Vísir - 17.10.1976, Blaðsíða 6
6
Sunnudagur 17. október 1976
DAVID OG HERRA DICK — hinn eldri Copperfield, leikinn af David Yelland og hinn dálftiö geggjaöi
vinur Betsey Trotwoods, herra Dick, leikinn af Timothy Bateson. Þess má geta aö leikstjóri mynda-
flokksins, Joan Craft, hefur styrt sex öörum flokkum eftir sögum Charles Dickens, — ,,The Old
Curiosity Shop”, ,,A Tale of Two Cities”, „Martin Chuzzlewit”, „Dombey and Son”, „Nicholas
Nickleby” og eldri sjónvarpsútgáfunni af „David Copperfield”, sem gerö var 1966.
sleppt úr fangelsinu fór hagur
fjölskyldunnar heldur aö vænk-
ast, m.a. vegna þess aö henni
áskotnaðist nokkurarfur. Charles
var sendur til náms viö einka-
skóla i þrjú ár og áriö 1827, þá 15
ára, varð hann skrifstofumaður
hjá lögmanni. Hann lagöi allt
kapp á að mennta sig sem best.
Hann læröi hraöritun og geröist
fréttamaður, fyrst i dómssölum
og siöar i breska þinginu. Hann
þótti árvakur, skarpur og jafnvel
kaldrifjaöur blaðamaöur, en þó
hafði strax komið i ljós samúð
hans með hlutskipti hins fátæka
tötralýös stórborgarinnar og sú
áhersla sem hann jafnan leggur á
gjafmildi og náungakærleik, —
þótt sjálfum lánaöist honum ekki
alltaf aö framfylgjs þeim siöalög-
málum. En reynsla hans I blaða-
mennskunni, feröalög og seta á
bókasöfnum veittu honum þá
staögóöu þekkingu á sam-
timanum, sem verk hans spegla,
— jafnframt fjölbreyttri þjálfun i
ritmennsku.
Hinar stuttu skissur og athug-
anir hans frá þessum árum voru
gefnar út i safnbindum og nutu
þegar hylli. Siðar, eöa 1836-7,
birtust i 20 pörtum, „The Post-
humous Papers of the Pickwick
Club” undir dulnefninu „Boz”
meö myndskreytingum kunnra
listamanna. Þetta verk haföi
samfelldari skáldsögubyggingu
en skissurnar. Sú röð mannlifs-
mynda sem þarna birtist er eins
konar fyrirboöi um efniviö þeirra
skáldverka sem Dickens átti eftir
aö semja. Þótt þessu verki hafi
hin siðari ár ekki veriö mikill
gaumur gefinn varö þaö þó til
þess aö skapa Dickens orðstir
sem vinsæls rithöfundar.
Hjónabandið
Um svipaö leyti og rithöfundar-
ferill Dickens fer aö taka á sig
mynd fær einkalif hans fast form
er hann gengur aö eiga Catherine
Hogarth, dóttur ritstjóra dag-
blaðsins Evening Chronicle, sem
Dickens starfaöi viö siöustu ár
blaðamannaferils sins. Þau eign-
MICAWBER OG DAVID — hinn
snjalli skopleikari Arthur Lowe í
hlutverki Micawbers og hinn ungi
Copperfield, leikinn af Jonathan
Kahn. Micawber á margt
sameiginlegt meö fööur Charles
Dickens.
„David Copperfield
— honn er mitt uppáhald"
— sagði Charles Dickens um skáldsögur sínar
Hér segir frá litríku lífshlaupi rithöfundarins
Charles John Huffam Dickens
fæddist 7. febrúar árið 1812 nærri
Portsmouth inn I fjölskyldu hrak-
fallabálka af lágri millistétt.
Hann var annaö barn John Dick-
ens og Elizabeth Barrow. John
Dickens var um þær mundir
skrifstofumaður i launadeild
breska flotans á staönum, en alla
ævivarhann æöirápgjarn og laus
i rásinni og lenti i sifelldum
ógöngum, bæöi fyrir óheppni og
eigin annmarka. Charles var
aðeins tveggja ára er fjölskyldan
flutti til London og þaöan fór hún
aöeins þremur árum siöar til
Chatham. Þaöan var siöan flutt
áriö 1923 til Lundúna. Peráonu-
einkenni fööurins og flakk og
óvsssa fjölskyldulifsins birtast
m.a. i iysingu hins skuldseiga,
óstööuga en gæflynda herra Mic-
awber i „David Copperfield”.
John Dickens átti i látlausum
fjárhagsvandræöum, og þrátt
fyrir ástúölegt viðmót vanrækti
hann með öllu menntun Charles
sonar sins. A barnsaldri komu þvi
helstu mótunaráhrif hins verð-
andi rithöfundar frá umhverfinu,
einsog hafnarlifinu i Chatham, og
svo frá alls kyns gömlum skrudd-
um, þ.á.m. mörgum helstu skáld-
sögum breskrar tungu, svo sem
„Robinson Crusoe” og „Tom
Jones” sem áttu eftir að setja
mark sitt á ritlist hans.
Á vergangi
Þegar Charles var 10 ára fór
fjölskyldan enn einu sinni á ver-
gang. John Dickens var skuldum
vafinn.ogeiginkona hans, sem þó
átti fyrir átta börnum aö sjá.
reyndi aö stofna skóla af subbu-
legri sortinni. Sá skóli fékk aldrei
nemendur. Charles var sendur til
vinnu i vöruhúsi I eigu ættingja,
er fööur hans var stungiö i
skuldafangelsi.
Beiskleg endurminning um
þetta dapurlega og tilbreytingar-
lausa timabil birtist með saman-
dregnum nætti I „David Copper-
field” og einnig'i áhrifamiklu
sjálfsævisögubroti sem vinur
hans og ævisöguhöfundur John
Forster varöveitti. A þessum
tima bjó fjölskyldan hjá heimilis-
föðurnum i skuldafangelsinu I
Marshalsea.
Þessi ár, óróinn í uppvextinum,
sú tilfinning Charles aö hann væri
auömýktur og heföi fyrirgert
viröuleik þeirrar stéttar sem
hann tilheyrði, millistéttinni, ráp
hans um stræti Lundúna,
reynslan af fangelsi, fátækt og
SKALKURINN — Martin Jarvis leikur hinn útsmogna skálk Uriah
Heep.
vinnuþrælkun, — allt þetta setti
varanlegt mark á hinn unga
dreng, sem þá þegar haföi ræktaö
meö sér næma athyglisgáfu á sér-
kenni fólks og umhverfis. Upp úr
þessu spretta skáldsögur hans og
félagslegar kenningar.
Gliman við pennann
Er John Dickens haföi veriö