Vísir - 17.10.1976, Side 3
VISIR Sunnudagur 17. október 1976
3
af stöðinni”,, ertur alveg hættur
að hugsa um kvikmyndirnar?”
„Nei, ég hef aldrei misst
áhugann á þeim. Ég hef siðan
skrifað tvö kvikmyndahandrit.
Annað er úr Njálssögu, en hitt
byggt á Otnesjamönnum, eftir
séra Jón Thorarensen. Handritiö
að Njálssögu þýddi ég á sænsku
og Allan Boucher þýddi það á
ensku og ég hef veriö að basla við
að fá einhvern til aö gera mynd
eftir þvi, með Edda film. Ég hef
haftsamband við ýmsa aðila i þvi
sambandi, en þvi er borið við að
þetta sé of dýrt og aö auki ekki
nógur áhugi á efninu nema á fs-
landi. Það þykir þeim heldur litill
markaður.”
„Ég hef satt að segja litla von
um að nokkurn tim'a geti þrifist
kvikmyndaiðnaður á Islandi.
Þetta er mjög dýrt, landiö litiö og
stjórnvöld sýna litinn áhuga eða
skilning á þessu. Hvarvetna
annars staðar i Evrópu er kvik-
myndaiðnaðurinn styrktur.”
,,En ég vil ekki standa i vegi
fyrir þvi sem gæti orðið og á aðal-
fundi Edda film, sem við héldum
fyrir nokkrum dögum sagði ég af
mér formennskunni. Meðstjórn-
endur minir sögðu þá af sér um
leiö, en þeir voru Friðfinnur
Ólafsson og Ólafur Þorgrimsson.
í nýju stjórninni eru þeir Indriði
G. Þorsteinsson, Róbert Arn-
finnsson og Hrafn Gunnlaugsson.
Þeireiga minar bestuóskirum að
vel takist.”
lendingum að góöu kunnur Hann
var forstjóri bókaútgáfunnar sem
gaf út bækur Laxness þegar hann
fekk Nóbelsverðlaunin.”
„Þetta var þannig að ég átti
sætii þjóðhátiðarnefndinni ásamt
honum Matthiasi og öðrum góð-
um mönnum. Mér þótti ófært að
gera ekkertþóttég væri fluttur úr
landi I bili og við réðumst þvi i að
gefa út bók með fslenskum máls-
háttum og spakmælum.”
„Það komu fleiri úr fjölskyld-
unni inn i þetta, þvi stjúpdóttir
min, Anna Maria
Guðmundsdóttir, gerði teikningar
i bókina. En islenskir málshættir
og spakmæli hljóta að falla i
góöan jarðveg hjá svium, þvi
bókin seldist upp á skömmum
tima og er nú gersamlega ófáan-
leg.”
„Það varð svo dálitill eftirleik-
ur eftir þetta fyrir önnu Mariu.
Forlagið sem gaf út þessa bók gaf
svo Ut aðra, sem Ake Ohlmarks
skrifaði um siðustu konungana á
Skáni. Og það fékk önnu Mariu til
aö teikna einnig myndir I þá bók.
Hún hlaut mikiö lof fyrir
árangurinn og þótti með ólildnd-
um að tvitug stúlka skyldi geta
gert fornsögum svona góð skil. Og
nú hefur hún nýlokið viö að teikna
i þriðju bókina.”
Tvö ný
kvikmyndahandrit
og þvi hef ég i sumar verið að
fletta upp ýmsum skruddum og
bera þær saman við mitt minni.”
„Ég var hálf hikandi við að
byr ja á þessu, en hef ekki séð eftir
þvi. Bókin nær aftur til minnar
barnæsku og ég hef haft mikla
ánægju af að rifja upp og lifa upp
aftur ýmislegt Ur henni. Þetta
hefur þvi ekki aðeins verið
erfiðið, heldur einnig ánægja.”
,,Nú hlýtur Þjóðleikhúsið að
taka nokkra kafla i bókinni, og
þar var ekki alltaf hljóttum þig”.
Nei.þaðer alveg rétt. Þaö gekk
oft á ýmsu meðan ég var þjóðieik-
hússtjóri. Það voru ýmsir sem
gagnrýndu mln verk og viö þvl er
ekkert að segja. Það er heldur
dauft Þjóöleikhús sem enginn
nennir að rifast um.”
„Sumir gengu þó fram fyrir
skjöldu i þessum efnum og ég gat
bókstaflega ekkert gert þeim til
hæfis. Það dæmi sem ég man best
eftir er ,,My Fair Lady”, það var
ekki svo litið sem gekk á. Mér var
hótað að nú skyldi ég sko burt frá
stofnuninni.”
