Vísir - 10.09.1976, Blaðsíða 7

Vísir - 10.09.1976, Blaðsíða 7
A\ *.VNX V «5^ VISIR Föstudagur 10. september 1976. Guðmundur Pétursson. Jón Ormur'Halldórsson Belenko f ékk hœli í USA Sovéski flóttamaöurinn, Belenko, kom i gær til Banda- rikjanna þar sem honum hefur verið veitt hæli sem pólitlskum flóttamanni.Belenko fer núhuldu höföi og nauðsynlegt þótti aö viö- hafa miklar öryggisráðstafanir viö komu hans til Bandarikjanna. Belenko rétt eftir lendingu á Hakodate flugvelli I Japan. Sovésk yfir völcl hafa krafist framsals sovésku herþotunnar sem Belenko flaug til Japan en japanir hafa ekki svarað þeim. Við komuna til Los Angel- es-flugvallar var öryggisvöröur látinn klæöast nákvæmlega eins og Belenko og var mönnum ekki ljóst á flugvellinum hver var hver. A leiðinni frá Japan sat Bel- enko umkringdur bandariskum öryggisvörðum. Sovéska þotan sem Belenko fiaug til Japan er sú full- komnasta sem sovétmenn ráða yfir. Hernaðarsérfræðingar Japans eru nú byrjaöir aö rann- saka þetta tækniundur. Leiðtogarnir bera lof á Mao og bíða Indverskri flugvél rœnt í nótt Indverskri flugvél i innan- landsflugi var rænt i nótt. Vélin sem er af gerðinni Boeing 737 og er i eigu Indverska ríkisflugfé- lagsins var snúið til Pakistan og lenti vélin þar heilu og höldnu klukkan að verða 4 f nótt. Ekki er vitað hve margir far- þegar voru um borð i flugvélinni en vitað er að 6 menn skipuðu áhöfn hennar. Farþegaflug var tekiö upp á milli Indlands og Pakistans fyrr á þessu ári eftir langt hlé en indverskri flugvél var rænt árið 1971 og snúið til Pakistan og hafði það i för með sér bann indversku stjórnarinnar við flugi yfir Pakistan. Þjónaði A-Berlín V-Berlinarbúi var I gær dæmdur i 18 mán- aða fangelsi en hann hafði starfað I þágu a-þýsku leyniþjón- ustunnar til þess að geta fengið að heimsækja vinstúlku sina i A-Berlin. A meðan heimurinn biður spenntur eftir að sjá hver fram- vinda mála verður i Peking eftir dauða Maos streyma samúðar- skeytin til Kina frá öllum helstu leiötogum heims að þeim sovésku undanskildum. Ford forseti sagði aö meö Mao hefði farið stórkostlegur hug- sjónamaður, og væri dauöi hans öllum harmur. Callaghan, for- sætisráðherra breta, sagöi Mao einn mesta leiötoga þessarar ald- ar og Giscard d’Estaing kvaö Mao hafa skipað Kina á þann stað sem þvi riki hæfði. 1 Sovétrikjun- um hafa einu viðbrögðin veriö frétt sem tók tvær linur og birst hefur I fjölmiölum landsins. Enginn sjálfsagður arftaki er eftir Mao en erfðaprinsar hans hafa týnt tölunni á siðustu árum. Miklar bollaleggingar eru um harða valdabaráttu i Kina eftir dauða Maos, en benda má á að Mao var valdalaus siöustu vikur ævi sinnar og aö valdabarátta var nýlega háð og útkljáö i þessu fjöl- mennasta riki jarðar. Taka útlendingar við stjórn efnahagsmála í Bretlandi? Verkfall farmanna getur hæglega kyrkt breskan iðnað að mati manna i fjármálaheimi Lundúna. Áhrif verk- fallshótunar sjómanna koma glöggt fram á verðbréfamörkuðum og gengi pundsins en mikils vonleysis virðist gæta I viðskiptalifi breta eftir þessa siðustu óbilgirni verkalýðssamtaka. Ef af verkfallinu verður mun þaö