Vísir - 17.09.1976, Síða 13
12
c
Á að selja sœti
í landsliðinu?
— Golfsambandið íhugar að senda þá menn í Eisenhower-
golfkeppnina sem geta borgað fyrir sig sjálfir
Menn velta því nú fyrir sér
hvort landsliö þaft sem tekur þátt
i Kisenhower-golfkeppninni i
Portúgal i næsta mánuði verður
skipaö þeim leikmönnum sem
mest geta lagt fram af fjármagni
i feröakostnaðinn á móti Golf-
sambandinu.
Við ræddum i gær við Pál Ás-
geir Tryggvason, formann Golf-
sambandsins. og hann sagði að
ferðin á Norðurlandamótið i
Noregi hefði verið dýrari en
reiknað hefði verið með, og fjár-
hagur sambandsins væri þannig
að óvist væri hvað Golfsambandiö
gæti lagt fram af fé i ferða-
kostnaðinn til Portúgalsferðar-
innar. Það væri athugandi að sinu
mati. hvort ekki bæri að senda
leikmenn sem gætu borgað sjálfir
fyrir sig.
Ef af verður. er það hættuleg
stefna sem Golfsambandið fer inn
á. Margir af okkar ungu og bestu
kylfingum eru námsmenn sem
hafa ekki mikil auraráð, eftir að
hafa „flengst" um landið i sumar
til aö safna sér stigum, stigum
sem kæmu þeim að gagni þegar
liðið til Portúgalsferðarinnar
væri valið.
Yrði þvi hryggilegt ef landsliðs-
sætin yrðu seld til kylfinga sem
eiga peninga i buddunni, en hafa
ekki náð jafngóðum árangri i
sumar og þeir sem eru náms-
menn með litil auraráð. Golfsam-
bandiö héldur fund á mánudag,
og þá skýrast þessi mál væntan-
lega.
Þess má geta, að Eisenhower-
keppnin er einhver mesta golf-
keppni sem haldin er, en vegna
þess að hún er oft haldin mjög
fjarri tslandi er hér mjög gott
tækifæri fyrir okkur að vera með.
Næsta keppni verður t.d. haldin á
N-Sjálandi eftir tvö ár — og varla
verða til peningar til að senda lið
alla leið þangað.
gk—.
Reykjavíkur-
mótið hefst
ó morgun
Reykjavikurmótiö i handknatt-
leik hefst á morgun, og um helg-
ina verða leiknir 6 leikir i m.fl.
karla.
Vegna mikils kostnaðar t.d.
hárrar húsaleigu hefur HKRR
neyöst til að þjappa mótinu mjög
mikið saman, og t.d. lýkur keppni
i m.fl. karla 1. okt.
A morgun hefjast leikirnir kl.
15.30 og leika Valur og Vikingur
fyrst og siðan IR og Armann.
A sunnudag hefst keppnin kl. 14
og leika fyrst KR og Fram. Slöan
koma leikir Þróttar og Fylkis,
Vals og Ármanns og loks leikur
Vikings og Leiknis.
—gk.
Svíarnir ó
Akureyri
Sænska 2. deildarliðið IK Bolton
sem hefur dvalið hér að landi að
undanförnu leikur á Akureyri i
kvöld og á morgun. 1 kvöld leika
sviarnir við KA kl. 20.00 og á
morgun mæta þeir Þór kl. 14.00
Sviarnir hafa leikið tvo leiki hér
á landi, þeir töpuðu fyrir 3.
deildarliöi akurnesinga með
einu marki, og töpuðu siðan fyrir
Þrótti i gær með 20 mörkum gegn
18. -gk.
%
Björgvin Þorsteinsson, islendsmeistarinn i golfi undanfarin ár, er einn
þeirra sem geta átt i erfiöleikum meö að snara út aurum fyrir feröinni
tii Portúgals. Þýöir þaö aöhann þarf aö sitja heima?
Ármenningar án
Símonar í vetur
— hann hélt til Bandaríkjanna í fyrrakvöld og
verður þar við nám í vetur
„Ármenningar urðu fyrir
óvæntu áfalli i fyrrakvöld,
þegar Simon Ólafsson pakkaöi
niöur i feröatöskur sinar og hélt
til Bandarikjanna. Þar ætlar
hann að vera við nám i vetur.
