Vísir - 10.09.1976, Page 12
X'
(
f
Fer Osgood til
V-Þýskalands?
V-þýskt 1. deildarliö hefur sýnt mikinn
áhuga á aö kaupa Peter Osgood, hinn kunna
leikmanna Southampton.
Útsendarar þýska liösins voru i Englandi
um helgina til aö fylgjast meö Osgood, og
hafa þeir gert Southampton tilboö. Talsvert
ber þó enn á milli þess sem þeir buöu og
þeirrar upphæöar sem Southampton vill fá
fyrir kappann, en taliö er aö saman muni
ganga meö félögunum á næstunni.
Þá eru nokkur félög farin aö ræöa viö for-
ráðamenn Liverpool vegna Kevin Keegan
sem leikur nú sitt siðasta keppnistimabil meö
Liverpool. Bæöi Real Madrid og Barcelona
hafa þcgar gert Liverpool tilboö i Keegan, en
þeim hefur ekki verið svaraö enn. Einnig er
taliö aö v-þýska félagiö Hertha Berlin komi
sterklega til greina meö aö kaupa Keegan.
Efst á óskalista forráöamanna Liverpool
þegar þeir þurfa aö fá mann i hans staö eru
þeir Trevor Francis frá Birmingham og
Butch Wilkins frá Chelsea. gk—
Stóru orðin
stóðust ekki
„Astæöan fyrir þvi aö viö ætlum aö fara
austur er sú aö Reynismenn „guggnuöu” á
þessu og ákváöu aö fara”, sagöi Guöni Páls-
son, varaformaöur knattspyrnudeildar
Aftureidingar, þegar viö ræddum viö hann i
morgun. ,,Þar sem þeir ætla aö fara, sjáum
viö engan tilgang i þvi aö sitja heima og ætl-
um okkur bara aö fara austur og vinna
þessa leiki”.
Já, þeir létu sig þrátt fyrir öll stóru oröin
sem þeir hafa látiö falla aö undanförnu. Aö
sögn munu leikmenn Reynis hafa viljaö fara
austur, þeir hafa litinn áhuga á aö leika i 3.
deildinni, og þeir hjá Aftureldingu fylgja
þeim eins og skugginn. E t.v.hefur þetta bara
veriö bragö hjá Reyni til þess aö fá Aftureld-
ingu til þess aö sitja heima. Þá heföi leiöin til
aö halda 2. deildarsætinu veriö greiö!
gk—
Þór og Þróttur
ó morgun
Leikur Þórs og Þrottar um lausa sætiö i 1.
deild að ári fer fram á Kópavogsvellinum kl.
14 á morgun.
Þorsarar höfnuöu sem kunnugt er í 2. sætí í
2. dcild, aöeins tveim stigum á eftir tBV, en
þróttarar uröu neöstir i 1. deildinni.
Ekki er aö efa, aö hart veröur barist í
Kópavoginum á morgun, enda er mikið í húfu
fyrir liöin, Margir álita aö þórsarar munu
fara létt meö þróttarana, enda eru þórsarar
flestir mun leikreyndari og eldri. Hitt er svo,
aö þegar þróttarliöinu tekst vel upp og þeir
ná baráttu i liöið þá leikur þaö mjög góöa
knattspyrnu á köflum, svo aö þórsarar ættu
ekki aö bóka sér sigurinn fyrirfram.
gk. —
Handboltamenn
í golfkeppni
Hiö árlega golfmót handknattleiksmanna
fer fram á Nesvellinum i dag, og veröa leikn-
ar 18 holur aö venju.
Þeir sem geta því viö komiö eru beönir um
aö mæta kl. 15 en þá veröur byrjaö aö ,,ræsa”
út. Búast má viö hörkukeppni enda eru rneöal
handknattleiksmanna nokkrir mjög snjallir
kylfingar. Skoraö er á alla handknattleiks-
menn sem geta þvi viö komiö aö mæta.
Föstudagur 10. september 1976. VISIR
m
VISIR Föstudagur 10. september 1976.
Umsjón: Björn BÍöndal og Gylfi Kristjánsson
)
Tékkarnir koma
með fróbœrt lið
Næstkomandi þriöjudag leika
framarar og tékkneska liöiö
Slovan Bratislava fyrri leik sinn i
UEFA keppninni og fer leikurinn
fram á Laugardalsvellinum.
