Vísir - 30.07.1976, Blaðsíða 20

Vísir - 30.07.1976, Blaðsíða 20
VÍSIR Föstudagur 30. júli 1976. Þrír nýir mynda- flokkor á dagskrá í ágúst ,,Það verða svo sem engar stórvægilegar breytingar á sjón- varpsdagskránni á næstunni”, sagði Björn Baldursson, dagskrár- ritari sjónvarpsins, i samtali við Vísi, en sem kunnugt er hefst útsending sjónvarpsins að nýju á sunnudaginn kemur að lokinni sumarlokun. „Þó byrja nokkrir nýir þættir i næstu viku,” sagBi hann. „Á sunnudag verbur sýndur fyrsti þáttur myndaflokks um Hróa hött, og á miBvikudaginn hef jast tvær nýjar framhaldsmyndir. Onnur þeirra heitir „Paper moon” og fjallar um feBgin sem ferBast um miövesturriki Bandarikjanna á kreppuárun- um og lenda I ýmsum ævin- týrum. Hin framhalds- myndin er njósnasaga og nefn- ist „Hættuleg vitneskja.” ÁBur en langt um liBur byrjar þriBjaframhaldsmyndin, sem er sagan um Jane Eyre i fimm þáttum. — AHO Ég sá.............. „Ég sá háan, grannan mann meö hanska lyftastormjárninu á glugga I húsinu mlnu”, sagöi maöur er býr á Eiriksgötunni I Reykjavik sem haföi samband viö Visi eftir aö hafa lesiö frásögn konu á Seltjarnarnesi I gær, er taldi sig hafa séö hinn umrædda Náttfara i húsi sinu. „Ég var aö fá mér mjólkurglas eitt kvöldiö,” sagöi maöurinn, „og heyröi eitthvaö rjálaö viB glug^a. t fyrstu skipti ég mér ekkert af þvi, taldi þetta bara vera misheyrn. Þaö var ekki fyrr en litill hundur sem ég á hljóp geltandi aö glugganum aö ég hljóp til. En um leiö og þrjóturinn varö mannaferöa var hljóp hann I burtu eins og spretthlaupari Gegn lokun mjólkurbúða Um sextiu manns mættu á al- mennan borgarafund i gærkvöldi þar sem rætt var um lokun mjólk- urbúöa. Þaö voru einstaklingar úr rööum neytenda sem aö fund- inum stóöu, aö sögn Elisabetar Bjarnadóttur, eins aöstandenda fundarins. Mikil samstaða var á fundinum að sögn Elisabetar og voru fund- arrnenn á einu máli um að ekki kæmi til greina aö loka mjólkur- búöunum. Var bent á aö um 160 konur myndu missa við það at- vinnuna, þvi þó kaupmenn heföu lofað aö afgreiöslustúlkur heföu forgang aö störfum i búöum sem tækju upp mjólkursölu, yröi raun- in sú aö aöeins i fáum yrði fjölgað starfsfólki. I lok fundarins var kosin sjö manna nefnd sem á að boða til annars fundar. Er verkefni hennar ennfremur það aö leita ' samstööu hjá félagi afgreiöslu- stúlkna i brauða og mjólkur- búöum og fleiri sem hagsmuna hafa aö gæta. —EKG á Matterhorn á 11 h fw /r *:"T: i !,# i jSh Hinn hrikalegi fjalls- tindur Matterhorn i Sviss fær slatta af is- lendingum i heimsókn á þessu ári. Fyrir nokkru klifu félagar úr Hjálparsveit skáta i Reykjavik tindinn, og i gær lögðu sex félagar úr Hjálparsveit skáta i Vestmannaeyjum af stað til Sviss i sama til- gangi. „Þaö er hægt aö nefna þúsund ástæöur fyrir þessari ferö okk- ar, og þær eru allar jafn gild- ar”, sögöu félagarnir i spjalli viö Visi. Þeir eru allir vanir fjall- göngumenn, og þrir þeirra voru t.d. fyrstir til aö klífa Þumal I Vatnajökli. Akvöröunin um aö faraá Matterhorn vartekin fyr- ir rúmu ári, og siöan hafa þeir æft ósleitilega úti I Eyjum. Sem dæmi má nefna aö þeir fóru tvisvar I viku upp á Heimaklett meö bakpoka fulla af fræi og á- burði, til aö auka þoliö. Eyjapeyjarnir fara á tveimur „tryllitækjum” suöur I alpana. Þeir fara meö Smyrli frá Seyö- isfiröi á laugardag, og aka siöan frá Noregi og til Sviss á nokkr- um dögum. Astæöan til aö þeir taka bilana meö sér er sú að þeir ætla að ferðast um I Sviss, og reyna viö fleiri fræga tinda. Jungfrau kemur til greina, svo og Eiger, sem hjálparsveitar- menn i Reykjavlk sögöu aö ekki væri nema á færi bestu fjall- göngumanna heims aö klifa. Viö spuröum sexmenningana hvort fjöldi dauöaslysa á Matt- erhom á hverju árifældi þá ekki frá þvi aö fara. „Nei, þvi aö öll þessi óhöpp hafa annaðhvort oröiö vegna þessaömennhafa notaölélegan búnaö, eöa anaö af staö i koló- mögulegu veöri. Okkar búnaöur er mjög góöur, og Uklega ekki hægt aö'fá hann betri”. Veöur er yfirleitt mjög gott viö Matterhom I ágúst. Leiðin upp á tindinn er farin I tveimur áföngum. Fyrst er farið I fjalla- Hópurinn sem fer á Matter- horn, við tryllitækin (Javelin og Mustang) sem munu flytja þá aö fjallsrótunum. Frá vinstri: Sigmar, Elias, Snorri, Kjartan, óiafur, Sig- uröur og Daöi. Ljósm. Visis: ÓT kofa sem er I 3000 m hæð, og beðiö þar eftir hagstæöu veðri. Þegar þaö kemur, er lagt af staö aö nóttu, og klifið stanslaust i fjórtán tima upp á toppinn, sem er 4500 m hár. Slöan er snúiö aftur sama dag. Bergiö er mjög bratt I efsta hlutanum, en samt veldur þaöekki mestu erfiöleik- unum.