Vísir - 10.09.1976, Blaðsíða 1
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins aflar ríkissjóði drjúgra tekna:
Hagnaðurinn hólfur
milljarður á mánuði
Hagnaður af rekstri
Áfengis- og tóbaksversl-
unar rikisins hefur verið
um hálfur milljarður á
mánuði undanfarna þrjá
mánuði. f mai var
rekstrar hagnaður fyrir-
tækisins 478 milljónir
króna en hefur siðan
vaxið, og er um hálfur
milljarður mánaðar-
lega. Þetta kom fram i
samtali Visis við Jón
Kjartansson forstjóra
ÁTVR i morgun
Á fjárlögum er ÁTVR
ætlað að skila i rikissjóð
um 6 milljörðum og var
sú áætlun hækkuð nokk-
uð eftir siðustu verð-
hækkanir á áfengi og
tóbaki. Það sem af er
árinu hefur rekstrar-
hagnaður ÁTVR numið
tæplega 9% af öllum
tekjum rikisins og á
fyrstu sex mánuðum
ársins var hagnaður
ÁTVR aðeins rúmum
400 milljónum minni en
heildartekjur rikisins af
álagningu tekju og
eignaskatta. Fram til 1.
september seldi ÁTVR
vörur fyrir um 6.4 millj-
arða króna og þar af
áfengi fyrir um 3.8 millj-
arða.
Spennan á Reykjavlkurskák-
mótinu nálgast nú hámark, og
nú eru fjórir efstir og jafnir aö
12 umferðum loknum. Það eru
þeir Friðrik, Najdorf, Timman
og Tukmakov. Hafa þeir allir
hlotið 8 1/2 vinning. Enginn
þessara efstu manna á biðskák,
þar sem Najdorf gaf i gær bið-
skák sina gegn Friðrik án þess
að tefla hana frekar.
Mikill mannfjöldi fylgdist
með skákmótinu i gærkvöldi, og
var áhorfendasalurinn yfirfuil-
ur, þar til skákskýringar hófust
i hliðarsölum. Þarna rikti góð
stemmning, og menn ræddu
jafnvel um það að þetta væri
næstum eins og i gamla daga,"
þegar Spasský og Ficher tefldu i
La uga rdalsh öllinn i. Þarna
mátti lika sjá mörg andlit sem
aldrei létu sig vanta á heims-
meisiaramótið á sinum tima.
Sjá nánar um skákmótið i skák-
skýringum Jóhanns Arnar
Sigurjónssonar á bls. 6.
■j
IngiR. Jóhannsson fylgist af athygli meðskák þeirra Friöriks og Tukmakovs I gærkvöldi. — Mynd: JA
Spennan
á skák-
mótinu í
hámarki
Yfirheyrslur í ávísana-
málinu hefjast fljótlega
„Við erum núna að
kanna þann hluta gagn-
anna sem þarf til að geta
hafið frumyfirheyrslur í
ávísanamálinu", sagði
Hrafn Bragason umboðs-
dómari í samtali við Vísi í
morgun.
Sagði hann að nú væri
unnið að því að fletta í
gegnum ýmis skjöl þessu
máli viðkomandi, og
mætti jafnvel búast við
að yfirheyrslur í málinu
hæfust fljótlega.
Að öðru leyti er ekkert
nýtt að frétta af málinu,
en stöðugt er unnið að
rannsókn þess.
— AH
,Knattspyrnu-
sigrar eru
nilljón
dollara
luglýsing"
/~. \
Sœtinda
íeysla
er ávani
segir í grein
eftir Áskel
Jónsson, lcekni