Vísir - 17.09.1976, Blaðsíða 17

Vísir - 17.09.1976, Blaðsíða 17
Sjónvarp klukkan 21,35: Allt frœgir Holly- woodleikaror! Þaö er kempan Lee J. Cobb sem leikur eitt aöalhlutverkiö i myndinni „Boomerang” i kvöld kiukkan 21.35. Coob fæddist i New York árið 1911. Eftir aö hafa leikið 22 hlut- verk á sviði hóf hann kvik- myndaleik i myndinni „North of theRio Grande” árið 1937. Siðan hefur hann leikið i fjölmörgum myndum og sjónvarpsþáttum, m.a. i islenska sjónvarpinu fyrir nokkrum árum i myndaflokkn- um um Virginiumanninn. Likamsbygging hans og rólegt yfirbragð gerðu það að verkum að hann valdist oft i hlutverk valdamikilla manna. Lee J. Cobb lést fyrr á þessu ári 65 ára að aldri. Auk hans eru i aðalhlutverk- um i myndinni þau Dana An- drews, Jane Wyatt og Arthur Kennedy, allt frægir Hoolywoodleikarar. Myndinni, sem i islenskri þýð- ingu hefur hlotið nafnið: „Sekur eða saklaus?” stjórnar Elia Kazan, einn virtasti leikstjóri sem unnið hefur i Bandarikjun- um. Hann er þekktur fyrir sam- vinnu sina við stórstirnin James Dean og Marlon Brando. Arið 1955 gerði hann sina frægustu mynd: „East of Eden” eftir sögu John Steinbeck og þar lék einmitt James Dean aðalhlut- verkið. —GA Úr myndinni „Sekur eöa saklaus” (Boomerang). Sagan greinir frá þvf aö prestur er skotinn til bana. Morðinginn kemst undan og finnst ekki þrátt fyrir mikla leit. Kosningar eru á næsta leiti og þvi til mikils aö vinna fyrir lögreglu og saksóknara aö standa sig, ekki sfst þar sem stjórnarandstæðingar hyggjast gera sér mat úr málinu og sfna fram á getuleysi þeirra. Óskar Ingimarsson þýddi myndina, sem er byggöá sannsögulegum heimildum. Sjónvarp klukkan 20, kirgIsar og Islendingar Viö islendingar höfum löngum þreytt okkur á þvi aö kvarta undan Iffsafkomu okkar. — Viö borgum háa skatta, (all flest aö minnsta kosti), fáum litiö kaup og veðrið leikur okkur grátt. Margt fleira gerir okkur erfitt fyrir, stórt og smátt. En ef við höfum ástæðu til að kvarta eins og flestir telja sig sjálfsagt hafa, hvað mega þá Kirgisarnir frá Afganistan segja. Þeir teldu sig vafalaust komna í himnariki, tylltu þeir fæti á islenska grund og fengju notið einhverra þeirra lysti- semda sem við óneitanlega fá- um notið. Þjóðflokkur sá sem ber þetta sérstæða heiti telur 2000 manns. Hann býr i tjöldum i nærri 5000 metra hæð yfir sjávarmáli. Við islendingar teljum okkur fjalla- þjóð, en við yrðum sennilega æði andstutt i þeirri hæð. Kirgisarnir búa við einhver erfiðustu lifsskilyrði i heimi. Þar leggja konur sig i stórhættu með þvi að eignast börn, — þriðjungur mæðra deyr af barnsförum. Annað hvert barn deyr nýfætt. Þessi mynd umKirgisana sem er i kvöld eftir fréttir ætti að eiga erindi til okkar allra og vera orlitil lexia i leiðinni. —GA. Þetta er einn af Kirgisunum, veöurbarinn og hrukkóttur, enda vafa iaust búinn aö þola margt um ævina. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: „Grænn varstu dalur”, eftir Kichard Llewellyn. 15.00 M iðd egist ón leik ar Suisse-Romande hljóm- sveitin leikur Spænska rapsódiu og Pastroal-svitu eftir Emanuel Chabrier, Ernest Ansermet stjórnar. Stokowski-hljómsveitin leikur „Svaninn frá Tuonela” eftir Jean Sibelius og „Dónárvalsinn” eftir Johann Strauss: Leopold Stokowski stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.20 Popphorn. 17.30 Ferðaþættir cftir Bjarna Sæmundsson fiskifræðing. Óskar Ingimarsson les úr bókinni „Um láð og lög” (5). 19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 íþróttir Umsjón: Bjarni Felixson. 20.00 Sinfóniskir tónleikar frá útvarpinu i BerlinSalvatore Accardo og Filharmoniu- sveitin þar i borg leika: Zubin Metha stjórnar. a. Sinfónia nr. 34 í G-dúr (K338) eftir Wolfgang Ama- deus Mozart. b. Fiðlu- konsert nr. 2 f d-moll op. 32 eftir Henryk Wieniawski. 20.40 Vitrasti maður veraldar. Sæmundur G. Jóhannesson ritstjóri á Akureyri flytur erindi um Salómon konung. 21.10 Gitarleikur i útvarpssal: Simon H. ivarsson ieikura. Svita eftir Robert Devise. b. Gavotte, Sarabande og Bourré eftir Johann Sebastian Bach. 21.30 Útvarpssagan: „öxin” eftir Mihaii Sadoveanu. Dagur Þorleifsson les þýð- ingu sina (9). 22.00 Fréttir. 21.15 Veðurfregnir. Til umræðu Baldur Kristjáns- sonstjórnar þættinum. 22.55 Afangar.Tónlistarþáttur í umsjá Ásmundar Jónsson- ar og Guðna Rúnars Agn- arssonar. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Augiýsingar og dagskrá 20.40 Kirgisarnir i Afganistan Bresk heimildamynd um Kirgisa, 2000 manna þjóð- flokk, sem býr i tjöldum i nærri 5000 metra hæð á há- sléttu i Afganistan. Þjóð- flokkur þessi býr við ein- hver erfiðustu lifsskilyrði i heimi. Annað hvert barn deyr nýfætt, og þriðjungur mæðra deyr af barnsförum. Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörnsson. 21.35 Sekur eöa saklaus? (Boomerang) Bandarisk biómynd frá árinu 1947. Leikstjóri Elia Kazan. Aðal- hlutverk Dana Andrews, Jane Wyatt, Lee J. Cobb og Arthur Kennedy. Sagan, sem byggð er á sannsögu- legum atburðum, gerist I Fairport I Connecticut. Prestur er skotinn til bana. Mikil leit er hafin að morðingjanum, en hann finnst ekki. Kosningar eru i nánd, og stjórnarandstæð- ingar gera sér mat úr mál- inu til að sýna fram á getu- leysi lögreglu og saksókn- ara. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. 23.00 Dagskrárlok --------------------”------------1 GOÐAR PLOTUR □ ELTON JOHN — HERE AND THERE □ BEE GEES — MAINCOURSE □ SANTANA — ALLAR □ ericclapton— NO REASON TOCRY (NÝ NÝ) □ CHEEC AND SHONG — ALLAR □ MOTHER OF INVENTION — ALLAR □ motthe HOOPLE —ALL THE YOUNG □ DUELS □ MOT THE HOOPLE - DRIVE ON □ tode stuart— crosing aieantic □ jANIS IAN — BETWEEN THE LINES □ CAPTAIN AND TENILLE — SONG OF JOY OPIÐ Til kl. 10 í kvðld og kl. 9-12 laugardag Laugavegi 17 27667 Laugavegí 26 (Verslanahöllin)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.