útreikningsfyrir- brigði og að lenda á Mars. „Skattamálin hafa sinn sjarma. En skattstofan stendur höllum fæti. Hún hefur verið olnbogabarn i kerfinu.” „Slaga hátt upp undir Laxness i bókaútgáfu” „Ég er nú farinn að slaga hátt upp undir Laxness i útgáfu á bókum. Frá þvi ég varð skatt- stjóri árið 1934 eru liðin 42 ár og á hverju ári hafa komið út skattskrár”, sagði Halldór Sig- fússon skattstjóri i gær. Þegar Halldór fyrst varð skattstjóri voru heildarskattar og útsvör i Reykjavik um þrjár milljónir króna. Nú nema heildargjöldin i höfuðborginni þrjátiu og einum milljarði króna. Svarar þaö til meira en hálfra fjárlaga rikisins. Það er meira en tiu þúsundfalt frá þvi sem var árið 1934 eða tiltöluleg hækkun meir en ein milljón prósent. —EKG ------------------> Halldór Sigfússon skattstjóri. „Að fást við framtölin er álika flókið fyrirbrigði og að lenda á Mars.” Tekjurnar þrisvar sinnum lœgri en heildargjöídin Pálmi Jónsson eigandi Hag- kaups greiddi hæst gjöld einstaklinga i Reykjavik i ár. Hann leggur til rikisins 15.488.272. Það ber að hafa i huga að Pálmi rekur stórfyrir- tæki sem einkaaðili og eru þvi gjöld hans lika þau sem annars hefðu fallið á Hagkaup. Tekjur Pálma á siðasta ári miðað við að útsvar hans sé 11% af heildartekjum eru um fjórar og hálf milljón króna. Annar hæsti greiðandi gjalda i Reykjavik er Sveinbjörn Sigurðsson húsasmiðameistari. Hans gjöld eru litið eitt lægri en gjöld Pálma eða 14.473 milljón- ir. Þriðji maðurinn sem er með gjöld yfir 10 milljón króna er Sigfús Jónsson múrarameistari. Heildargjöld hans eru 14.283.556. Það vekur athygli við lestur skattskrárinnar að Rolf Jóhansen sem verið hefur með hæstu og oft hæsti gjaldandi i Reykjavik er nú i 12. sæti. Greiðir hann 5,6 milljónir i heildargjöld. Emil Hjartarson sem er sjötti hæsti gjaldandinn er bæði tekjuskatts- og útsvarslaus. En hann er samt með rúmar 7,3 milljónir i heildargjöld. Astæð- an fyrir þessu mun vera sú að hann er með atvinnurekstur og eru aðeins lögð gjöld á rekstur- inn. —EKG Heimsókn vestur-íslendinganna lýkur um helgina: Fara með „íslend- ingadaginn" með sér til Kanada „Það er óhætt að fullyrða, að vestur-islendingarnir, sem hér hafa dvalist að undanförnu eru allir mjög ánægðir með heimsóknina”, sagði séra Bragi Friöriksson, forseti Þjóðræknis- félagsins I Reykjavlk, er Vlsir ræddi við hann I morgun. „Þjóðræknisfélögin i Reykjavik og á Akureyri hafa veitt fólkinu aðstoð og fyrirgreiöslu og i Reykjavik hefur verið opin upp- lýsingamiðstöð fyrir vestur-is- lendingana”, sagði sr. Bragi enn- fremur. A morgun, laugardag, hefur sjónvarpið tekið Laugarásbió á leigu til þess að sýna gestunum að vestan og öðrum sem áhuga hafa á, eina litkvikmyndanna, sem sjónvarpsmennirnir islensku gerðu vestra á síðastliðnu ári. Er það „ís lendingada gurinn ”, klukkustundarlöng mynd um hátiðahöldin, sem fram fóru á Gimli I Manitobafylki i tilefni þess, að 100 ár voru i fyrrasumar liöin frá því að fyrstu Islensku landnemarnir settust að á bökk- um Winnipegvatns. Sýning myndarinnar hefst i Laugarásbiói á morgun klukkan 13.30, cn við það tækifæri mun Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, færa formanni tslendingadags- nefndarinnar i Manitoba, Ted Arnasyni, aö gjöf eintak af kvik- myndinni til sýningar vestra. Að sögn sr. Braga Friðriksson- ar verður svo efnt til „Gesta- kvölds” á vegum þjóðræknis- féiaganna á sunnudagskvöidiö að Hótel Sögu, og hefst þaö klukkan 20.30. Þar verða allir vestur-Is- lendingarnir gestir félagánna og er einnig búist við mikilli þátttöku ýmissa heimamanna, sem lagt hafa leið sina i byggðir islendinga fyrir vestan eða hafa á annan hátt verið I tengslum við vestur-Is- lendinga. „A gestakvöldinu verða fram- reiddar kaffiveitingar og flutt ávörp, skemmtiefni og stiginn dans. Þá veröur þess sérstaklega minnst aldarafmælis byggðar is- lendingar i Rivertonbæ I Mani- toba, en sá bær hefur nýlega bundist Kópavogi vináttubönd- umsagði sr. Bragi Friðriksson i samtalinu við Visi. SIS HEFUR BREIÐAST BAKIÐ StS greiðir langhæstu heildar- gjöld félaga i Reykjavik i ár. 136.760.780 krónur þurfa þeir að reiða af hendi til rikisins á þessu ári. 23 fyrirtæki I Reykjavik greiða yfir 15 milljónir i heildar- gjöld I ár. Flugleiðir greiða næst hæstu gjöldin eða 76,3 milljónir. Þá kemur Eimskip með um 63.1, Oliufélagið 59,3 og ölgerð Egils Skallagrimssonar 46,8 milljónir. —EKG Mjólkárvirkjun i Arnarfiröi var vigð i gær viö hátiðlega at- höfn. Það var Matthias Bjarna- son sjávarútvegsráðherra sem ræsti aflstöðvar virkjunarinnar i forföllum orkumálaráðherra Gunnars Thoroddsen. Ætlunin hafði verið að orku- ráðherra kæmi vestúr til vigsl- unnar ásamt blaðamönnum og fjölda gesta, en vegna slæmra flugskilyrða i gær gat ekki orðið af þvi. Visir náði i gærkvöldi tali af Valgarði Thoroddsen raf- magnsveitustjóra i Hótel Flóka- lundi, og fékk hjá honum nokkr- ar upplýsingar um hina nýju virkjun. Valgarð sagði að virkjunin væri 5700 kilówött, og leysti hún af hólmi gömlu virkjunina sem væri aðeins um 2000 kw á stærð.. t gömlu virkjuninni var vatnið tekið úr 200 metra fallhæð, en núna væri i þessari nýju virkjun farið upp i 500 m fallhæð. Raforkuverið hefur verið reist i áföngum, og mun hafa verið byrjað á stiflugerð áriö 1972. Það var verktakafyrirtækið ÍSTAK hf, sem sá um allar verklegar framkvæmdir. Vélar virkjunarinnar eru aðallega frá Júgóslaviu, en einnig frá Frakklandi og Sviþjóð auk fleiri landa. Virkjunin i Mjólká i Arnar- firði hefur verið prufukeyrð nú um nokkurn tima, og hafa vélar raforkuversins reynst vel. Afl- vélarnar voru fyrst gangsettar um áramótin siðustu. —AH

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.