Vísir - 30.07.1976, Blaðsíða 19
VISIR . Föstudagur 30. júli
23
Hjálpum nauðstöddum kmda
Mismunun
kynjanna
E.S. skrifar
t sumarbyrjun bárust þær
fréttir til landsins a6 tvö íslensk
ungmenni hefðu verið handtekin
á Spáni fyrir hasssmygl. Stúlk-
unni var sleppt fljótlega úr
landi, fyrir aldurs sakir að mig
minnir. Aftur á móti situr pilt-
urinn enn i' spænsku fangelsi og
bíður eftir réttarhöldunum sem
eiga vístekkiaðhefjastfyrreni
september. öll vitum við hvern-
ig stjórnarfariö hefur verið á
Spáni og öll höfum við heyrt um
harðneskju spænsku lögregl-
unnar. Að menn hafi þurft að
blða árum saman eftir dómi i
málum sinum eöa jafnvel
gleymst.
Þó aö ýmsu sé ábótavant I
Islenskum réttarfarsmálum og
þar með talið fangelsismálum
þá eru spænsku fangelsin
örugglega á nokkuð lægra stigi.
Landið liggur ekki langt frá
Afriku svo llkur eru á að eitur-
lyfjaneysla svo sem neysla
heróins tiðkist meðal fanga á
Spáni. Þó að mál þetta sé mér
ekki kunnugra en öðrum sem
lesa blöðin, þá sest illa I mig sú
þögn sem rikt hefur um máliö.
Aö vlsu birti eitt dagblaðanna
reyfarakennda frásögn blaða-
manns þess af heimsókn hans i
fangelsiö en ekkert raunhæft
hefur birst að ráM. Gerum við
okkur grein fyrir þvl að landi
okkar, kannski ættingi (á þvi
eru miklar llkur hér I fámenn-
inu), ungur að árum, hálf-
þritugur er I höndum fjarlægs
réttarfars. Hann er einn þarna
úti — ekki hefur hann ættingja
sina þar. Mjög liklega kann
hann ekki mál innfæddra og
sem fyrrverandi sólarlandafari
veit ég aö spánverjar eru ekki
miklir tungumálamenn. Málið
er jú mjög þýöingarmikið.
Hann hefur þörf fýrir lögfræð-
ing og hver borgar honum?
Varla hann sjálfur. Hefur fjöl-
skylda hans fjárhagslegt bol-
magn til að borga sæmandi lög
fræðiaðstoð? Er ekki skylda
okkar að leggja fram okkar
skerf tii aðstoðar? Veitir rikis-
stjórnin einhverja aðstoö?
Látum hann
ekki gleymast
Fyrir nokkrum árum var
islensk stúlka tekin úti i Israel
fyrir fikniefnasmygl. Islensk
yfirvöld sáu til þess að hún
komstheim.Fyrir u.þ.b. tveim-
ur árum var islensk stúlka
handtekin i London þar sem hún
var I félagsskap með kókain-
smyglurum. Islenska sendiráð-
ið þar i borg veitti henni vernd
gegn hugsanlegri lifshættu. Sekt
viökomandi er mismunandi i
þessum dæmum sem ég tek, en
öll eiga þau sameiginlegt að’
vera Islensk og hafa lent I úti-
stöðum viö erlenda löggæslu
vegna fikniefna. En hver er
munurinn á þeim sem fengu
islenska aðstoð og honum sem
enga hefur fengið?
Svariö hlýtur að fá hvern
mann til aö roöna: þær eru
kvenkyns verur en hann er karl-
maður. Karlmenn hafa verið
kallaðir sterkara kynið en veitir
það honum lögfræöiaöstoö? Er
það trygging fyrir þvl að hann
komi óskaddáöur út úr þessu?
Ef hann kemur þá lifandi. Við,
islendingar byggjum samfélag
þar sem við borgum fyrir aö fá
að vera með. Við vinnum, borg-
um skatta, reynum aö hlýða
settum lögum, þeir sem brjóta
þau borga fyrir sig með þvi aö
sæta hegningu. Þetta samfélag
hlýtur aö eiga að vernda okkur
og hjálpa. Ef við missum heils-
una eru tryggingar fyrir hendi
sem aðstoða okkur fjárhags-
lega. Fleiri dæmi mætti nefna.
Er ekki Uka skylda þess, þar
með aö segja okkur að hjálpa
unga manninum sem situr úti I
spænsku fangelsi? Þá er ég ekki
að meina að hlifa honum við
refsingu þvi sekt hans er augljós
En það minnsta sem við getum
gert er aö stuöla að þvi að hann
njóti sama réttlætis og hann
myndi gera hér á landi i okkar
samfélagi. Þaö er að sjá til þess
að hann fái tilhlýöilega lög-
fræðiaöstoð. Látum hann ekki
gleymast og rotna I spænsku
fangelsi. Ef rlkisstjórnin rankar.
ekki við sér getum við sett pen-
inga i sjóð. Margt smátt gerir
eitt stórt.
LESENDUR
HAFA ORÐIÐ
er vettvangur lesenda Vísis
86611
rirlslenskufangelsi. Spænsku fangelsin eru á lægra stigi.
1 jwiiil im
IT i 0%
að Úlfijótsvatni um verslúnarmannahelgi
Við viljum vekja athygli ó eftirfarandi:
1 Rauðhetta er mót fyrir alla
hressa ogkáta unglinga á aldr-
inum 12—25.
IDagskráin á Rauðhettu er
fjölbreyttasta dagskrá er ver-
ið hefur á nokkurri útihátið
hér á landi.
lAðstaðan á úlfljótsvatni er
mjög góð og verður kappkost-
að að vel fari um alla.
fLauslega áætiað, er saman-
lagður timi sem farið hefur i
undirbúning kominn i 5200
klst. og er lágt reiknað, þvi
mikið hefur verið gert.
IFólk er beðið að notfæra sér
hópferðir þær sem upp á er
boðið — svo ekki skapist um-
ferðaröngþveiti.
> Vinsamlegast merkið farang-
ur vel og passið að hann fylgi
ykkur alla leið.
I Verið vel búin, þvi þó við séum
búnir að semja um gott veður,
vitum við að samningar geta
alltaf brugðist.
iMótssvæðið verður opnað kl. 4
á föstudag.
IMeðferð áfengis er bönnuð á
mótssvæðinu.
► Verið velkomin.
VERÐLA UNA - KROSSGÁTURITIÐ
10. HEFTI
KOMIÐ