Þaö eru engir smákarlar sem
eru á feröinni þar sem Slovan
Bratislava fer, og i liðinu eru
hvorki meira né minna en 7 leik-
menn sem uröu evrópumeistarar
i sumar þegar tékkar unnu
heimsmeistana v-þjóöverja i úr-
slitaleiknum. Aður höföu tékk-
arnir unnið bæöi Holland og Eng-
land i Evrópukeppninni, og þarf
þvi varla frekar vitnanna viö um
þaö hverjir snillingar hér eru á
ferðinni.
Slovan Bratislava er stofnaö
1919 og er eitt af elstu félögum i
Tékkóslóvakiu. Siöan 1935 hefur
félagiöleikiö 11. deild og 7 sinnum
orðið meistari, 1949 — 1950 — 1951
— 1955 — 1970 — 1974 og 1975. í
fyrra haföi liðið náö góðri forustu
sem hefði átt að nægja til sigurs i
1. deildinni, en vegna mikils álags
á leikmönnum liðsins missti það
af titlinum i siðustu umferðinni.
Hollendingarnir sem léku hér
með landsliðinu hafa allir leikið
gegn tékkunum, og við báðum 3
þeirra, að segja álit sitt á þeim.
Arie Haan:— Takist tékkunum
vel upp hérna á Laugardalsvell-
inum, þá fá áhorfendur að sjá
bestu knattspyrnu sem leikin er I
heiminum i dag. A góðum degi er
tékkneska landsliðið það besta
sem gerist i knattspyrnunni 1 dag,
og kjarninn i landsliðinu kemur
frá Slovan Bratislava. Við feng-
um að finna fyrir þeim i undanúr-
slitaleiknum i Evrópukeppni
landsliða i sumar, og satt best að
segja áttum við enga möguleika
gegn þessum sterku leikmönnum.
Ég vil þó ekki segja að þeir séu ó-
sigrandi. Þeir eru i sama
okkar hafa ekkert upp úr þeirri
miklu vinnu sem þeir leggja á sig
til þess að taka þátt i keppni með
landsliöinu. Þaö er þvi furðulegt
að aðrir eins smámunir og þessir
skuli valda rifrildi milli leik-
manna og forráöamanna liðsins.
Þetta gæti óneitanlega leitt af sér
aðrar og meiri deilur sem erfitt
yrði að útkljá.
Þær spurningar hafa nefnilega
vaknað, hversu lengi við getum
kallað atvinnumenn okkar heim i
landsleiki án þess að greiða þeim
fyrir. Þessir menn eru að koma
úrvinnu.ogóneitanlega taka þeir
talsverða áhættu vegna meiðsla
t.d. Hollendingarnir sem léku
hérna fengu um 700þúsund krón-
ur hver fyrir að sigra i leiknum —
an atvinnumenn okkar fenguekki
neitt, ekki einu sinni að hafa
peysuskipti við mótherja sina án
þess að það ylli leiðindum.
I Tveir góöir úr Slovan. A myndinni eru þeir Anton Ondrus og markvörðurinn Alexander Venvel sem er
I aldursforseti liösins og hefur leikið meö Slovan og landsliöinu I mörg ár.
Leika til úrslita í
óttunda skipti!
Ahorfendur á Laugardalsvell-
inum i fyrrakvöld töku flestir eft-
ir því að eftir leikinn skiptust
flestir leikmenn tslands og Hol-
landsá landsliöspeysunum sinum
eftir leikinn. Slíkt er nánast föst
regla eftir stórleiki erlendis, en
hefur ekki tiðkast mikið hjá is-
lenska landsliöinufyrr en nú isíö-
ustu leikjum.
En ekki voru allir ánægöir með
það að fslensku leikmennirnir
skyldu gera þetta. Nokkrir
stjórnarmanna KSl tóku þetta
mjög illa upp og voru reiðir is-
lensku leikmönnunum. Er það þvi
furðulegra þegar á það er litið að
KSl fær alla búninga fyrir lands-
liðið án endurgjalds.
Er islensku leikmönnunum það
of gott að eignast landsliðspeysur
þeirra leikmanna sem þeir leika
gegn?
Þess ber að gæta, að leikmenn
„klassa” og við og vestur-þjóð-
verjar.
Rob Rensenbrink: — Þið fáið að
sjá frábært lið sem leikur mjög
skemmtilega og árangursrika
knattspyrnu.