skjótt hafa viðtæk áhrif i efnahagslifi breta sem byggist á verslun viö útlönd i rikara mæli en efnahagslif nokkurrar ann- arrar þjdðar. Óvissan sem rikir getur leitt til þess aö viðskipta- vinir breta erlendis snúi sér að vörum frá öðrum löndum fremur en að eiga á hættu vöruþurrð. Siðasta verkfall farmanna i Bretlandi, en það var árið 1966, hafði viðtækar afleiðingar, fyrir efnahag landsins, og halda sumir þvi fram að núverandi erfiöleikar i bresku efnahagslífi stafi að mjög verulegu leyti af áhrifum þessogaðgeröa sem fylgdu i kjöl- fariö. Bretar kunna að neyöast til þess að taka enn eitt neyöarlánið hjá Alþjóðagjaldeyrissjóönum ef vöruskiptajöfnuður þeirra versn- ar enn, en það mun hann gera komi til verkfalls. Bretum mun ekki standa tii boða lán meó nein- um venjulegum kjörum heldur er taliö fullvist að þaö veröi aðeins veitt meö þungum skilyröum um framkvæmd akeðinnar efnahags- stefnu i landinu. A1 þjóðagj ald eyr is sjóðuri nn er litið hrifinn af stjórn Verka- mannaflokksins á efnahagsmál- um breta og vill sjóöstjórnin hafa hönd i bagga með öllum ákvörðunum I efnahagsmálum ef af frekari lántökum þeirra verð ur. Hann hafði sótt i fyrra um vegabref til A-Þýskalands og boð- ist I staðinn til að vera leyniþjón- ustunni innan handar. Honum var faliö að reyna að komast i tæri við v-þjóðverja, sem aöstoð- uöu austantjaldsfólk við að flýja vestur yfir. Elskhuginn fann tvo v-berlinar- búa,sem buðust til aö hjálpa unn- ustu hans vestur yfir gegn 10.000 marka þóknun. Fórhann meö þá austur yfir landamærin, þar sem myndir voru teknar af þeim með leynd, en þeim leyftað fara aftur. — Kaupunum var seinna rift. Amin reiður 30 erlendir tæknifræðingar við orkuverið mikla hjá Nll i Uganda hafasagt upp störfum sinum, fullir óhugnaðar vegna þess að árstraumurinn ber til þeirra fjölda lika af her- mönnum Idi Amins forseta. 1 Nairobi i Kenya, nágrannariki Uganda, þar sem þessi tiðindi hafa spurst, er talið að likrekinn standi I sambandi við hreinsanir Amins innan hersins, eftir að hann lét israelsmenn koma sér á óvart með innrásinni á Enteb be-flugvöll i júli i sumar. 3500 ára gömul fjölskylda fannst i Austurríki Visindamenn hafa fundið merkar minjar I Austurriki um búsetu manna þar 1200-1700 árum fyrir Krists burð. Fundurinn er talinn þvi merkilegri að á fyrr- greindum tima voru Ifk manna brennd til ösku og beinafundur þessi þvi einstæöur og óvæntur. Beinm eru af manni, konu og fjór- um börnum, og eru mjög heilleg. Herða viðurlög við IRA Þing Suður-írlands samþykkti i gærkvöldi ný lög„ sem veita stjórninni aukið umboð i baráttunni gegn hinum ólöglega irska lýðveldis- her og stuðningsmönn- um hans. Hér er um aö ræöa einskonar neyðarástandslög, sem fela i sér þá breytingu á stjórnskránni, að lögreglan geturhaldiö mönnum i allt að sjö daga, án kæru eða undangengis úrskurðar. Þingið hefur enn til umræðu siðari hluta frumvarps þessa, sem gerir ráð fyrir að þyngja viðurlög við starfsemi IRA og gefa lögreglu og her frjálsari hendur um að hafa upp á stuðningsmönnum hans. _______________________I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.