Simon haföi ákveöiö aö vera
hér heima i vetur og haföi hafiö
nám i lláskólanum, en fyrir
stuttu fór hann aö fá upphring-
ingar frá þjálfaranum viö há-
skólann I Bandarikjunum þar
sem hann var við nám i fyrra.
Var honum boöiö ,,gull og
grænir skógar” ef hann kæmi
utan til þeirra, þá vantaði hann
nauösynlega i liöiö hju sér i
vetur — og Simon sló til.
Þetta er mikið áfall fyrir ár-
mannsliöiö sem hefur misst
nokkra góöa leikmenn frá i
fyrra. En Jimmy Rogers er
væntanlegur hingaö næstu
daga, svo að þaö verður nokkur
sárabót.
Armannsliöið fer til Englands
I lok mánaöarins, þar sem liðiö
mun dvclja i æfingabúöum i
eina viku.
Liöiö mun leika eitthvaö af
leikjum i feröinni, og hafa lið
cins og Crystal Palace, Coven-
try og MK Embassy veriönefnd
sem hugsanlegir mótherjar.
Föstudagur 17. september 1976. VISIR
m
VISIR Föstudagur 17. september 1976.
Umsjón: Björn Blöndal og Gylfi Kristjánsson
13
Björgvin Björgvinsson, hinn frábæri linumaöur úr Vfkingi, átti mjög góöa kafla í leiknum i gær og þegar sá gállinn er á honum er hann óstöövandi. Hér
er hann kominn i gott færi á linunni og þá er ekki aö leikslokum aö spyrja. Ljósmynd Einar.
Það verður aö segjast eins og er,
aö leikur islenska landsliösins í
handknattleik i gærkvöldi gegn
Svissvar betri en maður átti von á.
Menn áttu e.t.v. von á þvi að sviss-
lcndingarnir myndu skella okkar
mönnum aftur, en eftir að island
haföi unniö öruggan sigur 24:18
spurðu menn hver annan: „Hvernig
fór islenska liðið virkilega að þvi aö
tapa fyrir þessu svissneska miöl-
ungsliöi og varla þaö uppi á
Akranesi?
„Ég var ánægöur meö siöari
hálflcikinn hjá liöinu nema loka-
kaflann sem var ekki góöur",
sagöi Januz Szerwinski, pólski
landsliösþjálfarinn, eftir leikinn i
gærkvöldi.
„Þaö eru margir góöir leik-
menn I liöinu, leikmenn sem ég
veit aö það verður gaman aö
vinna meö. En þaðsem þarf helst
aö lagfæra eru hraöaupphlaupin
scm voru ekki góð. Iiinsvegar er
viljinn til þess að sigra ávalit
Og þó heföi sigur Islands getað
orðið mun stærri. Fyrri hálfleikur-
inn var lengst af mjög slakur hjá
liðinu, svo og lok siðari hálfleiks.
Þá var Island búið að ná 9 marka
forskoti, en svisslendingarnir náðu
að skora þrjú siðustu mörk leiks-
ins.
Ekki byrjaði leikurinn beint
glæsilega. Fyrsta sóknin endaöi
með stangarskoti og svisslend-
ingarnir brunuðu upp og skoruöu. I
næstu sókn let Viðar verja frá sér
fyrir hendi hjá islenskum hand-
knattleiksmönnum, og meö góöri
samvinuu við þá vonast ég til að
geta náö góöum árangri meö liö-
ið".
Januz vár spuröur aö þvi
hverjir honum heföu þótt bestu
menn islenska liösins. „Ég vil
ekkert um þaö segja. Ég á eftir að
sjá meira til islensku leikmann-
anna áður en ég get tjáð mig um
það. Hinsvegar eru nokkrir leik-
menn þegar komnir I bókina hjá
mér. ”.
vitaskot, og þar var ekki fyrr en á
5. minútu sem isienska liðið komst
á blað og jafnaði 1:1.
Svisslendingarnir náðu aftur
forustunni, sem varð þó aldrei
nema eitt mark fyrr en um miöjan
hálfleikinn þegar þeir skoruðu þrjú
mörk i röð og staðan var 8:5.