Þaöer þunna loftiö þegar komiö er yfir 4000 m, sem er versti hjallinn. Hjálparsveitarmennirnir sem fara á Matterhorn eru Daöi Garðarsson, Elías Jensson, Kjartan Eggertsson, Sigmar Gfelason, Siguröur Asgrimsson og Snorri Hafsteinsson. Tveir aörir munu fljúga til Sviss eftir viku, og slást þar I hópinn. Þaö eru Ólafur Hauksson blaöamaö- ur á Visi, sem fer upp á Matter- hom meö sexmenningunum, og Sigurður Þ. Jónsson, sem mun hafa umsjón með búnaði hóps- ins við fjallsræturnar. —EKG Hluti af búnaöinum sem veröur notaöur viö förina upp á tindinn. Þarna má m.a. sjá hjálma, Isaxir, klifurskó meö mannbroddum, fleyga, hamra og bönd. FLESTIR ÞJÓÐVEGANNA í GÓÐU LAGI „Flestir þjóðveganna eru eins góðir og þeir ger- ast bestir," sagði Hjör- leifur ólafsson hjá Vega- eftirlitinu í samtali við Vísi. Hjörleifur sagöi aö reynt heföi veriö aö hefla sem mest fyrir þá miklu feröahelgi sem i hönd fer. Rigningar á Suðurlandi hafa gert nokkuð erfitt fyrir, en þó er ástand venjulegra þjóövega gott. Á hálendinu eru vegirnir um Kaldadal og Uxahryggi ágæt- lega færir öllum bifreiöum.Fært er I Landmannalaugar, en veg- urinn nokkuö ósléttur yfirferöar á kafla. Vatnsmagn ánna á Kjalvegi og Sprengisandsleiö útilokar þá vegi fyrir fólksbilum, en þeir eru færir jeppum og stærri bif- reiðum. Fjallabaksleið nyrðri er fær jeppum og stórum bllum. Ekki er mikið vitaö um Fjalla- baksleið syöri, en þar eru miklir vextir I ám eins og vlöar. Þeim sem hyggjast leggja leið sina inn I Þórsmörk um helgina skal bent á, að Krossá er nú það vatnsmikil, að á köflum er vafa- samt að fara yfir hana á jepp- um. — SJ VERÐA BÍLAR LÖGBRJÓTA FLUTTIR BURT í KRANA? ,,Ef af þessu yröi geri ég ráö fyrir aö borgin yröi aö koma sér upp bflageymsiu meö vakt- manni. Borgin heföi siöan krana sem flytti þá bíla er væri ólög- iega lagt”, sagöi Guttormur Þormar, fram kvæmdastjóri Umferöarnefndar, er viö spuröum hann um hugsaniegar breytingar á umferöarlögum sem miöuöu aö þvf aö koma bflum burt sem lagt væri ólög- iega. „Bileigendur yröu sjálfir aö greiöa þann kostnaö sem af þessu hlytist”, sagði hann. „Yröi innheimt af þeim geymslugjald. Þeir yrðu aö borga kostnaö sem hlytist af að flytja bilinn og jafnvel sekt.” Guttormur sagði aö hug- myndin væri sú aö þessi háttur gæti borgað sig. „Þaö þyrftjL væntanlega ekki stórt geymslu- pláss”, sagöi hann. Vitnaði hann i reynslu sem norömenn hafa af þessu fyrirkomulagi. En þar hafa ökumenn beyg af þvi aö bilar þeirra séu fjarlægöur og er nú oröiö fátitt aö grlpa þurfi til sllks lengur. „Það þyrfti aö auglýsa þetta rækilega ef af þessu yröi”, sagði Guttormur. „Enn er þetta ekki komiö langt. En við erum að láta undirbúa tillögu og greinargerö. Þetta þarf aö undirbúa vel”. Guttormur sagöi aö nú ver- andi umferöarlög vantaöi heim- ild til þess aö fjarlægja bíla sem er lagt þannig aö hætta stafar af. En viöasterlendis væru skýr ákvæöi um þessi atriði. —EKG. Gleðskapur helgarinnar hafinn Gleöskapur verslunarmanna- helgarinnar viröist þegar vera hafinn, og I gær og I nótt var óvenjumikil ölvun I höfuöborg- inni. Frá þvi I gærkvöldi og þar til i morgun gistu tuttugu og fjórir fangageymslur lögreglunnar vegna ölvunar, og er þaö mjög óvenjulegt aöfaranótt föstudags. Góða veðrið I gær kann þó aö hafa átt þar einhvern hlut aö máli, en mun meira ber jafnan á drýkkjuskap I miöbænum um leiö og dregur frá sólu. — AH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.