Vísir - 15.11.1976, Síða 17
vism Mánudagur 15. nóvember 1976
21
Bandalag háskólamanna:
Vinnustöðvun til að fylgja eft-
ir kröfunni um launahœkkun
Verkfallsréttur opinberra
starfsmanna var mjög til
umræðu siðast Iiðið haust og þá
lét Bandalag háskólamanna
fara fram könnun meðal félags-
manna um verkfailsréttinn.
Svör bárust frá helmingi félags-
manna og vildu 61% verkfalis-
rétt, en 31,1 voru á móti.
Rikið og BSRB hafa skrifað
undir samning um takmark-
aðan verkfallsrétt opinberra
starfsmanna, en BHM taldi ekki
rétt að gera hliðstætt samkomu-
lag. Helstu ástæður voru þær, að
of margar undanþágur voru frá
verkfallsréttinum, of langur
samningstimi án endurskoð-
unarréttar og skerðing Lifeyris-
sjóðs opinberra starfsmanna.
Mun launamálaráð BHM beita
sér fyrir þvi að viðræður verði
teknar upp að nýju og stefnt að
þvi að opinberir starfsmenn
innan BHM fái fullan samnings-
rétt.
í tilefni þess að meirihluti fé-
lagsmanna BHM hyggst leggja
niður vinnu á mánudaginn hefur
bandalagið sent frá sér stutta
greinargerð um kröfur sínar.
Fer hún hér á eftir. — SG
Kjaramál BHM
Hinn 9. september s.l. lagði
launamálaráð BHM fram
kröfur um 30% hækkun
launa frá 1. júli 1976 til viöbótar
þegar umsömdum hækkunum.
Helstu rök launamálaráös
BHM fyrir kröfugeröinni eru
þessi:
1. Samanburður á launum rikis-
starfsmanna annars vegar og
á frjálsum markaði hins veg-
ar sýnir að laun rikisstarfs-
manna eru nú 30-60% lægri.
2. Kaupmáttur launa rikis-
starfsmanna innan BHM
hefur frá þvi i árslok 1973
rýrnað 20-25% meira en laun
á almennum vinnumarkaði.
Til að ná sama kaupmætti og
var i árslok 1973 þyrftu laun
að hækka um það bil um 45%.
3. Samkvæmt upplýsingum frá
kjararannsóknanefnd hefur
timakaup verka- og iðnaöar-
manna í dagvinnu hækkað um
14,4-14,7% á fyrstu sex
mánuðum ársins 1976$Ó EN
mánuðum ársins 1976, en á
sama tima hefur kaup ríkis-
6.4%. Orskurði Kjara-
dóms frá þvi i sumar fela að
vísu i sér nokkra endurröðun
á einstökum starfsmönnum
frá 1. júli 1976, og siðan fær
mikill hluti rikisstarfsmanna
einn launaflokk 1. janúar 1976
Þessar launaflokkahækkanir
gætu numið 2-3% og ná þvi
hvergi nærri að brúa það bil,
sem verið hefur á launahækk-
unum rikisstarfsmanna og
launþega á almennum vinnu-
markaði á fyrri hluta ársins.
Fulltrúar rikisvaldsins hafa á
samningafundum algerlega
hafnað kröfum BHM um launa-
hækkun.
islenskar konur
með málglöðustu
konum í heimi
Nú er það ljóst, sem lengi hef-
ur verið álitið, að islenskar kon-
ur eru með málglöðustu konum
veraldarinnar.
Þetta kom i ljós, þegar ræöa
Erlu Guömundsdóttur, sem bar
nafnið TKe Dark Age of
Mechanical Power, var send á
segulbandi á úrslitakeppni á
ársþingi „Toastmistress” fyrir
nokkru, en þar hlaut þessi ræða
annað sæti i keppninni.
Þetta kemur fram i frétt frá
Málfreyjudeildinni Vörðunni i
Keflavik, sem er sú eina sinnar
tégundar á fslandi enn sem
komið er. 1 fréttinni segir:
,J>ótt enginn fulltrúi frá
deildinni færi á ársþingið, hafa
þó fregnir borist frá þessum
heimssögulega atburði, þegar
islenskar konur gengu inn til
samstarfs viö konur um allan
heim i þjálfun hæfni sinnar og
efingu eiginleika sinna.
fslandi var veitt virðing i
þremur tilfellum á þessu árs-
þingi. Hið fyrsta var þegar is-
lenski fáninn var borinn inn og
tilkynnt var um þátttöku is-
lenskra kvenna i alþjóðasam-
tökunum. Hið annað sinn var er
gerö voru kunn úrslit í ræðu-
keppninni, að ísland hafði hlotið
þar annað sæti og I þriðja sinn
var Islandi klappað lof i lófa
fyrir þá viðleitni aö vera önnum
kafið við að þýða leiðbeininga-
handbækur „Toastmistress” —
samtakanna á islenska tungu.
fsland ásamt Japan eru einu
löndin sem standa að þýðingu
bæklinganna á sitt móðurmál”.
Að lokum er þess getið I frétt-
inni að Málfreyjudeiidin Varðan
i Keflavik muni innan skamms
verða með kynningarfund á
starfsemi sinni i Reykjavik.
— RJ
Hreinn Líndal á
plötu frá Steinum
Fyrir nokkru gaf hljóinplötu-
útgúfun Steinar hf. út hljóm-
plötu með Ilreini Lindal tenór-
söngvara. A plötu þessari nýtur
Iireinn dyggrar aðstoðar Ólafs
Vignis Albertssonar á pianó.
Platan er tviskipt, á fyrri hlið-
inni er islensk klassisk ein-
söngslög en á hinni eru létt
itölsk einsöngslög. Meðal laga á
fyrri hliðinni eru „Stormar”,
„Ég lit i anda liðna tið” (bæði eft
ir Sigvalda Kaldalóns) og „í
dag skein sól” og „Vögguvísa”
(bæði eftir Pál Isólfsson). Og
meöal itölsku laganna má nefna
„Mamma” eftir Bixio og „La
Danza” eftir Rossini.
Þann 24. október s.l. fékk
Kjaradómur málið til meðferð-
ar skv. lögum, Launamáiaráð
ákvað að draga fulltrúa sinn út
úr dómnum og sækja máliö
ekki
Flest félög i BHM hafa ákveð-
ið að leggja niður vinnu 15. nóv.
n.k. til að fylgja eftir kröfunni
um launahækkun og ræða frek-
ari aðgeröir. Launamálaráð
hefur jafnframt ákveöið að efna
til almenns fundar i súlnasal
Hótel Sögu kl. 13.30 og er vonast
eftir, að allir mæti. Launamála-
ráð mun siðan á grundvelli
þeirra upplýsinga sem fást 15.
nóv. leitast við að samræma
frekari aðgerðir.
KENWOOD MAJOR MEÐ STALSKAL,
GRÆNMETIS- OG ÁVAXTAKVÖRN OG
HAKKAVÉL ............VERÐ KR. 58.220
KENWOOD CHEF .....VERÐ FRÁ KR: 40.550,
KENWOOD CHEFETTE .... VERÐ FRÁ KR: 16.870,
KENWOOD MINI .....VERÐ FRÁ KR: 12.260
KENWOOD GRÆNMETIS- OG
ÁVAXTAKVÖRN .......VERÐ FRÁ KR: 6,275
Laugavegi 170—172— Sími 21240