„Þetta voru ýmsir sjálfskipaöir
menningarvitar sem þarna létu
mest og geystustfram á ritvöllinn
af minnsta tilefni, hvort sem það
var ég sem gaf þaö eða einhver
annar.”
„Ekki virðist þó hafa verið
mikið eldsneyti á þessum vitum,
þvi m ér sýnist þeir nú slokknaöir.
Þeir ráðskuðust i öllu þarna á
timabili, en nú heyrist varla i
þeim.”
„En hvað um það, þeim var
velkomið aö gagnrýna. Og ekki
hafði það neikvæð áhrif á „My
Fair Lady”, þvi sú uppsetning
varð einhver mesti „söksess”
Þjóðleikhússins. Það komu tæp-
lega sjötíu þúsund manns að sjá
•leikritið á þrem mánuðum. öllum
þótti gaman og sýningin bjargaði
fjárhag leikhússins. Ég mátti
þvi vel við una. Jú,það er töluvert
fjallað um leikhúsið og starf mitt
og samstarfsfólk.”
Hugsað til
heimferðar
„Hugsið þið ykkur að setjast
alveg að i Sviþjóð?”
„Nei, það gerum við ekki. Við
hugsum alltaf til heimalandsins
öðru hvoru. Ég er satt að segja
farinn að hugsa til heimferö-
arinnar, en Sigurlaug vill frekar
vera úti enn um sinn.”
„Það er ofur skiljanlegt. Hún
hefur nú tiltölulega nýlokið námi
og gengur vel i Sviþjóð. Tækifær-
in hérna heima eru svo margfallt
færri”.
„Meðan ég var þjóðleikhús-
stjóri gekk það starf fyrir öllu og
kom oft niður á fjölskyldunni. Nú
þegarhún hefur sitt tækifæri verö
ég auðvitað aö sýna skilning á
þvi.”
„Ekkiget ég nefnt neinn ákveð-
inn dag fyrir heimkomuna. En
1978 verð ég 75 ára. Þá býst ég við
að ævisagan komi út, og við kom-
um heim.” — ÓT
„Það var draumurinn þegar
Edda film var stofnað að það væri
visir að kvikmyndaiðnaði, en þaö
tókst ekki fyllilega. Það voru
gerðar þrjár myndir i minni tið,
„Salka Valka”, með Nordisk
Tonefilm, „79 af stöðinni” og
„Fögur er hliöin”, sem var land-
kynningarmynd. Svo var aðstoð-
að við „Rauðu skikkjuna”. Meira
varð það nú ekki.”
„Sást þú Lénharð fógeta i sjón-
varpinu?”
„Já, hann var sýndur i sænska
sjónvarpinu og ég horfði auðvitað
á hann þar. Mér fannst hann nú
ekki eins slæmur og íslensku
blöðin vildu vera láta. Þau voru
ákaflega neikvæð fannst mér.
A þessari mynd úr samsætinu má sjá Magnús Torfa Ólafsson, þáverandi menntamálaráöherra og frú,
Val Gislason og Guðbjörgu Þorbjarnardóttur.auk þeirra Guölaugs og Sigurlaugar.
Stormasamur
ævisögukafli
Guðlaugur hafði ekki hugsað
sér að skrifa ævisögu sina, þegar
hann hætti störfum hjá Þjóðleik-
húsinu. En aörir sáu tilefni til
þess. ,,Já, ég fékk boð frá Erni
og örlygi um að þeir vildu gefa út
ævisögu mina. Og þegar var ýtt
svona við mer, ákvað ég að láta af
verða. I fyrstu hafði ég hugsað
mér að skrifa aðeins um starf
. mitt við Þjóðleikhúsið, en þaö
likaði útgefendum ekki. Þeir
vildu fá alla mina ævi. Að þessu
hef ég unniö siöustu tvö árin, og
er nú að mestu leyti búinn.”
Sigurlaug og Guðlaugur Rósinkranz á tröppum Þjóðleikhússins á
leið i samsæti starfsfólks leikhússins honum til heiðurs 30. júni 1972
er hann lét af störfum.
„Þú skrifaðir handrit að kvik-
myndinni sem gerö var eftir ”79
„1 Sviþjóð hef ég verið fjarri
ýmsum gögnum sem mig vantaði
„Mér fannst ég eiginlega detta út úr lifinu, þegar ég lét af
störfum og ákvað þvi að láta mig bara detta út úr landinu
lika...”
Ég hef satt að segja litla von um að nokkurn tlma geti þrif-
ist kvikmyndaiðnaður á tslandi...”
„Það gekk á ýmsu meöan ég var þjóðleikhússtjóri...”