Vísir - 12.11.1976, Blaðsíða 5

Vísir - 12.11.1976, Blaðsíða 5
Gréta Garbo sjúkl- ingur? Greta Garbo og Barrymore I einni af gömlu myndunum — „Grand Hotel”. Sloan Kattering Memorial-sjúkrahúsið i New York hefur hvorki viljað staðfesta eða taka fyrir blaða- skrif um, að hin 71 árs gamla kvikmyndaleik- kona, Greta Garbo, gangist þar undir geislalækningar vegna krabbameins. Vestur-þýska blaðið „Bild Zeitung” hefur haldið þessu fram, en blaðafulltrúi sjúkra- hússinshefurfærstundan þvi að segja af eða á. „Ég held, að þetta sé ekki rétt, en ég hef engar upplýsing- ar um það,” sagði blaðafulltrú- inn. Margt frægra manna i Banda- rikjunum hefur sött krabba- meinslækningar til þessa sjúkrahúss. Þar á meðal Hubert Humphrey þingmaður og Happy, eiginkona Nelsons Rockefellers, varaforsetá. Greta Garbo hætti kvik- myndaleik 1941 þá aðeins 36 ára að aldri. Fönixeldflaugin, sem bjargað var upp úr Norðursjónum. — Nú hefur þotan náðst Björguðu herþotunni af hofsbotni Bandariska flotanum hefur teki9t að bjarga upp af botni Norðursjáv- ar F-14 Tomcat-herþot- unni, sem féll fyrir borð flugmóðurskips á æfing- um fyrir tveim mánuð- um. Björgunarskipið „Taurus” náði flugvélinni um borð i gærkvöldi og kemur með hana til Skotlands i dag. Skipið var fengið að láni frá v-þjóðverjum til þessarar björgunartilraunar. F-14 herþotan kostar 21 milljón dollara i framleiðslu, enauk þess var bandarikjamönnum mjög annt um að flugskeytabúnaður félarinnar, sem búin var Fönix- eldflaugum, kæmist ekki i hendur öðrum. 1 vélinni, sem féll i sjóinn, var einungis eitt Fönix-skeyti, sem hefur losnað frá vélinni, en þvi var bjargað um mánaðamótin. Þotan verður flutt til Banda- rikjanna, þar sem sérfræðingar munu reyna að finna, hvað olli þvi, að þotan lét ekki að stjórn flugmannsins og rann fyrir borð af flugmóðurskipinu John F. Kennedy. vism Föstudagur 12. nóvember 1976 á Kyrrahafí Þrjátiu og þriggja nanna áhöfn flutninga- skips, sem var i nauðum statt i hvassviðri á Kyrrahafi i gær, fór i björgunarbátana eftir að hafa sent úr neyðar- skeyti og tilkynnt að skipið væri að sökkva. Skipstjórinn tilkynnti, að hluti af timburfarmi skipsins „Carne- lian” frá Panama hefði skolast fyrir borð og skipið orðið fyrir slikum áföllum, að það væri að sökkva. Sterkustu vindkviðurnar á þessum slóðum voru 40 til 50 hnútar og öldur allt að tiu metra háar. Könnunarflugvél frá Alaska leitaði uppi skipið og fann nokkra skipbrotsmenn i björgunarbátum og hangandi á braki úrskipinu, en gat enga aðstoð veitt aðra, en varpa til þeirra gúmbátum. Norska flutningaskipið Jalanta tók stefnu til hinna nauðstöddu manna, en var ekki væntanlegt á staðinn fyrr en undir hádegi. — Varðskip iagði upp frá hafnar- bænum Kodiak i Alaska, en þaðan er tveggja daga sigling á slys- stað. Það-siðast, sem frá hinu nauð- stadda skipi heyrðist i gærkvöldi, voru kveðjuorð loftskeytamanns- ins, sem var að yfirgefa skipið og sagði: „Það á ekki eftir nema nokkrar minútur.” hofsnauð DÆMDIR FYRIR POPPHUOMLIST Áfrýjunarréttur i Prag hefur nú staðfest fangelsisdómana yfir tékknesku popphljóm- listarmönnunum fjórum þrátt fyrir vaxandi kurr vegna dómanna. Þeir höfðu verið dæmdir i átta til átján mánaða fengelsi fyrir „skrilslæti”, en flestir lita svo á, • að þeir séu fórnarlömb andúðar yfirvalda á listamönnum sem ekki fylgja hefðbundnum list- formum. Ættingjar fjórmenninganna voru staðfestingu áfrýjunar- réttarins að nokkru leyti fegnir, þvi að menn kviðu þvi að refs- ingarnar yrðu þyngdar. Tiu virtir lögfræðingar, sem of- sóttir hafa verið allt frá innrás- inni 1968, hafa i opnu bréfi for- dæmt dómana, og segja, að þeir hafi ekki við nokkur lög að styðjast. Sögðu þeir, að hvorugur dómstóllinn hefði getað sannað, að piltarnir fjórir hefðu brotið klámlög' •. eða reynt að raska ál- mannaró. Þetta opna bréf er undirritað af Zdenek Mlynar, fyrrum fram- kvæmdastjóra kommúnista- flokksins, Zdenek Kratochvil, fyrrum aðstoðardómsmálaráð- herra, og átta fyrrverandi dóm- urum. Við fyrri réttarhöld i Pilsen voru þrir dæmdir i átta til 30 mánaða fengelsis fyrir aö skipu- leggja „neðanjarðarhljóm- leika”. Refsitiminn var styttur um helming eftir áfrýjun. — Tiu til viðbótarbiða dóma fyrir sömu sakargiftir. Flestir þeirra hafa setið i varðhaldi siðan i mars. Hljómlistarmennirnir heyrðu flestir til popphlómsveitunum „Plastfólkið i heiminum” og DG 307”. TÝND FEGURÐARDÍS Ein fegurðardisanna, sem keppa eiga i London um titil- inn „Miss World”, er ófinnan- leg, en hennar hefur verið saknað i heila viku. Maria Gimenez, 19 ára gömul námsstúlka frá Venesúela, hafði farið frá Caracas til Spánar, þar sem hún ætlaði að hverja heilli helgi, áður en hún færi til Lon- don til fegurðarsamkeppn- innar. Hún átti bókað hótelher- bergi i London, en kom þangaö ekki á tilskildum tima fyrir viku. Sökk við kvikmynda- gerðina Kafarar náðu upp i gær likum fimm afrikumanna, sem drukknuðu, þegar ferja sökk við töku kvikmyndar á Kyle-vatni i Ródesiu. Mynd þessi ber nafnið „Þrælarnir” og fer Britt Ekland þar með eitt aðalhlutverka. Kvikmyndafélagið er i eigu v-þjóðverja og ródesiumanna. Sjópróf eiga eftir að fara fram, en hvassviðri mun hafa skollið á, meðan myndatökur stóðu yfir i gær. I Hausthappdrœtti Sjólfstœðisflokksins dregið á morgun Afgreiðslan i Sjálfstœðishúsinu Bolholti 7 er opin i dag til kl. 23. sími 82900 Greiðsla sótt heim ef óskað er

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.