Ég hafði ekki séð Anton Ondrus
leika fyrr en I Evrópukeppninni I
Júgóslaviu, en að sjálfsögðu hafði
ég heyrt getið um hann. Ég tel
tvimælalaust að hann sé besti
miðvörður heimsins i dag ásamt
Franz Beckenbauer, og það var
mjög erfitt að leika gegn honum.
En tékkar eiga marga fleiri frá-
bæra leikmenn, t.d. Jan Pie-
vernik.
Þó hefðum við átt að geta.unnið
þá i Evrópukeppninni, áður en til
framlengingarinnar kom, en I
henni léku þeir stórkostlega
knattspyrnu, sem við réðum ekki
við.
Zwartkruis, þjálfari hollenska
landsliösins: — Tékkar voru I
miklúm öldudal á árunum 1962-
1972, en siðan þá hafa þeir leikið
betri knattspyrnu með hverju ár-
inu og eru án efa með eitt allra
sterkasta landslið I heiminum i
dag.
Af leikmönnum liðsins Slovan
Bratislava, sem ég hef séð, vil ég
sérstaklega nefna miðvörðinn
Ondrus sem er að minu áliti besti
miðvörður sem leikur knatt-
spyrnu i dag. Einnig vil ég benda
ykkur sérstaklega á að fylgjast
með sóknarleikmanninum Nari-
an Masny. Hann er stórkostllegur
leikmaður sem ræöur yfir ótrú-
legum hæfileikum.
Svo sem sjá má, eru hollend-
ingarnir mjög hrifnir af tékk-
nesku leikmönnunum sem leika
hér við Fram i Evrópukeppninni
nk. þriðjudag, og eru þeir þó
ýmsu góðu vanir. gk—.
leikurinn veröur á Akranesi á
þriöjudaginn, en sá síöari i
Reykjavik á fimmmtudaginn.
Það hefur verið fremur hljótt
hlaupinu og fékk timann 22,7 sek.
og hann varð einnig stigahæstur I
karlakeppninni með 39,75 stig, og
i 400 metra hlaupinu hljóp hann
mjög vel og fékk timann 50,4.
Heildarúrslitin I keppninni urðu
þau að HSÞ sigraði með 203 5/6
stig, UMSE varð i öðru sæti með
171 stig, en siðan komu KA með 81
1/3 stig, UNÞ 46, USAH 30,5,
UMSS 18 1/3 og USVH með 14 stig.
1 karlakeppninni sigraöi HSÞ
með 118 1/3 stig og HSÞ sigraði
einnig I kvennakeppninni með
85,5 stig.
Mótið þótti takast með afbrigð-
um vel, en mótsstjóri var Harald-
ur Sigurösson bankafulltrúi á
Akureyri.
FAX—.
um landsliðiö að undanfórnu, en
samt hefur 25 manna hópur æft
reglulega undir stjórn landsliðs-
nefndar sem nú hefur valið 15
leikmenn sem sýnt hafa besta á-
stundun i æfingasókn til þessara
landsleikja. En þeir eru:
Birgir Finnbogason FH
Guðjón Erlendsson Fram
Jens Einarsson IR
Viðar Simonarson FH
Geir HallsteinssonFH
Þórarinn Ragnarsson FH
Arni Indriða son Gróttu
Þorbjörn Guðmundsson Val
Bjarni Guðmundsson Val
Agúst Svavarsson IR
Viggó Sigurösson Vikingi
Björgvin Björgvinsson Vikingi
Olafur Einarsson Vikingi
Magnús Guðmundsson Vikingi
Þorbergur Aðalsteinsson Vikingi
Af pölska þjálfaranum Januz
Czerwinski er það að frétta, að
hannervæntanlegurtil landsins á
mánudaginn — og fær þvi tæki-
færi til aö fylgjast með landslið-
inu á þriðjudaginn.
Leikurinn á þriðjudaginn verð-
ur þriðji landsleikur þjóðanna.
Fyrst lékum við gegn sviss-
lendingum i heimsmeistara-
keppninni 1961 og sigruðum þá
14:12 og fyrir tveim árum léku
þjóöirnar I Sviss — og lauk þeim
leik meö jafntefli 21:21.
100.000 KRÓNU VERÐLAUN!
í þriðju milljónustu fernunni af JRDPICANÁ
eru 100.000 krónu verðlaun.