Varnarleikur islenska liðsins var
slakur á þessum tima og mark-
varsla Jens Einarssonar sem var
að leika sinn fyrsta landsleik ná-
væmlega engin. Og i sókninni var
allt rigbundið kerfi og litil ognun i
spilinu.
Islenska liðið náði nú góðum
kafla sem færði liðinu 6 mörk i röð,
staðan oröin 10:7, en svisslend-
ingarnir skoruðu tvö siðustu mörk
hálfleiksins úr vitum.
Og það var ekki glæsilegt að
horfa á islenska liðið i upphafi
siðari hálfleiks. Tveir svisslend-
ingar voru þá reknir nær samtimis
af velli, en samt náðu þeir að jafna
leikinn 12:12.
En nú keyrði islenska liöið upp
hraðann og skoraði 7 mörk gegn 2,
og var þessi kafli hjá liðinu mjög
góður, bæöi i vörn og sókn, og
Birgir Finnbogason varði mjög vel
i markinu. Staðan breyttist i 19:10
og þessi kafli gerði út um leikinn.
Ólafur Einarsson, Birgir Finn-
bogason — sem varði 9 skot i' siðari
hálfleik — og Björgvin Björgvins-
son voru bestu menn íslenska liðs-
ins, en furðu litið kom út úr leik-
mönnum eins og Viðari Simonar-
syni og Agúst Svavarssyni. En á
heildina litið var sigurinn sist of
stór, glæsilegur kafli islenska liðs-
ins i siðari hálfleiknum hefði átt að
færa enn stærri sigur.
Mörk islands: Ólafur Einarsson
6, Björgvin Björgvinsson 5, Viggó
Sigurðsson 4, Viðar Simonarson 4,
Geir Hallsteinsson 2, Árni Indriða-
son 2 og Agúst Svavarsson 1.
Mörk Sviss: Zullig 8, Schar 4,
Affolter 2, Jehle 2, Hubner 2 og
Graber 1.
Svisslendingar voru reknir af
velli i 8 minútur, Islendingar i 4
minútur.
Sviarnir Broman og Lövenius
dæmdu leikinn vel.
gk--
Heildarnýting islenska liðsins I
leiknum i gær var mjög góö. Liöið
fékk alls 42 skottilraunir sem gáfu
24 mörk, og nýtingin er þvi 57%.
Skotanýting einstaka leikmanna
var þessi:
upphl. inörk
Viðar Simonarson 8 4
Björgvin Björgvins. 7 5
GeirHallsteins. 5 2
Arni Indriðason 3 2
AgústSvavarsson 1 1
Viggó Sigurðsson 7 4
Ólafur Einarsson 11 7
Þórarinn Ragnarsson 0 0
Bjarni Guðmundsson 1 0
Birgir Finnbogason stóö i mark-
inu lengst af og varði 12 skot, þar af
9 i siöari hálfleik. Jens Einarsson
sem byrjaði leikinn varði ekki eitt-
einasta skot.
„Nér eru ntargir
góðir leikmenn"
— sagði Januz Szerwinski eftir landsleikinn
í gœrkvöldi
„Markmíðíð er að
slökkva 2/40 m"
— segir Dwight Stones, heimsmethafinn í hástökki — sem
segist ekki vera nógu stór til að stökkva hœrra
Heimsmethafinn i hástökki —
Dwight Stones frá Bandarikj-
unum hefur átt við stööug meiðsl
að striða á keppnisferli sinum
Stones hefur „veikt” bak sködd
uð hné — og hann hefur snúið
ökklana á sér þrjátiu og tvisvar
sinnum — og lýsir sjálfum sér
sem gangandi „slysa-rokki”.
Samt hefur hann bætt heimsmetið
tiu sinnum —og býst viö að gera
enn betur.
„Ég er menntaður iþrótta-
maður — og ég legg ekki meira á
likama minn en ég tel hann þola i
hvert skipti”, segir Stones sem er
22ára og hefur tekist að yfirstiga
meiðsl sin með þvi að taica þátt i
réttu mótunum, eins og hann
orðar það.
