Vísir - 15.11.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 15.11.1976, Blaðsíða 4
*\ Mánudagur 15. nóvember 1976 vtsir U m s j ón : Guðmundur Mig-þotan á leið heim Sovéskt f lutningaskip lagði úr Hitachi-höfn í morgun með eitt stykki Mig-25-herþotu innan- borðs á leið heim til Sovétrikjanna. Þarna var auðvitað um að ræða þotu Belenko liðsforingja, sem 6. september lenti i Japan og óskaði hælis sem pólitiskur flóttamaður. Samtimis þvi að skipið lagði úr höin, birti japansstjórn yfir- lýsingu þess efnis, að hún hefði haft fullan rétt til þess að leyfa flugmanninum að flytjast til Bandarikjanna, og til jjess að grannskoða hernaðarleyndar- mál flugvélarinnar. Flugvélin hafði verið tekin sundur stykki fyrir stykki af japönskum og bandariskum hernaðarsérfræðingum, sem komust þar aldeilis i feitt, þvi að Mig-25 er einhver fullkomnasta orustuþota heims. „Stjórn Japans telur, að sú vinsamlega sambúð, sem tekist hefur með Japan og Sovétrikj- unum siðustu árin, þurfi ekki að biða skaða af þessu atviki,” sagði i yfirlýsingunni. Sovésku MIG-þotunni skipað út i rússneska flutningaskipið Taigono i Ilitachi-höfn. SKÆRULIÐAR Unita í Angóla hafa tekiö til fanga 90 kúbanska her- menn og vilja hafa skipti á þeim og Unita föngum stjórnarhersins/ eftir því sem talsmaður samtak- anna i Dakar segir. Chirac sigraði í fyrstu umferð Jaques Chirac, fyrr- um forsætisráðherra sem sagði af sér vegna ágreinings við D’Estaing Frakklands- forseta, vann sannfær- andi sigur i fyrri um- ferð aukakosninga i kjördæmi sinu i gær. En á meðan römbuðu fjórir meðráðherrar hans á barmi falls i sín- um kjördæmum, þar sem sósialistar unnu á. Alls fara fram aukakosningar i sjö kjördæmum og er fylgst með þeim af athygli, þar sem niðiæstööur þeirra þykja gefa nokkra hugmynd um, hvernig fara mun fyrir stjórnarflokkun- um i kosningunum, sem fyrir- hugaðar eru eftir 16 mánuði. t Correze-kjördæmi fékk Chirac 53% og er það 2% meira en hann fékk i kosningunum 1973. — t hinum kjördæmunum unnu sósialistar eitt sæti, stjórnin hélt einu, meðan kjósa verður aftur i fjórum kjördæm- um, þar sem úrslitin voru of tvi- sýn og naum, en þar bjöða sig fram fyrrverandi ráðherrar. Til þessara aukakosninga var efnt, vegna þess að þegar franskir þingménn gerast ráð- herrar segja þeir af sér þing- mennsku. Þegar þeir létu af ráðherrastörfum sögðu eftir- menn þeirra af sér þing- mennsku, til að gefa þeim kost á að vinna aftur kjördæmið og sitt gamla sæti á þingi. — I einu kjördæminu olli dauðsfall þing- mannsins þvi, að kjósa varð aft- ur. t þessum kosningum voru alls 400 þúsund á kjörskrá, en kjörsökn þótti dræm, nema i Correze og Haute Loire. Byssur snar- þögnuðu þegar sýrlendingar birtust Krefst fullnustu dauða- dóms yfir sér Gary Gilmore, dæmdur morð- ingi, sem berst fyrir þvi að af- tökusveit i'ullnægi dauðadómnum yfir honum, vill horfast i augu við höðla sina, þegar stundin rennur upp —eftir þvi sem lögfræðingur hans segir. Gilmore verður fyrsti refsi- fanginn i Bandarikjunum i 10 ár, sem tekur út dauðarefsingu sina, en það verður þá að miklu leyti vegna kröfu hans sjálfs. Gilmore situr i fangelsi i Utah, en þar gera lög svo ráð fyrir, að dauðadæmdur fangi megi velja milli aftökusveitar og gálgans. — Gílmore hefur óskað eftir þvi að mæta heldur aftökusveitinni, en sagði lögfræðingi sinum i gær, að hann vildi ekki að svarta hettan yrði dregin yfir höfuð honum, eins og venja hefur verið. 1 tiu ár hefur dauðarefsingu ekki verið fullnægt i Banda- rikjunum. Menn greinir mjög á um réttmæti hennar, og dómstól- ar hafa ekki verið á eitt sáttir um, hvort dauðarefsing, þar sem hún er enn i gildi, stangist á við stjórnarskrá landsins. — 1 fangelsum viðsvegar um Banda- rikin sitja 400 dauðadæmdir refsi- fangar og biða niðurstöðu þessa mdlaþrefs. Rétt undir dögun i morgun gátu ibúar i Beirút greint inn á milli skothvellanna hjá leyniskyttunum skrölt i vélbeltum frá út- hverfunum. Skothríð- inni linnti samtimis. Fimm bryndrekasveitir sýr- lendinga voru komnar til höfuð- borgarinnar til að gæta þess að vopnahléð verði haldið, og vog- aði enginn sér að sýna þeim mótþróa. Sumstaðar i úthverfunum var sýrlensku skriðdrekunum fagn- að. 1 einu hverfi vinstrimanna og múhammeðstrúar fór einn skriðdrekinn i sýningarakstur upp og niður götuna, en foringi bryndeildarinnar og einn for- vigismaður heimamanna stóðu hjá og gáfu heiðurskveðju. — I hverfum hægrimanna og krist- inna var komu skriðdrekanna tekið með rósemi. 1 alla nótt hafði verið barist af hörku i Beirút. Velbyssugeltinu linnti ekki, og fallbyssur dun- uðu, meðan eldflaugar klufu loftið'með skerandi ýlfri. Sýrlendingar eru þeir fyrstu úr friðargæslusveitum araba, sem komnir eru til þess að hafa eftirlit með þvi að vopnahléö verði virt. Af fyrstu viðbrögðum vaknar hjá mönnum bjartsýni um, að það megi takast að þessu sinni. „Þu getur reitt þig á mig!" Georges Sangumba, erindreki Unita i utanrikismálum, sagði fréttamönnum i Dakar, að skæruliðarnir hefðu jafnframt tekið höndum nokkur hundruð hermenn MPLA. Hann hefur undanfarna daga átt við ræður við Senghor, for- seta Senegal, og gefið honum skýrslu um gang skæruhernað- arins i Angóla. Senegal hefur aldrei viðurkennt stjórn MPLA, heldur lagt til að mynduð yrði þjóðstjórn. Sangumba sagði, að Unita væri reiðubúin til að semja við MPLA með þvi skilyrði þó, að kúbönsku hermennirnir yrðu úr landi sem fyrst. —- „Okkar markmið er að leysa hinn pólit- iska hnút i landinu með myndun þjóðstjórnar,” sagði hann. Heldur hann þvi fram að Sov- etrikin hafi fengið qðstöðu fyrir flota sinn i tveimur höfnum i AngólaOnnur eri Luanda og hin i Lobito, og þangað væru þegar komnir tvcir tundurskeytabátar sovéskir. HAFA TEKIÐ 90 STRÍÐSFANGA ÚR UÐIKÚBUMANNA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.