Fékkst þú þér JRDPICANA í morgun?
SóTargeislinn frá Florida
siðan Vikingur sigraði i keppninni
1970 að það lið sem slegið hefur
Viking út I bikarkeppninni hefur
sigrað það árið.
„Ég er ekki hjátrúarfullur og
þó skagamönnum hafi tekist að
sigra Viking, þá er það engin
trygging fyrir þvi að sigra okk-
ur,” sagði Ingi Björn Albertsson
fyrirliði Vals.
„Við höfum enga minnimáttar-
kennd fyrir skagamönnum, það
sýna úrslit leikja okkar i sumar
best —og ég er sannfærður um að
okkur tekst að sigra þá i þriðja
skiptið á sunnudaginn.” •
— BB
Jóhannes Eövaldsson, fyrirliöi islenska landsliösins, og einn belgisku
landsliösmannanna skiptast hér á landsliöspeysum sinum. Forráöa-
menn KSI voru ekki allir ánægöir meö aö fyrirliöinn og aörir leikmenn
skyldu leyfa sér þetta. — Ljósmynd Einar.
Þorbjörn Guömundsson úr Val er einn þeirra nýju leikmanna sem munu /eika I landsleikjunum gegn
svisslendingum. Hér sést Þorbjörn skora I úrslitaleiknum I bikarkeppninni I fyrra gegn FH. —
Ljósmynd Einar.
Handboltavertíðin
hefst ó Skaganum!
Svissneska landsliöiö i hand-
knattleik er væntanlegt til lands-
ins um helgina og mun þaö leika
hér tvo landsleiki. Fyrri lands-
„Þaö er mikill hugur i okkur
skagamönnum og viö erum staö-
ráönir i aö leggja valsmenn á
sunnudaginn, þvi aö okkur finnst
aö þaö sé timi til kominn aö
bikarinn komi viö á Skaganum,”
sagöi Jón Gunnlaugsson fyrirliöi
1A á blaöamannafundi i gær sem
skagamenn og valsmenn héldu i
tilefni af úrslitaleiknum i Bikar-
keppni KSt sem fram fer á
Laugardalsvellinum á sunnudag-
inn kl. 14.00.
„Okkur hefur ekki vegnað vel i
Bikarkeppninni til þessa, við höf-
um áður komist sjö sinnum I úr-
slit, en alltaf borið lægri hlut. En
nú erum við akveðnir I að breyt-
ing verði á — og bikarinn skal
uppá Skaga.”
Jón sagði aö hann væri ekki
hjátrúarfullur og þótt lið hans
hefði sigrað Viking þá væri það
engin trygging fyrir þvi að skaga-
menn sigruðu i keppninni. En það
hefur verið ófrávikjanleg regla
Jónas Clausen KA sést hér sigra i 800 metra hlaupinu eftir haröa
keppni viö Steindór Helgason KA og Jakob Sigurólason HSÞ. Þeir
fengu allir sama tima: 2.06.9 minútur, en Jónasi var dæmdur sigurinn.
Ljósmynd FAX
Noröurlandsmótiö i frjálsum
iþróttum var haldið á Akureyri
um helgina, og góöur árangur
náöist þar i nokkrum greinum.
Hæst ber nýtt sveinamet hins 16
ára gamla skagfiröings, Þor-
steins Þórssonar í hástökki. Hann
stökk 1,87 metra sem er mjög gott
hjá 16 ára unglingi.
Sigriður Kjartansdóttir KA
hljóp 100 metrana á 12,2 sekúnd-
um sem var metjöfnun á meti
Ingunnar Einarsdóttur, en Ing-
unn bætti reyndar þetta met i
fyrrakvöld.
Sigriöur haföi einnig yfirburði I
200 metra hlaupinu sem hún hljóp
á 26,5 sek.
Aðalsteinn Bernharðsson
UMSE hljóp vel i 200 metra
Móttu
peysunum?
— Skagamenn hafa leikið sjö sinnum til úrslita í
Bikarkeppni KSÍ, en aldrei tekist að sigra
— Hollensku landsliðsmennirnir sem léku hér í landsleiknum
eiga slœmar minningar fró leiknum við tékka í Evrópukeppninni
— Svissneska landsliðið leikur hér tvo leiki — pólski
landsliðsþjólfarinn kemur á mánudaginn