Vísir - 10.09.1976, Blaðsíða 24

Vísir - 10.09.1976, Blaðsíða 24
VÍSIR Föstudagur 10. september 1976. Ætla að hringja í 3400 númer Stór hópur áhugasamra félaga i Knattspyrnufél Þrótti mun um helgina setjast viö simann og hringja i hvorki meira né minna en 3400 simamimer. Tilgangurinn er aö koma á fót styrktarmannakerfi á vegum fé- lagsins. Þegar hafa veriö send út mörg hundruö bréf til ibúa I Kleppsholti, Langholti og viöa I nágrenni Þróttarsvæöisins viö Sæviöarsund, þar sem nánar er sagt frá þessum nýja félagsskap. Þaö sem gera á um helgina er aö fá endanlegt svar frá þvi fólki sem sent var bréf, en til þess þarf aö hringja I 3400 nilmer. Þeir sem gerast félagar munu skuldbinda sig til aö greiöa 500 krónur á mánuöi I næstu tvö ár, en þá telja þróttarar og aörir i hverfinu, sem áhuga hafa á þvl aö þar risi almennilegt félagsheimili aö nægt fé veröi fyrir hendi til aö ljúka smiöi þess — þaö er aö segja ef þeir fá góöar undirtektir nú um helgina. —KLP Síðasti dansleikur Tónabœjar var fyrirmyndar samkoma Siöasti dansleikurinn — I bili aö minnsta kosti — var haldinn i Tónabæ i gærkvöldi. Var hann fyrir ungiinga á aldrinum 13 til 14 ára og stóö frá kiukkan 8 til 11. Ástæöan fyrir þvi aö nú á aö loka Tónabæ er sú aö drykkju- skapur og ólæti honum samfara hefur veriö svo mikill umhverfis staöinn aö undanförnu aö hreint ófremdarástand hefur myndast. Vegna alls þessa umtals þótti vísismönnum tilhlýöilegt aö leggja leiö sina I Tónabæ I gær- kvöldi og skoöa samkomuna. Hafi einhver búist viö aö sjá þar inni dauöadrukkna ungl- inga, þá hefur sá hinn sami vaö- iö i villu. Ekki sást vin á einum einasta gesti á dansleiknum, og virtist skemmtunin fara hiö besta fram i alla staöi. Raunar munu dansleikirnir á fimmtu- dagskvöldum aldrei hafa veriö neitt vandamál, heldur hefur þaö fyrst og fremst veriö á föstu- dögum sem vandræöi hafa skapast. ,,Þaö má raunar segja aö stærsta vandamáliö hafi alltaf veriö hér utan dyra, þvi aö drykkjuskapurinn hefur aldrei komið inn i húsiö”, sagöi ómar Einarsson, framkvæmdastjóri hússins. Sagöi hann aö ólætin heföu oft verið mikil úti á planinu, en þó aldrei eins mikil og tvo siðustu föstudaga. Þá heföi legiö viö aö hreint neyöar- ástand heföi skapast þar úti. Annaö starfsfólk Tónabæjar tók i sama streng og sagöi aö þaö væri aðeins um 20 manna hópur sem væri nóg til aö setja þennan blæ á alla unglingana. Þeir slöngruöu þarna um meö fullar brennivinsflöskur og gæfu svo þeim yngri og þannig yröi almennt fylliri aö staöreynd. Þá var starfsfólkiö mjög gramt út I lögregluna og kvaöst furða sig á þvi aö þeir tækju ekki á- fengiöaf 15 til 16ára unglingum, jafnvel þótt þeir væru aö staupa sig á stórum flöskum nánast viö nefiö á þeim. Taldi starfsfólkiö aö slikt gæti leyst vandann aö hluta til a.m.k. ef harkalega væri tekiö á þessum unglingum. Nánar veröur sagt frá heim- sókn visismanna I Tónabæ hér I blaöinu á næstunni. — AH Hér dunar dansinn I Tónabæ i siöasta skipti I bili a.m.k. Krakkarnir virtust skemmta sér hiö besta, og vin sást ekki á nokkrum manni. Mynd: JA Mikil óánœgja hjá ýmsum aðilum VILLANDI UPP- LÝSINGAR UM ATVINNULEYSI „Eigandi ylrœktar- versins hlýtur að ráða staðsetningunni" — segir forstjóri Rannsóknar- stofnunar landbúnaðarins Mikil óánægja er hjá ýmsum aöilum meö hvernig hagaö er birtingu félagsmálaráöuneytis- ins á upplýsingum um atvinnu- leysi á islandi. Ráðuneytiö sendir frá sér mánaðarlegar upplýsingar um fjölda atvinnulausra I kaupstöö- um og kauptúnum landsins. 