Vísir - 15.11.1976, Qupperneq 1

Vísir - 15.11.1976, Qupperneq 1
V Úrskurðaður í gœsluvarðhald: ÓVlST AD MAÐURINN TENG- IST HVARFI GEIRFINNS Telja að Sœvar hafi sagt honum frá málsatvikum Hassiö fannst I þessum bil er hann haföi nánast veriö rifinn niöur eftir aö hann kom til landsins f desember í fyrra. I Maöurinn seip úrskuröaöur var i ailt aö 20 daga gæsluvarö- hald aöfaranótt laugardags vegna rannsóknar Geirfinns- málsins, er talinn búa yfir meiri upplýsingum en hann vill kann- ast viö. Þaö er einkum samband hans viö Sævar Ciecielski sem sakadómur vill kanna nánar. (Jrskuröur þessi hefur veriö kæröur til hæstaréttar. Birgir Þormar fulltrúi hjá sakadómi kvaö upp þennan gæsluvaröhaldsúrskurö. 1 sam- tali við Visi vildi hann ekki segja annað um málið en þaö sem aö ofan greinir. Um ástæö- ur þess aö hann kvaö upp þennan Urskurð svaraöi hann því til, aö hann hefði átt helgarvakt og þetta þvikomiö Isinn hlut, en aö ööru leytiheföihann ekki fjallaö um rannsókn Geirfinnsmálsins. Gögn málsins veröa að líkindum send hæstarétti I dag vegna kæru réttargæslumanns þess handtekna. Eigandi hassbilsins Viðkomandi maður er liðlega þrítugur og komst hann I kast viö fikniefnadeildina i desember i fyrra. Þá fundu tollverðir nokkur kiló af hassj sem falin vóru i bil þessa manns, en bill- inn var fluttur hingað til lands með skipi. Eigandinn hgfði um haustiö ferðast nokkuö erlendis i bilnum og munu hann og Sæ- var hafa haftnokkurt samband þar. Sævar Ciecielski var einnig handtekinn vegna þessa hass- máls og i framhaldi af þvi komst upp um fjársvikin hjá pósti og sima og Guðmundar- málið, þannig, aö Sævar hefur setið I varðhaldi siðan. Hann gekkst við sinum hluta af hass- inu ásamt tveimur öðrum, en þátttaka bileigandans var mjög óljós i þessu máli. Þetta hass- smygl er enn til meðferðar hjá rikissaksóknara. Yfirheyrður áður Ljóst er að bileigandinn og Sævar hafa verið kunningjar um nokkurt skeið. 1 mai mánuði gaf bileigandinn skýrslu fyrir sakadómi um kunningsskap sinn og Sævars og var ekki kallaður til yfirheyrslu fyrr en siðastliðinn föstudag. Var hann yfirheyrður allan þann dag og fram á nótt þar til ljóst þótti að kveöa varð upp gæsluvarð- haldsUrskurð. Samkvæmt upplýsingum sem Visir hefur aflað sér var bileig- andinn ekki handtekinn nU vegna nýrra upplýsinga frá gæsluvarðhaldsföngunum fjór- um og er með öllu óvist aö hann geti gefið einhverjar upplýsing- ar um hvarf Geirfinns Einars- sonar. Eins og Visir skýrði frá á laugardaginn hefur verið settur enn meiri kraftur i rannsókn Geirfinnsmálsins og var unnið sleitulaust alla helgina. Þá má geta þess, að saka- dómur hefur skrifaö niður á lista nöfn fjölda manna sem samkvæmt framburöi gæslu- fanganna eiga að hafa verið i dráttarbrautinni i Keflavik kvöldið sem Geirfinnur hvarf. Eruhin óliklegustu nöfn á þeim lista. Bensíneyðslan nœr tvöfalt meiri í bœjar- akstri en á þjóðvegunum w Omar Ragnarsson skrifar um bensíneyðslu rúmlega 30 bíltegunda - Sjá Bílarnir og við á bls. 12 og 13 Hvernig fer persónukjör með valkost- um fram? Sjá grein Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar á bls. 11 Á uppboðum fást um 50% aðflutningsgjalda uppboðsvarningsins segir Björn Hermannsson, tollstjóri, á blaðsíðu 14 ER ÞAÐ GLÆPUR AÐ RÆÐA ÞESSI MÁL? Guðmwndur Magnússon, skólastjóri, svarar grein Haralds Blöndals um aðgerðir kennara á dögunum — sjá bls. 8 HVERJIRRAÐA: RIKISSTJÓRNIN EÐA - II * • x I • r KRATARNIR í RÁÐUNEYTUNUM? STs “V

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.