Vísir - 08.08.1976, Blaðsíða 7
vism
Sunnudagur 8. ágúst 1976
Fé smalað til rúningar. Sveinn, útvegsbóndi, Hjörleifsson hefur
sextiu ær og á annað hundrað lömb í Bjarnarey i sumar.
Þcssi feitu og pattaralegu lömb bera þvi glöggt vitni, aö Bjarnarey
er grösug og þar er gott að vera á sumrum.
IÞessi ull á eftir að hlýja einhverjum útlendingnum I vetur, ef að lík-
um lætur.
____________________________________. ___________________'______U
Landganga 1 Bjarnarey er ekki sem þægilegust en
hausta tekur.
þangað er þó fé flutt á vorin og f land aftur þegar
Hér áður fyrr var fé viða
geymt i eyjum og grösugum
skerjum yfir sumartimann.
Þessir búskaparhættir munu að
miklu leyti aflagðir, cn þó má
finna lcifar þeirra á nokkrum
stöðum á landinu, meðal annars
i Vestmannaeyjum.
Sveinn Hjörleifsson, útvegs-
bóndi i Vestmannaeyjum, hefur
geymt fjölda fjár i Bjarnarey,
Elliðaey og Ystakletti yfir
sumartimann, og svo er einnig i
ár. Sveinn flytur fé sitt i úteyjar
um miöjan april og hefur það
þar á beit fram i miðjan október
eða þar um bil. Þetta er mikill
fjöldi, og i Bjarnarey einni eru
nú um sextiu ær og nokkuð á
annað hundrað lamba.
Sveinn og nokkrir hjálpar-
kokkar hans fóru út i Bjarnarey
ekki alls fyrir löngu til þess að
rýja fjárhópinn. Fréttaritari
Visis i Vestmannaeyjum, Guð-
mundur Sigfússon, fór með i
þessa ferð, fékk að fylgjast með
rúningnum og tók þá þessar
skemmtilegu myndir.
Ekki er mikið um mannvirki I Bjarnarey. Hér er dyttað að réttinni.