Vísir - 15.11.1976, Qupperneq 5
Stœrsta reið-
hjól heims
Eins og allir vita er hjólhesturinn þarfasti þjónn frtenda okkar dana,
og þaö var þvi ekki nema að vonum, aö þaö yröi dani, sem smlöaöi
stærsta reiðhjól heims. — Tage Krogshave, vélvirki frá Jótlandi,
sést hér stýra gripnum, en hefur 68 fætur sér til hjálpar við aö stlga
hjóliö. — Hvort notkun svona farartækis á eftir aö veröa útbreidd,
getur veriö að nokkru undir þvl komiö, hve djarfir þeir veröa hjá
OPEC I benslnhækkunum.
Flytur EBE
skýrslu frá
íslandi
Utanrikisráðherrar
EBE-landanna þykja
liklegir til þess i dag að
hafna tilboði sovét-
manna um samstarf við
Comecon, efnahags-
bandalag A-Evrópu.
Er búist við þvi að þeir
leggi fram gagntilboð
um samstarf á sviði
samgangna og flutn-
inga, umhverfismála og
upplýsingaskipta.
Hinsvegar leikur EBE hugur á
að auka samskiptin viö Júgó-
slaviu, meðan stjórnin í Belgrad;
er sögð á nálum um, hvort slikt
mundi styggja valdamenn I
Kreml.—Júgóslövum erum og ó,
þvl að þeir kvíða meiri afskiptum
Sovétrikjanna af innanlandsmál-
um þeirra, þegar hinn 84 ára
gamli Tito hverfur frá.
A dagskrá fundar utanrikisráð-
herranna verður einnig sú fyrir-
ætlun samtaka oliuútflutnings-
rikja að hækka verö á oliu enn
einu sinni, sem mundi hafa alvar-
legar afleiðingar á efnahagslíf
EBE-landa sem annarra iðnaðar-
rikja.
Finn-Olav Gundelach, nýkom-
inn frá viðræðum við Einar
Agústsson i Reykjavik, mun
flytja utanrikisráðherrunum
skýrslu um það sem þeim fór á
milli í siðustu viku og viöbrögð is-
lendinga við óskum EBE um
veiðiheimildir innan 200 milna
fiskveiðilögsögunnar.
EBE-löndin niu hafa loks orðið
á eitt sátt um sina eigin 200 milna
fiskveiðilögsögu, og er nú næst
fyrir dyrum að ræöa um gagn-
kvæmar fiskveiöiheimildir við
riki utan EBE.
OPEC undir-
býr nýja
olíuhœkkun
Helstu olíuútf lutnings-
ríkin byrja i dag að leggja
drög að nýrri hækkun olíu-
verðS/ þrátt fyrir viðvar-
anir um að hærri bensin-
kostnaður gæti sett efna-
hagslíf Vesturlanda úr
skorðum.
Fjárhagsráð OPEC-samtak-
anna kemur saman til fundar i
dag og mun á næstu tiu dögum
fara i gegnum gögn og skýrslur til
að finna sannanir fyrir nauðsyn
nýrrar verðhækkunar.
Embættismenn OPEC hafa vis-
að á bug viðvörunum bandarikja-
manna og annarra vesturlanda-
manna um alvarlegar afleiðingar
nýrrar oliuhækkunar fyrir efna-
hag vestrænna rikja.
Oliuverðstöðvun hefur nú veriö
i gildi i 15 mánuði, en sérfræöing-
ar telja, að hún verði afnumin að
þessu sinni. Spá flestir þvi, að
næsta verðhækkun verði um 10%,
en kvisast hefur, að þeir áköfustu
innan OPEC heimti hærri hækk-
un.
Leggja til fanga-
skipti Chile og
Sovétríkjanna
Chile hefur boðist til þess
að láta lausan Luis Corval-
an, leiðtoga kommúnista í
Chile, í skiptum fyrir
sovéska andófsmanninn,
Vladimir Bukovsky, eftir
því sem Sakharov mann-
réttindanefndin i Kaup-
mannahöfn segir. — Bu-
kovsky er í fangelsi
skammt austan Kreml.
Talsmaður mannréttinda-
nefndarinnar segir, að henni hafi
borist bréf frá stjórn Chile, þar
sem gengiö sé aö tillögu um
fangaskipti milli landanna Sovét-
stjórn hefur hinsvegar ekki svar-
að tilboðinu.
Corvalan var tekinn til fanga
eftir byltingu hersins 1973. Bu-
kovsky var dæmdur 1972 i tólf ára
fangelsi og útlegð fyrir and-
sovéskan áróður.
A byltingarafmælinu 1974 skor-
aði chilestjórn á Sovétrikin að
hafa skipti á pólitiskum föngum.
Sovétstjórnin, sem kannast ekki
við að hafa slika fanga, hafnaði.
Mannréttindanefndin i Kaup-
mannahöfn, sem kennd er við
Andrei Sakharov, segist hafa
stungiö upp á þvi viö stjórnir
þessara tveggja rikja, að bæði
löndin létu lausa þessa tvo fanga.
Um leiö var stjórnin i Moskvu
beðin um að leyfa Ninu, móður
Bukovskys, að fylgja syni sinum
úr landi, en hún hefur barist
ákafri baráttu fyrir þvi að fá hann
lausan.
Bukovsky var meðal fyrstu
manna, til aö halda þvi fram opin-
berlega, að yfirvöld neyddu and-
lega heilbrigða stjórnarand-
stæðinga til að gangast undir geð-
læknismeðferð vegna stjórn-
málaskoðana þeirra.
O
o o
o
VERT
ÞÚ
DOIUIARINN
Simca 1307/1508 nýjasti og glæsilegasti bíllinn frá Chrysler
í Frakklandi, var valinn bíll ársins í Evrópit 1976.
Simca 1307/1508 hefur ekki fengist afgreiddur
til íslands fyrr en nú, vegna gífurlegrar eftirspumar á
meginlandinu. Bíllinn er fimm
manna og með fimm hurðir,
þannig að breyta má honum í
stationbfl á nokkrum sek-
úndum. Pú getur valið um
1294 cc eða 1442 cc
vél, sem hefur vakið
athygli fyrir litla
benzín notkun,
en mikinn kraft.
í bílnum er glæsi-
leg innrétting.
hituð afturrúða, kraft-
mikil miðstöð, elektrónísk kveikja,
og ýmislegt fleira er fáanlegt eins og t.d.
rafmagnsrúðu-upphalarar, litað gler, framljósaþurrkur
og stereo-hátalarakerfi. Fyrstu sendingarnar uppseldar, tryggið yður bíl úr næstu sendingu.
SimiP 1307-5imtH 1508
Þú ert besti dómarinn í gæðamáli Simca 1307/1508 —
aðrir hafa sagt að þetta sé bíll morgundagsins.
Ifökull hf.
ÁRMÚLA 36, Símar 84366 - 84491