1 þessum upplýsingum er einnig getiö um fjölda atvinnuleysis- daga i mánuöinum á undan. Samkvæmt siöustu upplýsing- um ráðuneytisins eru 52 at- vinnulausir á Húsavik, en eng- inn var skráður þar atvinnulaus um mánaöamótin þar á undan. Samkvæmt upplýsingum Verkalýösfélags Húsavikur eru þessar tölur einstaklega villandi og að þeirra mati er fáranlegt aö birta þær. Tölurnar taka einungis til siðasta dags hvers mánaöar, en fyrir hefur komið aö fjöldi fólks hafi skráö sig þann dag einan en haft aö öðru leyti fulla vinnu I mánuöinum. Um siðustu mánaöamót voru eins og áöur segir 52 atvinnulausir á Húsa- vik, en ástæöan fyrir þvi var, aö fiskvinnsla var ekki i frystihús- inu þann dag og er atvinnuleysi á Húsavik mjög óverulegt. JOH ,,Mergurinn málsins er sá að ef sá sem rekur og á ylræktarverið hlýtur að segja til um hvar eigi að staðsetja það”, sagði dr. Björn Sigurbjörnsson for- stjóri Rannsóknar- stofnunar land- búnaðarins i samtali við Visi i morgun. En Björn er formaður nefndar þeirrar er fór til Hollands i sumar til viðræðu við aðila þar um byggingu ylræktar- vers hér á landi. Bæði hvergerðingar og reyk- vikingar munu nú hafa hug á að ylræktarverið veröi reist hjá þeim og hafa þeir bent á atriði sem þeir telja að mæli meö þvi að svo veröi gert. Björn sagöi aö ef fyrirtæki i Reykjavik og Reykjavikurborg ættu ylræktarverið myndu þau væntanlega vilja hafa það þar. En ef aðilar i Hveragerði ættu það réöu þeir staösetningunni. Ef hins vegar rikið ætti ylrækt- arverið réöi þaö þvi hvað þaö yrði sett niður. Björn sagði varöandi staðar- valið að ylræktarverið yröi aö vera sem næst alþjóöaflugvelli. Þá þyrfti það að vera i nánd við þéttbýliskjarna svo ekki þyrfti að byggja yfir starfsfólk. Og auðvitað yrði það að vera á svæði þar sem auðvelt væri aö fá heitt vatn. Harður árekstur á Reykjanes- braut Harður árekstur varö milli tveggja fólksbifreiöa á Reykjanesbraut i gærkvöldi. ökumaður annarrar bifreiö- arinnar skarst á handlegg og litilsháttar I andliti. Areksturinn varö á móts viö Njarövíkur á gatnamótum Hjallavegar og Reykjanes- brautar. Skemmdir uröu nokkrar á bifreiiöunum, en aö sögn lögreglunnar uröu þær þó minni en I fyrstu leit út fyrir Maðurinn sem slasaöist fékk að fara heim eftir aö læknir haföi gert aö sárum hans. —SJ Erfiðleikar við útburð Vegna þess aö skólar eru nú ný- byrjaöir hefur reynst erfiöara aö fá blaöburöarbörn til starfa en i sumar, og getur þvi veriö aö blaö- iö komi eitthvaö seinna til lesenda næstu daga. Eru lesendur VIsis vinsamlega beðnir aö sýna biölund þar til blaöburðurinn veröur aftur kom- inn i fast horf, en þaö veröur von- andi eftir aöeins örfáa daga. Sviðsetja umsvif stórlaxa Leikfélagið œfir leikrit eftir Molnór „Leikur þessi fjaliar i tveimur sjálfstæðum þáttum um fjármála- ævintýri i heimi góð- borgaranna, og þar er lýst umsvifum stórlaxa i atvinnulifinu á skop- legan hátt,” sagði Jón Hjartarson leikstjóri er Visir leit inn á æfingu i Iðnó i gærkvöldi. Þar er verið að æfa leikritið „Stórlaxa” eftir Fer- enc Molnár. Leikritið veröur frumsýnt eftir viku, föstudaginn 17. sept- ember. 1 leikritinu koma fram tiu ieikarar i alls þrjátiu og þrem hlutverkum, en gerö leik- ritsins býöur upp á þannig með- ferð.aðsögn Jóns, og stafar þaö af þvi hve mörg smáhlutverkin eru. Að sögn hans er þaö mjög óvenjulegt aö svo margir leik- arar leiki mörg hlutverk i einu og sama verkinu, en nokkuö er gert af þvi meö tvö hlutverk, og skipta þá hraöar skiptingar miklu máli. Sem fyrr segir eru leikararnir tiu talsins, og leika þeir Þor- steinn Gunnarsson og Guö- mundur Pálsson stærstu hlut- verkin, en þeir eru athafnasam- ir bankastjórar, sem kunna ýmsa klæki I viðskiptum og nota völd sin og auö til aö koma viö- kvæmum málum I höfn. Astæða þess aö þetta verk var tekiö fyrir núna er sú, aö einmitt á siöustu misserum hefur fjár- málavafstur og spilling hvers konar verib mikið til umræöu, og gæti þetta hugsast sem til- legg leikhússins I þá umræöu, aö sögn leikstjórans. —AH Nokkrir stórlaxanna i fjármálaheiminum á fjölunum I Iönó, þar sem veriö er aö æfa leikrit eftir Ferenc Molnár. Mynd: JA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.