Vísir - 15.11.1976, Side 16
20
NÝ BARÁTTUAÐFERÐ KOMMÚNISTA:
Mánudagur 15. nóvember 1976 VISIR
Revna að sundra danska
hernum innanfrá
„Afvopnið rikjandi
stéttir”
Bæði samtökin hvetja vinstri
menn til að sækjast eftir að
gegna herskyldu sinni og verða
Margrét, danadrottning, með soldátum sinum. Eru einhverjir þeirra „pólitiskir hermenn”?
Danska varnarm álaráðu-
neytið hefur nú tekið til rann-
sóknar tilraunir vinstri manna
til að „eyðileggja” danska her-
inn innan frá. Það er nú liðið um
hálft ár siðan fyrst komst á
kreik orðrómur um þessa niður-
rifsstarfscmi, en nú er hún kom-
in upp á yfirborðið, með þvf að
um hana hefur verið fjallað I
málgagni viðkomandi.
Það hefur komið i ljós að þetta
er töluvert umfangsmikil og vel
skipulögð starfsemi. Það eru
Samtök herskylduandstæðinga
sem hófu þessa niðurrifsstarf-
semi. I september siðastliðnum
breyttu þau nafninu i „Hernað-
ar- og skylduandstæðingar” i
þvi skyni að verða sér úti um
fleiri félagsmenn. Þá eru einnig
til „Hernaðarandstæðingasam-
tök hermanna,” sem stefna að
sama marki.
Bæði þessi samtök hefa lýst
þvi yfir opinberlega að takmark
þeirra sé eyðilegging danska
hersins innanfrá. Hermanna-
samtökin starfa samt „neðan-
jarðar” enn sem komið er.
pólitiskir hermenn. Þeir eiga að
stofna samtök innan hersins.
tblaðinu „Politisk revy”, sem
vinstri menn gefa út er fjallað
um þetta undir fyrirsögninni
„Vigbúist, það gera smáborgar-
arnir”. Þar segir meðal annars
að menn eigi að reyna að tengja
hermennina við þá baráttu sem
fari fram á vinnustöðunum og
annars staðar i þjóðfélaginu.
1 blaðinu er sagt að hernum sé
einkum ætlað að verja „innra
öryggi”, sem þýði i rauninni að
hann eigi að verja eignaréttinn,
en það þykir ákaflega slæmt.
Þvi þykir mikilvægt að afvopna
„hinar rikjandi stéttir” til að
hindra fyrirhugaða valdbeit-
ingu þeirra og kúgun.
Politisk revy segir að megin-
vopnin eigi að vera verkföll,
mótmælaaðgerðirog-óhlýðni við
skipunum. Þau vopn biti þó að-
eins að hermennirnir geri sér
grein fyrir að það sé verkalýð-
urinn sem hann eigi að stofna til
bandalags við.
Koma eigin mönnum i
lykilstöður
1 hernaðaráætlun kommúnist-
anna er að sögn Berlingske Tid-
ende gert ráð fyrir að reynt sé
að skapa óánægju og óróa meðal
þeirra sem séu að gegna her-
skyldu. Útsendararnir eiga að
koma sér i þá aðstöðu að þeir
séu talsmenn hermannanna.
Með þvi nái þeir leiðtogastöðu
meðal hinna óbreyttu, og fái
betri innsýn i kerfið og hvernig
það starfar. Ástæðan fyrir þvi
að Samtök herskylduandstæð-
inga breyttu um nafn, var sú að
með þvi að hvetja menn til að
gegna ekki herskyldu, gerðist
einmitt það sem kommúnistar
kærðu sig ekki um. 1 stað þess
að herinn legðist niður, varð
hann að her atvinnumanna.
Það var þvi talið nauðsynlegt
að breyta um stefnu. í stað þess
að reyna að hindra að herinn fái
mannskap, reyna kommúnistar
að koma sinum eigin mönnum i
lykilstöður þar, til að geta rifið
hann niður innan frá. Þeir vilja
fá hermennina til að beina
vopnum sinum gegn þeim sem
kommúnistar kalla „þjóðfé-
lagskiigara þ.e. rikisstjórn
landsins.
Byltingarmenn læra
vopnaburð
Ungum mönnum eru gefin ráö
um hvernig þeir skuli haga nið-
urrifsstarfseminni. Þeim er
ráðlagt að bjóða sig fram til
herþjónustu, en ekki biða eftir
þvi að þeir verði kallaðir. Með
þvi móti geti þeir haft meiri á-
hrif á hvar þeir lenda.
Þeir eiga svo að reyna að
komast á stærstu herstöðvarnar
og verða talsmenn hinna ó-
breyttu hermanna þar. Þeim er
þó eindregið ráðlagt að fara dult
með skoðanir sinar fyrst i stað.
Þeir eiga að vera undirróðurs-
menn og ala á óánægju.
Kommúnistar hafa snarsnúist
i þeirri skoðun sinni að menn
eigi ekki að gegna herþjónustu.
Nú er það einmitt talið mikil-
vægt að ungir byltingamenn séu
i hernum einhvern tima. Með
þvi læri þeir á herinn innanfrá
og fái þjálfun i meðferð vopna.
Ef mönnum tekst ekki að
komast i fastaherinn, er þeim
ráðlagt að reyna að komast i
heimavarnarliðið og halda þar
uppi samskonar starfsemi.
Það er ekki vitað enn hversu
áhrifarik þessi niðurrifsstarf-
semi er orðin. En undanfarna
mánuði hefur verið nokkur óri i
nokkrum herstöðvum i Dan-
mörku. Meðalannars hafa verið
bornar fram kvartanir út af
mataræðinu. Varnarmálaráðu-
neytið kannar nú hvort þessi ö-
rói kunni að vera verk hinna
„pólitisku hermanna” vinstri
aflanna. _
BELTEK
Stereo segulband, 8 rása í bíla
Allir tala um
verðhœkkanir en við
bjóðum stórkostlega
verðlœkkun
Venjulegt verð 26.200.-,
okkarverð 12.800.-.
Mjög gott verð.
Takmarkað upplag
INGVAR HELGASON
Vonarlondi v/Sogav«g — Simar 84SI0 og 8451 1
'i'
^Jímnn6ergs6rœiu
Skóverslun, Laugavegi 24
ét.