Stones hefur þá reglu að keppa
aldrei þegar rigning er vegna
hættu á meiðslum sem gætu hlot-
ist af þvi að renna til. En þessa
reglu braut hann á ólympiuleik-
unum i Motreal i sumar þar sem
hann var talinn langsigurstrang-
legasti keppandinn. Stones tókst
hinsvegar ekki sem best upp — og
varð að sætta sig við bronsverð-
launin. Eftir keppnina sagði hann
að það hefði verið rigningunni að
kenna að honum tókst ekki aö
sigra.
Ekki lét Stones þetta á sig fá —
og nokkrum dögum siðar bætti
hann eigið heimsmet i
Philadelphiu með þvi að stökkva
2.32 m.
,,Ég hef granna ökkla og sködd
uð hné — og við slikar aðstæöur,
er hættan á meiðslum enn meiri
þvi að ég hleyp mjög hratt i at-
rennunni. Það er ekkert mót svo
mikilvægt aö maður eigi að hætta
lifi og limum bara til að keppa og
vinna titla.”
Sá sem sigraði Stones i Mon-
treal heitir Jacek Wszola, 19 ára
háskólastúdent frá Póllandi — og
hann heíur sigrað Stones i fjórum
af sjö mótum sem þeir hafa keppt
saman i.
Stones heldur þvi fram aö hann
geti stokkið 2,40 m — „og takist
mér ekki að stökkva að minnsta
kosti 2,36 m þá hef ég ekki átt
erindi sem erfiði i frjálsum
iþróttum.”
Stones sem nú er i London þar
sem hann keppir i kvöld gegn
Bikarkeppni
í tugþraut
um helgina
Bikarkeppni Frjálsiþróttasam-
bands Islands i tugþraut og
fimmtarþraut kvenna verður háö
á Laugardalsvellinum um helg-
ina. Hvert félag hefur rétt til aö
senda þrjá kcppcndur — en
árangur tveggja bestu verður tal-
inn.
Stefán Hallgrimsson KR er nú
sem óðastað ná sér eftir meiðslin
sem hrjáð hafa hann i sumar og
ætlar hann að verða meðal kepp-
enda um helgina.
Búist er við að keppendur i tug-
þrautinni verði um 20 talsins — og
getur þviorðið um skemmtilega
keppni aö ræða. Þá er ráðgert aö
keppt verði I 3000 m hrindrunar-
hlaupi á morgun — og er sú grein
öllum opin.
Wszola sagði á blaðamannafundi
i gærkvöldi að sá dagur kæmi aö
einhver stykki yfir átta fet — 2,44
m.
„Það er óliklegt aö það verði ég
sem það afrek vinn, þvi að ég er
r
Levski Spartak frá Búlgariu
sigraöi finnska liöið Reipas
Lahti i Evrópukeppni bikar-
meistara í gærkvöldi meö
hvorki meira eða minna en 12
mörkum gegn einu. Þetta var
fyrri leikur liöanna og fór fram i
Sofia.
Yordanov opnaði marka-
reikning búlgaranna strax á 12.
minútu, og fjórum minútum
siðar bætti hann öðru marki við.
Tupasela skoraði siöan fyrir
finna á 22. minútu, en siðan tóku
búlgararnir við.
X
ekki nógu stór,” sagði Stones sem
er 1,96 m á hæð. „Hvað var ekki
sagt fyrir 20 árum? Þá töldu
menn útilokað að stökkva yfir sjö
fet — 2,13 m.”
—BB.
" \
Staðan i hálfleik var oröin 5:1
og sjö sinnum i siöari hálfleik
mátti finnski markvörðurinn
hirða boltann úr netinu.
Þetta er versta útreiö sem liö
fékk á sig i 1. umferð i Evrópu-
ieikjum félagsliða að þessu
sinni.
Þá var einn leikur i UEFA
keppninni, Lokomotiv Plovdiv
frá Búlgariu sigraði Red Star
frá Júgóslavaiu i Búlgariu með
tveim mörkum gegn einu.
—gk-
Fimleikaflokkur frá Ollerup i Danmörku hefur haldið hér sýningar að
undanförnu viö mikla hrifningu áhorfenda. 1 kvöld sýnir flokkurinn {
Laugardalshöll kl. 20.30, og þá gefst siðasta tækifærið til aö sjá þessa
frábæru fimleikamenn við sýningar hér á landi aö sinni.
Yfirburðasigur
Levski Spartak