Vísir - 17.09.1976, Blaðsíða 23

Vísir - 17.09.1976, Blaðsíða 23
HAUSTLAUKAR ■ HAUSTLAUKAR - HAUSTLAUKAR - HAUSTLAUKAR - HAUSTLAUKAR - HAUSTLAUKAR Látum krakkana siá um rekstur Tónabœjar! Þorsteinn Sigurðsson skrifar: Að undanförnu hefur verið rætt um i blöðum það vandamál sem skapast við skemmtanir unglinga i Tónabæ. Nokkur hópur unglinga virðist hafa þar I frammi skrilslæti og komið er fram að svar ráðamanna er að minnsta kosti i bili að loka staðnum. Ég hef aðra hugmynd um hvað gera skuli. Þvi ekki að leyfa unglingunum sjálfum að reka staðinn. Yfirgnæfandi meirihluti þess unga fólks sem staðinn sækir er til fyrirmyndar og illt er til þess að vita að ólæti hinna fáu bitni á þeim. Þetta eru dugmiklir og ákveðnir krakkar sem myndu fljótt losa sig viö skrflinn sem safnast fyrir á planinu fyrir utan og ég er viss um að þessir krakkar gætu rek- ið staðinn með heiðri og sóma. Mér dettur I hug að hægt væri að fela nefnd unglinga rekstur staðarins og ábyrgð af honum og ég er viss um að nægilegar margir myndu með giöðu geöi gerast sjálfboðaliðar við að halda uppi reglu á staðnum. sví rekko ekki ríkisvaldið og lakkus standa sam< Þriggja barna faðir hringdi i gær: Það er athyglisverð forsiðu- Iréttin i Visi I dag eins og raunar þft áður. Sagt var að rikissjóður Teföi hálfan milljarð upp úr sölu |fengis til landsmanna og að tekj- af þessari iðju heföu á fyrri fluta ársins verið nær þvi jafnar Jpkjum af álögðum tekjuskatti og lignaskatti. Þá var einnig sagt að VrVR væri ætlað að skila 6 nilljörðum króna eða meira i [•ikissjóð á þessu ári. ' Hvaö mundi gerast i rikisfjár- gálunum ef menn hættu að Irekka? Ráðamenn tala um að fyrir Bakkusi og gerir litiðT ekkert til þess að stemma við framgangi hans. Sjálfur á ég þrjú börn sen sem óðast að komast á þann i að þau fari að nota áfengl gera það upp við sig hvorfi ætla sér að gera það. i staöf að hefja skefjalausan án gegn áfengisneyslu, en ég es um að það eru einmitt ungj arnir sem leggja hvað drýg skerf til rikisins með vinkai eru gerðar kaldar áætlanji hve miklar tekjur me§ ófögnuðinum hafa. Mér sem föður að það sé illt til þd BINDINDISSEMI ER EKKI SKATTSVIK Mig langar að biðja Visi fyrir fáein orð til huggunar og leiöbein- ingar þriggja barna fööur, sem hringdi til hans á sunnudaginn. I forsiðufrétt VIsis, sem faðir- inn vitnar til, var talaö um að rikissjóður hefði hálfan milljarð á mánuöi frá áfengis- og tóbaks- verslun sinni. Ekki skal ég tóbak- inu hæla, en rétt skal vera rétt. Hvað myndi gerast i rikisfjár-. málunum ef menn hættu aö drekka? segir faðirinn. Þetta er spurning sem vert er aö hugleiða vandlega. Drykkjuskapurinn kostar veru- legt manntjón, mikið heilsuleysi og vinnutap. Gróöinn af áfengis- sölunni fer til að borga skaðann af drykkjunni. Og úr þvi að meiri- hluti þjóðarinnar vill hafa áfeng- issölu og drykkjuskap finnst mér von að rikið reyni að hafa eitt- hvaö upp I þann kostnaö sem á þvi lendir vegna drykkjunnar.- Meira en 40% þeirra sem koma til dvalar á spitalann á Kleppi er fólk sem hefur drukkið sig sjúkt. Spitalinn rúmar alls 245 manns. Það má þvi ætla að þar séu að staðaldri 100 manns vegna drykkju skapar. Daggjald er 6500 krón- ur. Arsvist kostar þvl 2.372.500 krónur. Þetta er bara einn lltill liður I dæminu. Ef menn hættu að drekka hefðu þeir um það bil 5 milljarða til annarra hluta áriega umfram það sem er. Keyptu þeir aðrar vörur fyrir það fé myndi ríkissjóður þar fá fullan milljarð i toll og sölu- skatt. Væri féð hins vegar lagt fyriri minnkaöi lánsfjárkreppan að sama skapi og þar með lækk- aði sú fjárhæö sem ríkissjóður verður að útvega og ábyrgjast fyrir lánastofnanir þjóðarinnar. Þetta myndi gerast i rikisfjár- málunum ef menn hættu aö drekka. Fjármál rikisins heföu gott af þvi að menn hættu að drekka. Þau þurfa þess með. Ég vona að faðirinn átti sig á þessu, hann verði svo gæfusamur aö börnin hans þrjú efli bindindi með þjóð- inni og rlkissjóðurinn verði svo lánsamur að þurfa aldrei að bera byrðar vegna þeirra drykkju. Bindindi á ekkert skylt viö skatt- svik. Halldór Kristjánsson. Tóm floska á 500 krónur ÞS hringdi: Mig langar að koma á fram- færi þeirri umkvörtun að ég tel A.T.V.R. neyði fólk til þess aö kaupa meira af áfengi en það hefur áhuga á. Þetta hljómar svolitiö skrýtilega en staðreyndin er sú að verð á hálfflöskum I rikinu er svo hátt að fólk neyðist til aö kaupa heilar flöskur. Ein flaska af Brennivíni kostar nú 2600 krónur en tvær hálfar kosta hins vegar 3100 krónur. Sjálfur ætlaði ég að kaupa hálfa flösku um daginn er þegar ég sá hvað hún kostaði keypti ég mér heila til þess aö þurfa ekki að borga 500 krónur fyrir tóma flösku. Ég er viss um að margir gera það sama i minum sporum og kaupa þannig meira en þeir kannski hafa gott af. BÖNNUM REYKINGAR Á FLESTUM STÖÐUM Svandis Jónsdóttir skrifar: Eriendis hefur það færstmjög i vöxt að fyrirtæki og opinberar stofnanir banni reykingar á vinnustöðum. Þetta er mjög eðlilegt þar sem hvort tveggja er, aö reykingar eru mjög hvimleiðar fyr- ir þá sem ekki reykja og svo hitt að þeir sem eru i kringum reykingafólk anda alltaf að sér hluta reyksins. Þetta er útaf fyrir sig ekki mjög alvarlegt ihófi, þvi töluvert þarf að reykja til þess að spilla heils- unni en fyrir fólk sem vinnur á þröngum skrifstofum þar sem helmingur fólksins eða meira reykir er þetta alvarlegt mál. Á íslandi er bannað aö reykja i strætisvögnum bióum og leik- húsum en slikt er leyft sum- staðar erlendis. Þannig erum við I ýmsu framar öðrum i þessum efnum og væri vel að við héldum þvi forskoti meö þvi að sett verði reykingabann vlðast.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.